|
GÓP-fréttir FKE-vefurinn |
Fundir FKE á starfsárinu 2004 - 2005 |
| * | Hér verða tiltekin meginviðfangsefni funda félagsins. Nákvæmari umfjöllun geta félagsmenn fengið með því að glugga í fundargerðabækur sem eru í vörslu stjórnar. |
|
24. ág. 2004 |
Ráðgerður er stjórnarfundur kl. 10-12 til að ganga frá til útsendingar atburðaskrá haustannar. |
|
18. maí 2004 |
Stjórnarfundur. Stjórnin skipti með sér verkum.
Hörður Zophaníasson tók að sér að gegna áfram störfum varaformanns, Hermann
Guðmundsson að sinna áfram gjaldkerastörfum og Bryndís Steinþórsdóttir tók
að sér ritarastarfið. Jóna Sveinsdóttir tók að sér skjalavörsluna og þær
Birna Frímannsdóttir og Margrét G. Schram eru varamenn, mæta á alla
stjórnarfundi og leggja þar sitt af mörkum til jafns við aðra. Rætt var um sumarferðina. Tómas Einarsson tekur að sér fararstjórn í henni eins og öllum þeim sumarferðum sem farnar hafa verið á vegum FKE. Áætlað er að fara Kaldadal í Borgarfjörðinn, fara svo þar um sveitir og skoða sig um og heimsækja merkar slóðir. Koma svo heim eftir kvöldverð. Sjá hér nánari lýsingu. Ákveðið að nota tölvupóst í verulegum mæli til að bera saman bækur sínar. Ákveðið að senda út fyrirspurnir til félagsmanna í því Fréttablaði sem kynnir ferðina í ágúst. |
|
15. maí 2004 |
Fundur var haldinn í
Fiðlaranum á þakinu á Akureyri. 50 skráðu sig í fundarbók. Þetta
var kynningarfundur um starfsemi FKE og fulltrúi LSR kom einnig á fundinn og
skýrði samhengi eftirmannsreglu-eftirlauna við annars vegar kjarasamninga og
hins vegar framkvæmd kjarasamninga úti í skólunum. Hvort tveggja hefur áhrif
á upphæð þeirra eftirlauna sem eftirmannsreglan skilar.
|
|
8. maí 2004 |
Aðalfundur - haldinn í Húnabúð að lokinni félagsvist. Ólafur Haukur Árnason, fráfarandi formaður, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Hermann Guðmundsson, gjaldkeri félagsins lagði fram og skýrði endurskoðaða reikninga félagsins sem voru samþykktir einróma. Nokkur endurnýjun varð í stjórn. |