| Forsíða GÓPfrétta |
Hagnýtar ferðavenjurYfirlit yfir nokkrar nytsamar ferðavenjur sem okkur þykir öllum gott að vita að hin þekkja líka - til að tryggja samræmingu aðgerða þegar á þarf að halda. |
| Sam- hjálp og sam- vinna |
Heim úr góðri ferð í góðum hópi Við ferðumst okkur til skemmtunar og förum saman í hópi. Fyrsta markmiðið er að koma aftur heim úr góðri ferð í góðum hópi - líka þótt ekki tækist að komast á þann stað sem til var stefnt. Allir þurfa aðstoð Gráa bilið Öryggi rammans Allir geta þurft að snúa við Á hvers ábyrgð? Hér er ég - og til aðstoðar reiðubúinn. |
| Reglur | Bílstjórinn setur þær umgengnisreglur sem gilda í hans bíl. Ekki er reykt inni í þeim bíl sem tekur að sér að flytja farþega gegn fargjaldi. |
| Áfengi | er notað mjög í hófi og bílstjórinn gætir þess að það drjúpi ekki meðan verið er á ferð. |
| Ég og þú = við |
Hér er ekkert nýtt á ferðinni.
Tilgangurinn með því að hafa svona skriflegt yfirlit yfir nokkrar nytsamar ferðavenjur er sá að að tryggja samræmingu aðgerða þegar á þarf að halda. Það flýtir fyrir mér að vita að hin vita líka - hvað ég hyggst fyrir og til hvers er ætlast þegar ég kem til hjálpar - eða þarf á hjálp að halda. Ef þú ætlar að slást í förina skaltu prenta ferðavenjurnar út og hafa þær meðferðis. |
| Talstöð | Við notum aðallega UHF-handstöðvar og rás 4. Til vara CB-rásirnar FM-20 / AM-20. |
| Fremsti bíll | Einum bíl er falið að vera fremstur. Hann miðar hraðann við gang hópsins og aflar sér upplýsinga frá þeim sem aftast fer. Hann samræmir krafta eftir þörfum við að leggja brautina. |
| Aftasti bíll | Einum bíl er falið að vera aftastur. Hann hefur samband við fremsta bíl sem hagar hraðanum þannig að hópurinn haldi saman. Hann hleypir þeim aftur fyrir sig sem nauðsynlega þarf - en dokar síðan eftir honum og tekur öftustu stöðu á ný. Það er hann sem tryggir öryggi ferðahópsins. |
| Við torfærur | Við allar torfærur dokar sá sem yfir er kominn uns sá sem á eftir fer er kominn yfir. Ef yfirferð er varasöm þarf að gæta þess að sá sem eftir fer sjái hvernig fara á yfir - ella þarf hann að kynna sér aðstæður með tímafrekari hætti. |
| Ég, bílstjórinn, hef hugfast: |
|
| Ef bíll á í erfiðleikum Ég dreg |
Þegar bíllinn á eftir mér á í erfiðleikum - eða sá sem á
undan
fer - er ég strax viðbúinn að veita honum aðstoð. Ef hann
losnar ekki strax sendi ég mann á vettvang og læt hann taka
spotta með sér. Ónotaður spotti skaðar engan en spotti sem
ekki er við höndina gerir ekkert gagn. Svona fer ég að:
|
| Pelastikk er hnýtt svona: |
![]() |
| Gætum bílanna |
Ég gæti að bílnum mínum! Dálítil bið á meðan skör er lagfærð eða ísjaki færður úr
vatnavegi er betri en jafnvel minnsta rispa á lakki - og munum
að það fer betur með bílinn að hjálpa honum með því að láta
toga í hann heldur en þeyta honum yfir torfæru. Það er ekki
bara metnaðarmál okkar að bílarnir verði fyrir sem minnstum
skakkaföllum - heldur dregur það líka úr óvæntum töfum. Ég gæti þess - bæði með minn bíl og annarra - að draga alltaf áfram en aldrei aftur á bak. Það er vegna þess að í mörgum bílum eru framdrifin af svonefndri reverse-gerð sem þola ekki öfugt átak - og brotna. |
| Greiðslur | Ef hópurinn á að standa skil á greiðslum vegna ferðarinnar - t.d. gistigjöldum og sameiginlegum kostnaði - þá finn ég gjaldkerann og geri upp við hann. |
| Gestabókin | Ég finn út (!) hver geymir gestabók ferðarinnar - og eldri bækur með ferðarlýsingum og myndum. |
| Kvöld- vakan |
Kynning, frásögn, leikur, ljóð og lag Ökumaður hvers bíls gerir grein fyrir sér og farþegum sínum - með þeirra hjálp eftir þörfum. Þá er svarað spurningum, sagt frá eftirminnilegum atvikum og lögð til gleðiefni á kvöldvökuna. |