GÓP-fréttir
FKE-vefurinn
Kom inn!
Hugmyndasagan
Hugmyndasaga í uppröð
Félags kennara á eftirlaunum

sem stofnað var árið 1980
Efnisatriði eru tekin eftir fundargerðarbókum FKE.
Í fundargerðum er oft skráð að ræddar hafi verið hugmyndir um starfsemina en miklu sjaldnar er ritað hverjar þessar hugmyndir voru. Í þessari samantekt eru aðeins skráðar framkomnar hugmyndir hverju sinni. Bein innskot vefritarans (GÓP) eru skáletruð.
Dags. Markmiðsgrein FKE
15. maí
1999
Markmiðsgreinin lítur svona út í núgildandi lögum sem staðfest voru af KÍ árið 2000 :

2. gr. Hlutverk félagsins er að fara með málefni félagsmanna Kennarasambands Íslands sem komnir eru á eftirlaun,

  • 1. fylgjast með og vinna að gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn Kennarasambands Íslands,
  • 2. halda fundi og námskeið,
  • 3. tilnefna fimm fulltrúa á þing Kennarasambands Íslands,
  • 4. efla félagsstarf meðal félagsmanna FKE,
  • 5. gæta hagsmuna lífeyrisþega.
12. jún.
1980
Endanlegt útlit markmiðsgreinar laganna varð svona á stofnfundinum 1980 og var óbreytt til 15. maí 1999 en breyttist þá með breyttum lögum sem voru staðfest af KÍ árið 2000:

4. gr. Tilgangur félagsins er að:

  • 1. Vinna að eflingu félagslífs.
  • 2. Vinna að útvegun starfsaðstöðu.
  • 3. Kanna vilja og möguleika á hópferðum innanlands og utan.
  • 4. Gæta hagsmuna lífeyrisþega.
  • 5. Halda spjaldskrá yfir félagsmenn.
Dags. Efla þátttöku félagsmanna og stofna deildir í þéttbýli utan Reykjavíkur
12. okt.
2004
Formaður sagði af sumarferðinni frá Akureyri. Í henni voru 22 samtals og hún tókst vel. Sjá nánari ferðarlýsingu og myndir á FKE-vefnum.
18. maí
2004
Formaður og varaformaður tóku að sér að  reyna að koma Akureyrardeild af stað og byrja á að hvetja til dagsferðar frá Akureyri svo sem einni viku seinna en ferðin frá Reykjavík.
15. maí
2004
Félagsfundur á Akureyri.
Fyrsti félagsfundur FKE sem haldinn er utan Reykjavíkur

Fundur var haldinn í Fiðlaranum á þakinu á Akureyri. 50 skráðu sig í fundarbók. Þetta var kynningarfundur um starfsemi FKE og fulltrúi LSR kom einnig á fundinn og skýrði samhengi eftirmannsreglu-eftirlauna við annars vegar kjarasamninga og hins vegar framkvæmd kjarasamninga úti í skólunum. Hvort tveggja hefur áhrif á upphæð þeirra eftirlauna sem eftirmannsreglan skilar.

211. stjf.
4. ap.
2002
Hvað getum við gert til að auka þátttöku í áhugahópunum? spyr formaður. Hann var með hugmyndir um stutt námskeið. Til dæmis tölvunámskeið, námskeið um sögu skriftar á Íslandi, myndlistarnámskeið og fleira.
4. ap.
2002
Komin er fram hugmynd um að stofna Norðurlandsdeild innan FKE. Hefur Þórir unnið nokkuð að þessu máli. Nánar síðar.
12. mars
1997
Tómas taldi að kanna þyrfti hvort áhugi kynni að vera fyrir því að stofna deildir innan FKE úti á landi, t.d. á Akureyri. Hugmyndinni vel tekið og ákveðið að hafa samband við svæðasamböndin.
28. sep.
1993
Rætt hvað félagið gæti gert til að fá fjölbreytni í starfsemina.
Hugmyndir: hópferð á leikhús og tónleika, ferðir innan lands og utan, virkja nokkra söngglaða til að stofna kór.
13. jún.
1983
Góður rómur var gerður að tillögu um að skrifa öllum 65-ára kennurum bréf og láta þá vita af FKE.

Stjórnin svaraði fyrirspurn um möguleika á því að stofna deildir í þéttbýli utan Reykjavíkur og sagði að það hefði verið athugað en málinu yrði að sjálfsögðu haldið vakandi.

Dags. Aðferðir við að afla upplýsinga
18. maí
2004
Rætt um að setja könnun í fréttabréfið sem fara skal út í ágúst.
(Þessi könnun breyttist í að auglýst voru fleiri tilboð um hópastarfsemi. Þetta voru sambílaferðir, gönguferðir og tölvustarf. Þegar þetta innskot er ritað - 19. okt. 2004 - hafa um 30 manns verið meira og minna í vikulegu tölvustarfi en vart komið viðbrögð við öðrum nýmælum.)
12. mars
1997
Þórir taldi áhugavert að vita hvað eftirlaunakennarar vítt og breitt um landið væru að fást við og hver væru þeirra áhugamál. Fróðlegt væri að gera könnun á því. Rætt um að senda félögum spurningalista.
19. nóv.
1996
Spurningalistar voru sendir til Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmerkur umstarfsemi kennara á eftirlaunum og hafa svarbréf borist frá þeim öllum. Ráðgert er að þýða þessa lista og taka saman útdrátt úr þeim.
11. sep.
1980
 Ákveðið að halda félagsfund og ræða vetrarstarfið.
10. jan.
1980
Kynna sér störf hliðstæðra deilda innan P.Í., St.Rv. og víðar.
Þetta var framkvæmt og niðurstöður ræddar á næsta fundi en ekkert tiltekið.
Dags. Starfshópar um áhugamál (klúbbar)
20. okt.
1998
Í bókmenntaklúbbnum er sú nýbreytni frá fyrri vetrum að félagar hafa skipst á að hafa forystu um að kynna þann höfund sem valinnvar. Þetta hefur gefist vel.
Skákklúbburinn starfar einsog fyrri vetur.
Komin fram spurning um bridge-klúbb og ákveðið að kanna hvort áhugi sé fyrir því.
24. sept.
1996
Ákveðið að geyma skriftarkennsluna þar til eftir áramótin.
14. maí
1996
Rætt um að kanna hvort áhugi væri fyrir bridge og tafli.
18. okt.
1986
Leshringur um bókmenntir.
13. jún.
1983
Fundurinn samþykkir að kjósa þriggja manna nefnd til að útvega og annast tómstundastarf fyrir félagsmenn, sbr. 4. gr. laga (f. Félag kennara á eftirlaunum) 1. og 2. tölulið. Telja verður eðlilegt að félagar fái notið þeirrar tómstundaiðju er þeir óska svo sem í leshringum, hvers konar föndri o.s.frv. innan vébanda síns eigin félags. 
8. jan.
1982
Leshring - 3 skráðir
Bridge - 5 skráðir
Föndur - 3 skráðir
Tafl - 3 skráðir
Bókband - 4 skráðir
Trésmíði - 4 skráðir
11. okt.
1980
Æfa eða jafnvel læra frá grunni einhverja handiðn svo sem smíðar eða bókband. Hugsanlegt að koma því námi undir Námsflokka Reykjavíkur.
Skemmtanaþátturinn gæti verið í formi skemmtikvölda með spilum, tafli, söng, dans og svo frv.. Þetta væri sérstaklega heppilegt til þess að auka persónuleg kynni manna sem nytsamt væri til að byggja aðrar framkvæmdir á.
11. sep.
1980
Fram komu ýmsar hugmyndir svo sem að kanna möguleika á að nema föndur ýmiskonar, iðka með leiðsögn sérfróðra sjúkraleikfimi aldraðra, spilamennsku og söng til upplífgunar.
Dags. EKKÓ - Eftirlaunakennarakórinn
30. maí
2001
Söngur EKKÓ-kórsins hefur verið tekinn upp á geisladisk og verið er að leggja síðustu hönd á vinnu hans. Útgáfan er væntanleg í næsta mánuði.
20. ap.
2001
Fyrirhuguð er ferð EKKÓ í söngbúðir 20. - 22. apríl. Kórinn nýtur styrks frá FKE. Dvalið verður að Varmalandi.
20. okt.
1998
Kórinn hefur valið sér stjórn og er Rannveig Sigurðardóttir formaður. Hann er þar með sjálfstæð stofnun innan félagsins. Samið um að hann syngi á jólafundi og árshátíðum.
24. sept.
1996
Um kórstarfið hefur Óli Kr. rætt við Helga Þorláksson og vill hann gjarnan taka að sér stjórnina til áramóta. Ráðgert að hafa æfinar hálfsmánaðarlega.
Dags. Hagsmunamál félagsmanna
15. maí
2004
á
Akureyri
Páll Ólafsson frá LSR skýrði tengsl launa eftir eftirmannsreglu við kjarasamninga og framkvæmd þeirra. Hann afhenti yfirlit og gerði m.a. grein fyrir markmiði og framkvæmd eftirmannsreglu og meðaltalsreglu og gögnum hans mátti ráða að meðaltalsregla væri heppilegust þegar til lengri tíma er litið.
21. nóv.
1987
Hollustufæði fyrir aldraða. Elísabet Magnúsdóttir flutti erindi. Hún gerði grein fyrir niðurstöðum af neyslukönnun Manneldisráðs 1979-1980. Af þeim má ráða að fólk yfir fimmtugt neyti yfirleitt of mikillar fitu, einkum harðrar fitu, og alltof mikils sykurs. Saltneysla virtist langt umfram þarfir. Hins vegar skorti talsvert á að nóg væri af kolvetnum í fæðunni og D-fjörefni var af skornum skammti.
17. okt.
1987
Öldrunaríbúðir verða í umræðunni og formaður benti á ýmis sjónarmið um það efni. Ræðist frekar á skemmtifundi 21. nóv.. Nefnt var að í bígerð er að setja lög um skipan húsnæðismála aldraðra að frumkvæði Samtaka aldraðra og Öryrkjabandalagsins.
11. okt.
1980
Létt leikfimi við hæfi aldraðra og jafnvel sjúkraleikfimi.
Þörf væri á hjúkrunarheimili fyrir aldraða og það gæti orðið stefnumál á komandi árum.
Um afgreiðslumáta LSR
Dags. Orlofsdvöl
24. sept.
1996
Loforð hefur fengist fyrir því að fá orlofshús KÍ til afnota fyrir FKE frá mánudögum til föstudaga fyrir lækkað verð eða kr. 3.000.
25. feb.
1987
Ákveðið að fara fram á sömu orlofsaðstöðu hjá Orlofsheimilanefnd BSRB og félagið hefði notið síðastliðið sumar.
Uppgjör 9.sept.: 42 umsóknir bárust. 32 fjölskyldur nutu þar dvalar þær 17 vikur sem húsnæðið var til leigu.
15. apr.
1986
Sumarhús í Munaðarnesi: FKE á kost á að fá á leigu tvö hús, eitt stórt og eitt lítið. Sumarleigan er kr. 56 þús. fyrir það stærra en kr. 40 þús. fyrir hitt.
10. des.
1983
Nefnt var að einn kennari hafði komið með þá hugmynd að samtök aldraðra keyptu hús á Spáni til orlofsnota og boðið fram lán í þessu skyni.
14. maí
1981
Formaður hafði rætt við menntamálaráðherra og ráðuneytisstjóra um möguleika á að fá heimavistarskóla sem orlofsheimili fyrir Starfsmannafélag lífeyrisþega ríkis og bæja. Málið er í athugun hjá ráðuneytinu.
15. jan.
1981
Samþykkt að leggja til við stjórn Sambands lífeyrisþega BSRB að starfræktar verði sumarbúðir fyrir félagsmenn
Dags. Námskeið og föndur
6. ág.
2002
Íslensku menntasamtökin höfðu sent bréf þar sem sagt var frá námskeiðum um skólamál sem hefjast í Áslandsskóla um þessar mundir.
20. sep.
1984
Drepið á hvort tiltækilegt þætti að koma á föndurtíma í þeim tilgangi að nota framleiðsluna sem borðskraut á samkomunni í desember. 
Dags. Hópferðir - ferðalög - lægri fargjöld
18. maí
2004
Sumarferð t.d. í Húnavatnssýslu eða á Hveravelli með það í huga að mæta norðanfólki á miðri leið.
Fljúga til Akureyrar, fara í ferð þaðan og fljúga til baka.
Ferðir um byggðir og í óbyggðir í bílalest geta verið mjög áhugaverðar.
Setja saman lista yfir ferðir sem farnar hafa verið á vegum félagsins
Styrkja þá félagsmenn sem vilja ganga í Félag eldri borgara tiil að njóta þess sem þar er í boði.
25. nóv.
2003
Hermann kom með skemmtilega hugmynd um næstu sumarferð. Nefnilega þá að við flygjum til Egilsstaða, ækjum svo um Austurland, borðuðum góðan mat og flygjum heim að lokinni kvöldvöku sem Hörður taldi að ætti að vera undirbúin að hluta.
Hermann athugaði verðin og þá kom í ljós að þetta væri óframkvæmanlegt.
3. maí
1997
Óli Kr. á aðalfundi: Einnig hefur stjórnin rætt um að fara stutta ferð til Nesjavalla í lok vetrarstarfsins ef áhugi væri fyrir því. Í ljós kom að vilji væri fyrir þeirri ferð.
Sigurður Kristinsson sagði ánægjulegt að starfsemi félagsins hefði glæðst undir núverandi stjórn. Nú væri komin falleg ökuleið til Nesjavalla og skemmtilegar gönguleiðir um Grafninginn, m.a. um Dyradal.
24. ág.
1994
1. sumarferð FKE var farin þann 24. ágúst.
30. maí
1981
Nokkur atriði geta orðið lífeyrisþegum til hagsbóta svo sem ódýrar innanlandsferðir með Flugleiðum á vissum dögum.
12. jún.
1980
Undir öðrum málum var rætt um verkefni félagsins á þessu sumri. Fram komu hugmyndir um hópferðir fyrir félagsmenn t.d. til Hveravalla eða í Þórsmörk.
Dags. Skemmtifundir
12. okt.
2004
Um spilaverðlaun. Samþykkt að hafa í handraðanum fleiri verðlaun svo að þeir sem verða jafnir og efstir fái báðir/allir verðlaun.
14. maí
1996
Spurning hvort ekki ætti að veita verðlaun fyrir hæsta slagafjölda yfir veturinn.
4. sep.
1995
Rætt var um að gaman væri að sýna landslagsmyndir stöku sinnum. Eflaust eiga margir félagar góðar myndir í fórum sínum.
1. okt.
1990
Stjórnin stígur í stólinn.
25. sep.
1989
Rætt um að hvetja fundarmenn til að leggja til sjálfvalið efni eftir því sem tími leyfði.
25. feb.
1987
Við skoðun félagaskrárinnar var ákveðið að senda skemmtifundarboð framvegis til félaga í Gullbringu- og Kjósarsýslu, Hveragerði, Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn og Akranesi.
20. okt.
1986
Rabb um félagsmál
Að félögum sé heimilt að koma með gesti.
Að leita til félaganna að koma fram með dagskrárefni á fundum.
Að fá kennara sem kennir sætaleikfimi.
Að fá leiðbeinanda til að stjórna dansi.
18. okt.
1986
Æskilegt að fundarmenn ættu aðgang að nöfnum allra þeirra sem fundi sækja hverju sinni og hvar þeir störfuðu síðast svo að kynning milli félaga geti orðið meiri.
Kunnáttumaður sem kenndi sætaleikfimi fenginn öðru hverju á fundi.
Dansað stöku sinnum í lok funda.
11. okt.
1980
Ármann Kr. Einarsson hvatti eindregið til þess að skemmtistundir hefðu forgang í félagsskapnum til að byrja með.
Dags. Önnur verkefni
25. feb.
2004
Kjaramálafundur FKE í Kennaraháskólanum.
6. ág.
2002
Bréf hefur borist frá Rauða krossinum þar sem óskað er eftir áframhaldandi aðstoð sjálfboðaliða úr FKE við nýbúabörn. Þessa verður getið í næsta fréttabréfi.
4. ap.
2002
Ólafur Haukur taldi nauðsynlegt að koma hér upp skólasafni og sagði að skemmtilegt væri ef FKE gæti haft forgöngu þar um. Valborg upplýsti að Þorsteinn Ólafsson hefði eitt sinn verið að safna gömlum skólamunum. Þykir því sjálfsagt að ræða við hann um þetta mál.
22. ág.
1999
Minnisvarði um Freystein Gunnarsson, skólastjóra,
afhjúpaður að Vola í Flóa í 200 manna viðurvist. Sjá nánari frásögn hér.
9. okt.
1992
Málræktarsjóður
* *

Efst á þessa síðu * FKE-vefurinn * Forsíða GÓP-frétta