GÓP-fréttir
forsíða
Ferðatorg

 |
Far-Roðinn
Texti: GÓP
Lag: C. J. Rasmussen (Sjá roðann í austri ....)
|
| > |
Með sólbjörtum huga og syngjandi lund þeysir sinnið í öræfaför og í unaði gengur á fjallanna fund - óðar fangar oss minningin ör:
:.: er merlaði skjannann sem morgunninn fann! Hver man ekki morguninn þann! :.:
|
| > |
Er roðinn úr austrinu brýtur sér braut boðar dýrðlegan öræfadag þegar fegurð og gleði oss fellur í skaut! hvílík fylling í ævinnar lag!
:.: og litflóðið háa um ljóshvolfin blá svo ljómandi landinu á! :.:
|
| > |
Vér gleðjumst hér saman á gleðinnar stund hér er glampi og sindur á brá síðan hverfum vér aftur á fjallanna fund
megi farsældin una oss hjá!
:.: Oss framtíðin laðar um fjall og um vað! Vér förum á fjarlægan stað! :.:
|