|
Forsíða
|
Úr gestabókinni
Silfurveröld, signd og blá, Hér birtast nokkrar kveðjur sem ratað hafa í gestabók hússins um dagana ... en fyrst er spáð fyrir þér: |
|
Þetta Horfur |
Horfurnar á komandi tíma fyrir lesendur þessara lína: Þú gefst aldrei upp þótt í móti blási en heldur þínu striki um leið og þú og þínir styðjið hver annan. Þú ert leitandi og á meðan orkan endist ertu sífellt til reiðu að einbeita þér að nýju verkefni ef það fangar áhuga þinn eða má verða þér eða öðrum til bóta eða ánægju. Fastheldni og trygglyndi er aðall þinn og þú tekur mannlegum upphlaupum með æ meiri rósemi eftir því sem reynslan eykst. Þótt þú standir yfirleitt báðum fótum á jörðu áttu frjótt ímyndunarafl sem opnar þér nýja drauma og nýjar leiðir bæði í meðbyr og mótbyr. Það fer nokkuð eftir aðstæðum hversu opinskátt þú ræðir um tilfinningar þínar og notar stundum mörg orð en stundum finnst þér ljóst að allir viti hvað þú hugsar án þess að klætt sé í orð. Þér er listfengi og sköpunargleði í blóð borin og mikill fagurkeri og missir fljótt áhuga fyrir annars og þriðja flokks munum og myndböndum. Þú ert traustur vinur vina þinna og lipur að umgangast fólk og þó að skapsmunir geti hlaupið með þig í dálitlar gönur hefur þú í þér þá stærð og þann persónuþroska sem þarf til að viðurkenna eigin mistök og axla eigin sök og eigin ábyrgð. Þú hefur til að bera hagsýni og skipulag í meðferð peninga. Þú átt gott með að læra að sníða þér stakk eftir vexti og gera nýja áætlanir þegar aðstæður breytast. Takir þú að þér að skipuleggja og undirbúa verkefni af kostgæfni standa þér fáir á sporði þegar til framkvæmdanna kemur. Þú dvelur ekki um of við liðna tíð og margt skemmtilegt og spennandi kemur upp á. Þegar fram í sækir skín sólin glaðar og aukin bjartsýni fæðir af sér nýjar hugmyndir og kímnigáfan blómstrar. Í einkalífinu verður enn meira af skini en skúrum og einnig þar er margt spennandi í vændum. Komandi tími ber í skauti sér margar ánægjustundir, leiki og kappleiki og þar sem árangur skiptir máli mun hann aukast jafnt og þétt eftir því sem fram líða stundir. Eins og títt við ber í heimi hér eru allir í skemmtilegum verkum og einnig í erfiðum verkum. Það mun sýna sig þegar á líður að hin erfiðari verkin reynast þolanlegri en útlit var fyrir. Margir sem átt hafa í togstreitu innra með sér og í samskiptum við aðra munu ná að leiða þau mál til ákjósanlegra lykta. Í heild fer í hönd skemmtilegur tími fyrir þá sem búa til og grípa þau tækifæri sem til ánægju gefast og ábatasamur þeim sem öllu halda í máta. |
![]() |
|
| 17. júní 2007 |
Þann 17.6.2007, skrifaði Høgni Egilsson:
Hjartanlega til hamingju med daginn - Høgni
Bestu hátíðakveðjur - GÓP |
| 31.3.2000 |
Högni Egilsson:
|
| 31.3.1990
Hilsen |
Högni Egilsson:
|
| 31.3.1990 | Nanna Jakobsdóttir:
|
| 28.3.1988 | Jón Sæmundsson:
|
| 15.10.1984 | Svana Björk Karlsdóttir:
|
| Jan. 1981 | Pétur Sumarliðason:
|
| Gamlárskvöld 1979 |
Jóhannes Ólafsson:
|
| 27.12.1979 | Jóhannes Ólafsson:
Karl Jónsson:
|
| 31.12.1975 |
Pétur Sumarliðason:
|
| 31.3.1969 |
Pétur Sumarliðason:
|
| 31.3.1950 |
Haraldur Björnsson:
|