GÓP-vísur af ýmsu tilefni
GÓP-fréttir * *
Sjá einnig
|
11. nóv. 2009 - Freyja - afmæli:
Við óskum þess að allt þér bæti hag
og efli snjallan hug og lipran fót,
þú eigir margan ævintýradag
og allir dagar marki tímamót.
|
1. okt. 2009 - í gestabók GGÍ eftir
stjórnmálaspjall
Títt er talað, margt er mál,
mörg er orðaspíkin -
hún er illyrt orðaprjál
Íslandspólitíkin.
|
25. ágúst 2009 - undir
útfararpresti. Hugleiðing um styttri æviþulu:
Ævisagan öll í kvæði:
Eftir upphaf
heill og yndi hafði bæði.
Hrekk svo uppaf.
|
20. júní 2009 - Berta Rögn 5 ára
Glæsiveisla, malt og mix
magnar yndishag
nú er unga fröken fix
fimm ára í dag.
|
10. júní 2009 – Hægt gengur að
gangsetja Touched by Life – bókargerð
Margt er í krókum sem teljast til tafar
- en tekst þó að mjakast -
og öll munu kurlin svo komast til grafar
og kolagerð takast.
|
31. maí 2009 – Nafngiftardagur Emblu
Júlíu Mjallar
Upplitið djarflegt og augun skýr,
ákveðin, einlæg og snjöll -
ævin þér verði ljúft ævintýr
Embla Júlía Mjöll.
|
14. október 2008 - Böðvar Bjarki
1962
Tafarlaust er tímans mikla spil
tapast grönd og slemmur eru unnar.
Við sendum bjartar bestu kveðjur til
Bjarka og til allrar fjölskyldunnar.
|
12. sept. 2008 - Ólafur Freyr
1959
Efldu þína léttu lund
lífs er skammvinn saga
eigðu marga unaðsstund,
yndislega daga.
|
| Sunnudagur
17. maí 2009 - Þjóðhátíðardagur Norðmanna - sem fengu gull á Júróvisjón í gær
Halló Noregur - og til hamingju með Eurovision !!!!!!!!!!!!!!
Í logni og óvanalega hlýju veðri
hugsum við hlýlega til frænda okkar í Noregi. Við sendum þeim hátíðarkveðjur
í tilefni dagsins - og hamingjuóskir í tilefni sigursins í Júróvisjón í gær.
Okkar frábæra Jóhanna söng okkur
Íslendinga upp í annað sæti - en vegna fjárhagsstöðu landsins erum við
einnig þakklát Norðmönnum að vera í fyrsta sæti með glæsibrag og taka þannig
að sér þann útgjaldabikar að halda hátíðina næsta ár.
Lognið glampi glæinn,
gleðin fylli bæ,
sólarsunnudaginn:
sautjánda í maí.
Bestu hátíðakveðjur! |
20. júní 2008
Hoppar glöð á hæl og tá
hefur viljann klára
einarðleg með bros á brá:
Berta - fjögra ára.
|
14. júní 2008
- Lind útskrifast sem leikskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands
Leikskólann muntu laga
lipur og glögg og skýr -
eigðu um alla daga
yndisleg ævintýr.
|
8. júní 2008
- Til Freyju Rúnar
Strýkur blærinn blómarósirnar
- blæs þó hraðar lífsins gangur ær -
héðan koma heillaóskirnar:
til hamingju með daginn þinn - í gær.
|
29. maí 2008
- Suðurlandsskjálfti 6,4 á Richter- kl. 15:45 - en þá vorum við raunar
þrír í
Esjugöngu og fundum ekki fyrir neinu.
Ærir það kálfa
ærir það álfa
ærir oss sjálfa
æ þegar jörð fer að skjálfa.
|
26. maí 2008
Rekkar sem að rak í nauðir
reynast hljóðari
þeir sem ekki eru dauðir
eru fróðari.
|
9. mars 2008 - Gestabókin í
Þórsmörk var svo fullskrifuð að nöfn okkar tróðust á öftustu kápusíðu:
Margur hingað innúr ók
- átti stundu hlýja:
það er ljóst að þessa bók
þarf að endurnýja.
|
3. mars 2008 - Bjarni 66
Aldurstalan ætíð vex
- eldumst báðir saman -
þín er orðin sex og sex
sem er bara gaman.
|
2. febrúar 2008 -
Afmælisveisla á nýja heimilinu
Húsmóðirin, hún er smört,
hefur veislu klára.
Hjartans óskir! Arna Björt,
orðin nítján ára.
|
24. janúar 2008
Eins og spuna furðuflug
úr föstum skorðum
er að hitta eigin hug
í annars orðum.
|
17. janúar 2008 - Hjá mömmu - sem er lífsglöð og lagin
til hugar og handa
Guðrún hefur glaða brún
- glettin nýtur lagsins -
opnum huga eygir hún
yndisleika dagsins.
|
|
12. október 2007 - til Vikars:
Afmæli á eilífð hvers
er sem tímans bryggja:
sigldu glaður, sæll og hress,
sextíu og þriggja.
|
1. ágúst 2007 - Hjá Stellu Guðmundsdóttur í Heydölum:
Heydalina höfum gist
- hér kom ferðasella -
eftir þessa yndisvist:
- ástarþakkir, Stella!
|
|
29. júlí 2007 - Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti við Patreksfjörð:
Kemur fjöldinn forvitinn
- fagnar gömlu dóti -
margan fornan fróðleikinn
fundum við á Hnjóti.
|
|
24. júlí 2007 - Eftir vikudvöl í Kerlingarfjöllum fengu ráðskonur
staðarins þessa þakkarkveðju sem syngja skal við sama lag og
Bjarnastaðabeljurnar:
Kerlufjallakonurnar
þær kokka mikið núna
ýmsa rétti einfalda
og aðra mikið snúna
Þær efla okkur öll
þær gleðja okkur öll
sem komum í Kerlingarfjöll.
|
|
27. júní 2007 - í tilefni dagsins
Sunnan-andinn sólblíður
seiðir kul úr gjósti
- hérna færðu, Hólmfríður,
heillaósk í pósti.
|
|
7. júní 2007
Þann 7.6.2007, skrifaði Høgni Egilsson <hegils@hotmail.com>:
Blessaður.-... - Hér úti er ekstra-sumar og 30 gráður.
Heldurðu að það sé heitara í helvíti? Kær kveðja - Högni
Þegar spurt er þess hve hlýtt
þegnum býðst í neðra
er þess von að enn sé nýtt
íþrótt vorra feðra:
Sífellt föðurmyndin mín
mælti ósköp fegin:
striplið yrði Péturs pín
Paradísarmegin.
Eftir lífsins erilstreð
allur hyrfi bagi
kæmist hann í kofa með
kyndingu í lagi.
Ylnum fagnar í sitt vé
- aldrei of af hlýju -
þótt í gráðum þá hún sé
þrjátíu og níu.
Kannski missir kölski ró
klökkva með og volum -
en ég vona að hann þó
eigi nóg af kolum.
|
|
5. feb. 2007 -
Til Harðar Zóphaníassonar fyrir ljóðabók hans Vísnagaman og vísnamál
sem hann gaf mér laugardaginn 3. febrúar. Yfirleitt blaða ég og les svo ljóð
og ljóð í ljóðabókum en þessa bók las ég langtímum.
Hörður! Þakka þína bók:
þessi ljóð til manna,
hvernig vægi hvert eitt jók
hversdagsatvikanna.
|
|
27. des. 2006 - Opnun nýrrar
gestabókar Irmu
Gestabókin góða er
gleðispegill tímanna:
það sem hugum birtu ber
blikar meðal rímanna.
|
|
20. des. 2006 - Um þessar mundir er
Framsóknarflokkurinn níræður. Hann hefur rýrnað bæði að atkvæðahlutdeild,
fjölda kjörinna fulltrúa og tiltrú kjósenda. Í Reykjavík er þó kominn til
stjórnunarstarfa síðasti Móhíkaninn sem raðar vinum og pólitískum samherjum
á jötuna. Það nefna sumir afturgengna háttsemi.
Aftur gengur frammaranna far
-
forni tónninn þekkir stillinguna:
nýr og stæltur stjóri Framsóknar
sterkur kemur inn í spillinguna.
|
|
14. des. 2006 - hugleiðing
Manna sjóð til silfurs tel:
sá er þjóðar hella
sem er góður, gerir vel,
gengur hljóður ella.
|
|
7. desember 2006 - Þekkt er sú
skemmtan að raða orðum upp á óvanalegan máta svo venjuleg merking þeirra búi
til nýja liti í huga heyrandans - eða lesanda ljóðsins. Oft er hljómurinn
svo raunveruleikalíkur að menn villast á honum og heiminum.
Tjáning hvers orðs míns í orðanna öruggu röð
útmálar fyrir þér hug minn um veraldar keröld,
- uppstokkuð verða þau óður á endastöð
sem aðeins er til í orðanna sérstæðu veröld.
|
|
30. nóv. 2006 - í gestabók GGí
Mömmu höfum við hressta
það heitir hjá sonunum
með óskir um allt hið besta
einnig frá konunum.
23. nóv. 2006 - í gestabók GGí
Sitjum við hérna saman
synir og móðir vor
spjöllum og gerum gaman -
gæfan á fjölmörg spor.
|
|
3. nóv. 2006 - Til Guðrúnar
Gísladóttur sem 30. október árið 1940 giftist Pétri Sumarliðasyni á 61.
afmælisdegi Aðalbjargar Jakobsdóttur.
Til þess þér að glæða bros og gleðja
svo glitri fornar minningar í huga þér
þá kemur hérna til þín tölvukveðja
í tilefni af 30. október.
|
30. mars 2006 - Í gestabók hjá GGí:
Engu ætla ég að lýsa
eða leita svars
því var samin þessi vísa
30. mars.
|
23. mars 2006 - Í gestabók hjá GGí:
Þetta á að verða vísa
- veit þó ekki enn um hvað -
Nú er víst að koma krísa,
- kannski best að geyma það.
|
19.janúar 2006
Við kveðjuathöfn í Langholtskirkju um Jónu Jakobínu Jónsdóttur frá Vogum við
Mývatn. Útförin gerð nyrðra þann 20. janúar.
Minnisdagar rifjast rósóttir - rennur fylking undir áratogum - Jóna Jakobína Jónsdóttir, ég var hjá þér forðum útí Vogum.
|
21. nóv. 2005 - við útför Sigurðar E.
Þorkelssonar, skólastjóra og skákmanns
Hugurinn er þýður þótt þeysi minnisfákar: Siggi Þorkels hefur hljótt, hlustar, brosir, skákar.
|
21.-23. okt. 2005 - við Köldukvísl við
Svarthöfða - á
suðurleið
úr Vonarskarði:
Mörg hefur lítil lænupísl lagt oss gildru snúna en ósköp var hún Kaldakvísl kurteis okkur núna.
|
29. sept. 2005 - á teppið handa Bertu Rögn
Undur heimsins horfir á hlý og björt í sinni. Með sitt glaða bros á brá breytir veröldinni.
|
5. ágúst 2005 - Ágúst Örn 11 ára
Vakna,
klæðast, brosa breitt, byrja, gera, klára, öllum störfum annar greitt Ágúst - ellef' ára.
|
24. ágúst 2005
Félag kennara á eftirlaunum fór sumarferð frá Akureyri í Fjörður og
Flateyjardal og naut kvöldverðar í Grenivík. Þar var á boðstólum vín með
matnum sem varð tilefni eftirfarandi endurtekningar á vísunni frá 26. ágúst 2000:
Vín ég þigg með þessum bita - það er sosum ekkert aððí utan það sem allir vita: eg verð bara fullur afðí.
|
3. júní 2005 - við útför Björns A.
Kristjánssonar, múrarameistara
Fjöldamörgum lagði lið - lét sér annt um vini - bestu kveðjur berum við Birni Kristjánssyni.
Bjarni Ólafsson sat við hlið okkar og þá tengdist Ólafur Jónsson Birni í
huganum - svo sem var forðum í félags- og bæjarmálum:
Fengu oft að öðrum hlúð - almenningsins vörn - ríma tveir í innstu úð: Ólafur og Björn.
|
2. des. 2004 - við útför Gísla Friðriks
Þórissonar
Minningin, ljúf sem í ljóði, ljómar þinn gengna stig. Óvænt var gullvagninn góði
gerður að sækja þig.
|
|
17.
október 2004 - Morgunn í Jökulheimum

Músaðu á myndina til að sjá þær allar úr ferðinni.
Jökulheimahúsið er
hlýr og traustur skúti
hvort sem lægð um loftin fer
eða logn er úti.
Hvít er iðan - hvert sem sný -
hvín við ramman slaginn -
gamla húsið grillir í
glaðabjartan daginn.
Líður vel við ljúfan yl
leiðangri sem er’ðar
- samt er kominn tími til
að tygja sig til ferðar.
Ævintýrið á sér stað
og þá bætir haginn
lífsins góða gaman - að
geta tekið slaginn.
Veðrið blint er firna fól
- feykir vindur hvessinn -
þá er gripið tækni tól:
treyst á gps-inn.
|
2.-4. janúar 2004
gisti ég hjá Þóri Hauki Einarssyni og Lilju Sigrúnu Jónsdóttur í Fiskinesi
við Drangsnes. Sigrún sýndi mér listaverk sem hún hafði unnið í námi og var
myndskreytt ævintýri frá umhverfi Fiskiness. Bæði þessi kvöld hófust seint -
því við Pétur Örn fórum úr Reykjavík fyrra kvöldið en frá Ísafirði það
síðara. Við sátum því saman svo sem einn sjávarfallstíma:
Er sem nemi kynjakall, klettamyndir lesi, meðan sit eitt sjávarfall, sæll í Fiskinesi.
|
18.desember 2003
Helgarvetur! Skreppum skjót, skoðum ísalinginn, Merkurár og Markarfljót: Merkurvatnahringinn!
|
4. okt. 2003
Gott er stef með góðu rími -
gæða fólk og góðir fundir,
góður dagur, góður tími,
góðir vinir, góðar stundir.
|
14. des. 2002
Ísland - þar sem allir hugsa sitt - og er menn standa frammi fyrir vanda veit hver og einn að arfa-rangt er hitt!
Aðeins ég á réttu hef að standa!
|
10. júlí 2002
Ókum hingað árvökul og í tákn var lesið: leiðin upp á Langjökul lá um Skálpanesið.
|
25. ágúst 2001 - hjá Irmu:
Eru komnir ungir tveir og með bros á hvarmi: Það er Ágúst Örn og þeir Alexander Bjarmi.
|
Sumarferðin 2001 um Norð-Austurlandið
4.-5. ágúst 2001:
Í gestabók Réttarkots - en það hús reyndist langtum glæsilegra en kot-nafnið
gefur til kynna:
Fagnar lúi ferðasveins fínu Réttarkoti gistir seint í öðru eins úrvals glæsisloti.
6.-7. ágúst 2001 í gestabók í Ytralóni:
Hver sem þetta lúinn les lyfti huga glaður: Ytralón við Langanes er ljúfur gististaður.
10.-11. ágúst 2001: Húsverðir voru þær Rakel og Sirra. Stæld hrynjandi Jóns Helgasonar í
Áföngum:
Kverkfjallavættir kyrja: Hæ! kalla á fætur lýði. Litríkt er hvolf um lognsins bæ laugar nú sólin gríði. Sumarið veitir blíðan blæ bljúgur er andinn þýði. Rakel og Sirra sitji æ Sigurðarhús með prýði.
10. ágúst 2001- í Sænautaseli:
Það eru hjónin Björn Hallur og Lilja sem sinna ferðamönnum í
Sænautaseli. Heitar lummur eru lostæti staðarins:
Bóndinn í Sænautaseli segir okkur af kúnni. Allt er á hverfanda hveli - hvar má nú leita að frúnni?
Í Sænautaseli er næði og sætt fyrir þá sem vilja og lummurnar bjóða þau bæði Bjössi Hallur og Lilja.
|
Hólmfríður Þórisdóttir - fertug þann
27. júní 2001
Fríða - með sinn innri eld alla vefur hlýju og er núna - að ég held - orðin 40.
|
Aðalbjörg Eir Endurnýjar skírnarheitið
21. júní 2001
Veisla í Haukahúsinu á Ásvöllum 24. júní 2001
Glöð og broshýr, fim og fjörg fari lífs á degi okkar snjalla Aðalbjörg Eir um gæfuvegi.
|
Maí 2001 - Katrín Valgerður útskrifast úr
Listaháskólanum
Legg ótrauð á lífsins stig, listin bætir haginn. Heill og gæfa heiðri þig! Til hamingju með daginn!
|
29. apríl 2001 Guðrún Andrea fermd
Signir daginn sól á sprangi um Selfossbæinn og við óskum að þér gangi allt í haginn.
|
08.04.2001 - Leifur Ingi Vilhelmsson fermdur
Sindrar land í sólarkossi - signd er okkar ósk og von: ljúft og milt þér lukkan hossi, Leifur Ingi Vilhelmsson.
|
08.04.2001 - Assa Ósk fermd:
Yndisveröld augað sér - allt fer þér í haginn. hamingju við óskum þér, Assa
Ósk, með daginn.
|
15.01.2001 í gestabók hjá GGí
Þú sem lítur þennan stað því mátt yfir lýsa að hér finnist fest á blað fremur ódýr vísa.
|
4. janúar 2001 - Kveðja við fráfall Svövu
Jónsdóttur á Snælandi.
Svava var frá Geitavík í Borgarfirði eystri. Hennar maður var Halldór
Pétursson, rithöfundur, fæddur og upp alinn á Héraði. Hann starfaði hjá
Iðju, félagi verksmiðjufólks, og síðar lengi hjá Kópavogshreppi og
Kópavogskaupstað. Bræðurnir Halldór og Runólfur reistu húsið sem þá hét
Snæland 2B árið 1947 en Runólfur var þá annar bóndinn á Snælandi við Nýbýlaveg í
Kópavogi.
Árið 1967 fluttum við hjónin inn í austurendann - þar sem
Runólfur áður bjó. Halldór og Svava bjuggu hinum megin í húsinu en hljóðbært þil
skilur húsið í tvær íbúðir. Við vorum því hvor um sig - fyrir handan.
Halldór féll frá tíu árum fyrr.
Snæland geymdi mannamót
mörg var gestablandan
er Héraðsbur og borgfirsk snót
bjuggu fyrir handan.
Undangenginn áratug
áttu hvort sinn veginn
hittast nú við brautarbug
að búa hinum megin.
Halldór alheim er að þvo
í óði sólarlagsins -
hefur gullvagn sendan svo
Svava njóti dagsins.
Halldór kallar hátíð þá
hóar vinum snjöllum
Svava veislu annast á
Iða- grænum völlum.
Nú er kominn tími til
að tala, brosa, fagna!
-
Þökkum gott við gamalt þil.
GÓP og Ragna.
|
26. ágúst 2000
Nú er frændaflokkur glaður - fínt er vín sem konan lagðí víst er það þó verst að maður verður bara fullur afðí.
|
27. ágúst 2000 - skírður Friðrik Óli
Kristinsson og Guðbjargar
Eigðu ráð og úrlausnir æ á friðarstóli. Heila ævi hafðu byr. Heill þér, Friðrik Óli!
|
22.-23. janúar 2000 -
Myndatextar í
Þórsmerkurferð
Ókum austur veðravor
- vildum finna björkina.
Víða lagði vatnaspor
vetrarferð í Mörkina.

Ljúf er veröld, logn er á,
léttur er´ann Blesi -
engar fannir er að sjá
inní Langanesi.

Jóni Agli af er sagt:
á sinn gleðipinkil.
Hann til gamans hefur lagt
höfuðið í vinkil.

Stakkholtsgjá á hægri hönd
horfum fram á Stakkinn.
Handan ganga Goðalönd,
gegnt þeim: Stangarslakkinn.

Krossá umdi ljúflingslag
létt var því að finna vöð
ákváðum þann eina dag
yfirferð í hliðar-röð.

Ekki verður öllum kalt
er á snjónum lenda -
eftirvænting eflir allt
inn við Stóra-Enda.

Angar sýnast - eins og hér -
orðnir rótabenda -
Jóni Agli - eins og mér -
inní Stóra-Enda.

Brekkurnar til beggja handa
- bratt er undir hamraþili -
Þórir og hann Óli standa
yfir Litla-Enda-gili.

Ef ég mætti óskir senda
einni mundi þannig haga:
Steinboginn í Stóra-Enda
standi alla mína daga.

Hér er þessi mikla mynd.
Merkilega gaman
er að finna fjall og tind:
fjórar myndir saman!

Sigmundur er ætíð snar
öruggur við stýri -
Merkurferðin veit ég var
vatnaævintýri.

Allt er hér með einum blæ
og af léttum toga
útí logni, útí snæ
eldaskíðin loga.

Ellefu hún orðin er
og á degi nýjum -
Eggjarnar í blámann ber.
Blikar sól í skýjum.

Er sem stefni allir á
Einhyrning - með spjótið!
Yfir fara þurfum þá
þunga Markarfljótið.

Margur gleðigaukur hló
gaman er á völlunum -
og má líta ögn af snjó
uppá Tindafjöllunum.

Markarfljót á aurum er
oft með þungum hætti
- sá sem ugg í brjósti ber
björgulegri þætti.

Hvernig var nú vistin þeim
vinum sem hér dvöldu
innfrá fyrir öldum tveim
í árferði köldu?

Þið sem eruð allir hér
ævintýri hljótið
af því að nú ætlum vér
yfir Markarfljótið.

Myndatökumaðurinn
má í engu slaka:
strax er fundinn staðurinn
- stokkið svo - að taka.

Yfir skafli er eitt ský
- einhver grasapjatla -
þar sem fossinn fellur í
fagurgerða Katla.

Göngum við á Gunnarsstein
- gamall bálkur vísar.
Rangá af sér ryður ein:
- rosalegir ísar.
|
Desember 1999 - jól - opnun nýrrar gestabókar
hjá GGí:
Allt sem tíminn yfir ók
er í minnislundi:
geymir þessi gestabók
góðra vina fundi.
|
21. júní 1999 - árnaðaróskir:
Fallegt hús á fornu býli fullt með borð og stóla. Ást og hlýja ætíð skýli æsku Smáraskóla.
|
| Maí 1999: Unimog 4004 auglýstur - og seldur:
Fyrst var hann auglýstur:
Stærstu tegund á ég af Unimog til sölu. Ók þó færi allt á kaf - og í veðri svölu.
Síðan var hann seldur. Hann hafði verið kynntur á
vefsíðunni svo þar þurfti að setja upp tilkynningu um að hann væri
seldur:
Upplýsingar yður flyt: Unimog er seldur. Ekur bráðum - og á vit ævintýra heldur.
|
Ragna Freyja Gamalíelsdóttir 80 ára - 28. júní 1998
Ævifleyið áfram ber eilíf tímans gára: Ragna Freyja orðin er áttatíu ára.
|
Annað gildismat
- Þegar kaupmaðurinn missti konuna sína fór hann að endurmeta
stöðuna. Verslunin gekk vel, húsið hans var stórt og nýtt og
einkasonurinn var vel giftur og þau áttu tvö yndisleg börn. Hann
ákvað að gera þeim vel. Hann eftirlét syninum verslunina fyrir
málamyndagreiðslu sem aldrei var raunar innt af hendi og hann bauð
þeim báðar hæðir hússins en flutti sjálfur upp í tvö herbergi
í risinu. Þau voru hjartanlega þakklát og gleðin geislaði af
þeim.
- Þegar árin liðu varð þessi tilvera æ hversdagslegri og þar
kom að gamla manninum fannst veruleg breyting orðin á viðmóti
sonar síns og fjölskyldu hans í sinn garð. Það var orðið engu
líkara en þeim þætti hann vera orðinn eins og niðursetningur á
heimili þeirra. Þetta féll honum afar þungt.
Hann ræddi þetta stundum í trúnaði við fornvin sinn sem þótti
hér komið í vont efni. Eitt sinn þegar þeir hittust sagði vinurinn
að þeir skyldu taka til sinna ráða. Hann hafði tekið með sér eina
milljón í peningum og lét gamla kaupmanninn hafa. "Í kvöld kem
ég í heimsókn til ykkar" sagði hann. "Ég þekki son þinn
vel og hann er vel stæður. Þegar við höfum allir spjallað saman
stutta stund þá ber ég upp erindið sem er á þann veg að ég eigi í
skammtíma erfiðleikum með fjármögnun og bráðvanti eina milljón
strax. Það mun sjálfsagt standa í syni þínum að verða við þeirri
málaleitan að lána mér þá peninga. Þegar það er sýnilega komið
í þrot þá skalt þú koma hógværlega til skjalanna og bjóðast til
að lána mér upphæðina. Eftir viðeigandi gleði mína skaltu fara upp
til þín og dvelja þar dálitla stund en koma svo aftur niður og láta
mig hafa þessa peninga."
Þetta gekk nú eftir. Vinurinn kom í heimsókn og fór fram á
skammtímalán sem sonurinn sá engin ráð til að verða við. Gamli
kaupmaðurinn kom þá til skjalanna og sótti upp í herbergið sitt eina
milljón í peningum sem hann lét vininn hafa.
Eftir þetta gerbreyttist viðhorf sonarins og eiginkonu hans til gamla
mannsins og nú var eins og hann væri aftur orðinn dýrmætur hluti
fjölskyldunnar. Þegar hann dó flýttu þau hjónin sér að kanna
herbergið hans nánar. Þar fundu þau ekkert fémætt - aðeins umslag
sem stílað var til þeirra. Í því var þessi vísa:
- Ég er farinn allra veg
- - ást og hlýju ykkar finn.
- Okkar tíð var yndisleg -
- einkum seinniparturinn.
|
8. apríl 1998 - Aðalbjörg Eir 11 ára
Árin komi, mæt og mörg, milt ég til þín pára bestu óskir, Aðalbjörg, - orðin ellef' ára.
|
18. febrúar 1998 - Pétur Örn 49 ára
Töfra bjóða tímans dyr - tökum þátt og hikum eigi - hamingju- og heillabyr hafir þú á nótt sem degi!
|
|
31. janúar 1998 -
Bragi
Skúlason sextugur. Bragi og Ingunn héldu teiti í Tjarnarbæ við Sauðárkrók þar sem
komu stórt hundrað manns og stóð fram á nótt. Aftast á síðu
gestabókarinnar er þessi vísa:
Pennann minn ég ber á blað - bráðum fer að daga - dýrt ég met að eiga að Ingunni og Braga.
5. febrúar 1998 - var gengið frá VHS-spólunni með afmæli Braga.
Á spólubakinu eru tvær vísur. Önnur segir frá því að í afmæli
Braga kvaddi sér hljóðs Jón, skólastjóri í Hólum, og kom víða
við en sagði m.a. að það mætti ráða af göngulagi Braga hvort hann
væri ánægður með verk sitt:
Jón í Hólum stakk við staf, sté til árs og daga: gæðastaðal greindi af göngulagi Braga.
Með kveðju frá okkur RFr fylgdi þessi
vísa:
Hugur veit af vinastað vestan Tröllaskaga bjart er þeim sem eiga að Ingunni og Braga.
|
21. desember 1997 - Þórir Pétur Pétursson skírður
Vaskur skírður var hann á vetrar-sól-stöðunum - framtíð kemur - fer hann þá fimur á vöðunum.
|
13. desember 1997 - Vísa næsta árs
Vinda tímans oft er undruð aldrei leitar sátta - nú er komið
nítján hundruð níutí'og átta.
|
1. nóvember 1997 - laugardagur hjá GGí
Í vari hjá mömmu eigum við eina stund: ofan í hugann seytlar rósemd og friður, æsingur hjaðnar og glæðist hin létta lund og loks verða áhyggjur allra sem dúnn og fiður.
|
19. okt. 1997 á Ljósafossi hjá Irmu
Blikar á bláa strengi blíðan er endalaust tíbrá um teig og engi - tindrandi fagurt haust.
|
18. október 1997 í matarboði hjá Freyju og Þóri
Fölur er skógur og farið að dimma - fléttast um himininn bjarmar í loga - þá komum við hingað á Klapparstíg 5A í kvöldverð af algjörum hátíðatoga.
|
|
27. júlí 1997 í Berlín - Guinnes-gestabók.
Þar var 40 tonna gestabók sem stefnt var á að verða heimsmetsbók
og fá inni í heimsmetabók Guinnes. Þar bættu RFr og Irma nöfnum
sínum við og þangað fór einnig þessi vísa:
Sá hér orðum eftir tók á því getur klifað að í Guinnes gestabók GÓP-i hefur skrifað.
|
|
19. júlí 1997 * Á Eyrarbakka
Gísli Jakobsson og Johanne voru á Eyrarbakka og einnig Signý dóttir
Jagga og Jon maður hennar. Þar var margt fólk bæði skylt og einnig
tengt Geirakoti þar sem Gísli var í sveit. - Í gestabók:
Stundin er flogin með fögnuð í sinni en framtíðin lengi skal minningu vagga um hópinn af fólki sem hérna var inni er hér komu Gísli og Signý hans Jagga.
|
|
5.-8. júlí 1997 - Guðrún Gísladóttir og GÓP í Norðurlandsreisu
Við skoðuðum minjasafnið á Akureyri:
Það er nú ekkert voða, voða með verðlausa hluti fleiri og fleiri, - mér fannst samt ágætt að mæta og skoða Minjasafnið á Akureyri.
Við gistum í Skúlagarði í bjartri og sólríkri hásumarsnóttinni
og fögrum morgni:
Þessi veröld er af fegurð full, ég fór hér út í logn og sól og starði - það var morgunstund sem gaf mér gull að geta vaknað upp í Skúlagarði.
GGí færði Safnahúsinu á Húsavík myndir úr fórum Herdísar
Jakobsdóttur. Úti voru veður mild og inni gekk hugurinn í bland við
næstliðna öld:
Veröldin er engu lík - öll með blíðuveður, Safnahús á Húsavík hug og auga gleður.
|
|
30. júní 1997 * Kveðja til Jóns úr Vör
Vísa með bókinni Í erli dægranna til Jóns úr Vör.
Textinn allur á blaði festu fremst í bókina Í erli dægranna:
30. júní 1997 - Atvikin hafa gert mér þá gleði að ég hefi
kynnst Jóni úr Vör. Á næstliðnum þrjátíu árum áttum við fyrst
samstarf og síðan góða viðkynningu og hann hefur gefið okkur Rögnu
Freyju nokkrar ljóðabóka sinna. Þessi atvikaflétta veitir okkur
kærkomið tækifæri til að færa honum þessa ljóðabók.
Orðsins jöfur, Jón úr Vör, jafnan höfuð bragsins! Hér í stöfum:
Erill ör, und og töfur dagsins.
|
27. maí 1997 * Jón Sæmundsson 75 ára - vísa í skeyti:
Léttur - og í lyndi glaður, ljúfur sínum frændum öllum. Heill þér, vin og heiðursmaður! Heill þér, Jón frá Krakavöllum!
|
|
27. maí 1997 * Við útför Þóru Jóhönnu Jónsdóttur.
Þóra starfaði mörg ár með RFr við Sérkennslustöð Kópavogs og
líka eitt ár sem við vorum öll saman ásamt Karli Jónssyni í
Hlaðgerðarkoti.
Langt er nú síðan að ljúfast við kvöddumst. Lýsir enn huganum minningasproti er saman við unnum og saman við glöddumst í Sérkennslustöð og í Hlaðgerðarkoti.
|
21. maí 1997 * Íslenski Everest-dagurinn
Þreyttir - en UPPI! á Everest eftir torfæru-sniðglímur - inntu af höndum afrek mest: Einar og Björn og Hallgrímur.
Fýsti að kanna þol og þor þreyja frostið og fjallavindinn klifu æ hærri klettaskor - klifu að lokum upp á tindinn.
Þeir hafa klifið Gríðar-Geir - gætilega með færni slynga - . Án þess að ætla - eiga þeir aðdáun allra Íslendinga.
|
|
18. maí 1997 - Fermingarsystkini GGí hittast á 100 ára afmæli
Eyrarbakkahrepps Liðin eru 63 ár frá fermingardeginum og aðeins eru
eftirlifandi 8 af 16 eða 17 alls. Samkoman var í Gamla-Læknishúsinu.
Ennþá vakir æskugaman aftur er ég orðin(n) krakki. Hingað okkur hóar saman 100 ára Eyrarbakki.
|
12. maí 1997 - Svona fæðist staka:
Hugur nær í niðurlag. Nokkrar myndir vaka. Svo er málið sveigt í hag: Svona fæðist staka!
|
Nokkrar veðurvísur
12. maí - nú tindrar allt - talsvert betra veður: nú er ekki norðan-kalt - nýtt sem skjaldan skeður!
6. maí er sól við hnjúk - sindri landið klæðir - þó er bæði frost og fjúk: Fýkur yfir hæðir.
5. maí 1997
Jökulsins blik er í blænum og blikið er næturkalt og enn er'ann svalur af sænum þótt sólskinið ylji allt.
þessi vísa var ranglega dagsett þann 6. maí og þegar það
uppgötvaðist varð þessi til:
Núna er ég alveg hlessa - ei er tíminn kyrr! Ljóst er að ég orti þessa einum degi fyrr!
|
|
22.3.97 til Karls Jónssonar.
Um traust og lipurt aksturslag Karls Jónssonar - hvað sem á gengur
og hversu stór sem bíllinn/rútan er.
Öryggið er ökusiður - eins þó verði ögn að ralla. Út og suður, upp og niður - enginn ekur á við Kalla.
|
Mars 1997. Fannst endilega að til þyrfti að vera vísa sem endaði
á orðunum: Sjoppurnar við styrkjum seinna
Rennur sól og roðar brúnir rinda hreinna. Sjáum betur, sjáum beinna - sjoppurnar við styrkjum seinna.
|
22. maí 1995 - í matsal Orkustofnunar
Hér sit ég glaður við bitans borð og bregð á pappírinn penna og fæ á örkina orð og orð því orðin úr honum renna.
Hvað gleður mann eins og matarhlað og matinn finn' í sig renna? Ja - ekki neitt - nema besta blað sem bíður hreint - eftir penna.
|
Feb 1994 í En-lausu ferðinni. Veðrið var stórkostlegt á
leiðinni austur sveitir.
Er sem landið okkur greiði allar götur - faðminn breiði:
ökum við í óskaleiði austur yfir Hellisheiði.
1994 í En-lausu ferðinni: Þá
var fagurt í Mýrdalnum
Móður jörð - hvar sólin setur sína geisla, mild og há, -
pelli býr og prýðir betur: Pétursey er fjólublá!
* Feb 1994 í En-lausu ferðinni -
í gestabók hússins í Miklafelli
Við ókum hingað í einu rúsi yfir harða velli og áðum í þessu úrvalshúsi undir Miklafelli.
Feb 1994 í En-lausu ferðinni. Þetta
varð síðar miðerindi í afmæliskveðjum til ferðafélaga - og að lokum í Far-roðanum.
Sjá roðann í austri! hann brýtur sér braut! boðar fullkominn öræfadag! Hvílík fegurð og dýrð sem oss fellur í skaut! Hvílík fylling í ævinnar lag! Og litflóðið háa um ljóshvolfin blá sem ljómar nú Íslandi á!
|
5.9.93 - ekið niður Fimmvörðuháls eftir för frá Lakalandi á
Mýrdalsjökul og þaðan yfir á Eyjafjallajökul.
Hér er vörðuð braut um börð - blæs á svörðinn, frjálsi, - og úr hörðu er hún gjörð á Fimmvörðuhálsi.
|
5.9.93 - Þorsteinn Sólheimabóndi veitti okkur leiðsögn á
Mýrdalsjökli en þar var þoka efst uppi.
Nú óku þeir kaldir um skriðjökulsker - af skelfingu sat ég og góndi - en sleppi ég lifandi þakka ég þér, Þorsteinn minn, Sólheimabóndi.
|
Gíslavinafélagið fór á Skeiðarársand á Skírdag vorið 1997 í
einmuna veðri.
Ánægð, glöð og einnig þreytt, augun eins og stjörnur skinu - Skeiðarförin gekk nú greitt hjá Gíslavinafélaginu.
|
4. mars 1997 - Seinniparturinn er svo ágætur að maður eiginlega
verður að búa til á hann fyrripart
Margur afar orðstæltur með andans sáld heitir áður hagmæltur en höfuðskáld.
|
18. janúar 1997 á Þórsmörk - vetrarferðin
Öndin kemst á æðra stig - yndi býr í sinni - hamingjurnar heiðra mig hér á Þórsmörkinni.
|
16. febrúar 1997 - Skírð Þórey Kristinsdóttir Sigursveinssonar
Snertir alla snótin björt snemma broshýr þóttir þraut að gleði þú færð gjört, Þórey Kristinsdóttir.
|
5. febrúar 1997 - Ásdís Guðjónsdóttir
Ásdís fertug! - snjöll og börnum blíð og bjarminn hlýr - af Dalbraut færðu ósk um úrvalstíð og ævintýr.
|
9. des. 1996 - Voða-vísur:
Við mig hefur viljað loða - vart þó talist geti skaði - að ég hefi verið voða veikur fyrir auðu blaði.
Í desember er dagur voða dimmur mestanparts en mér væri skemmt að skoða Skeiðará í mars.
|
4. des. 1996 -GÓP+GGí+Sigr.Ásm.+Eva í Selfoss-Eyrarbakki-Rvík að
vitja Sigurðar á Sjúkrahúsinu á Selfossi. Inni á Kaffi Krús:
Þett'er gott og gamalt hús og gleðina ég með mér ber. Ég er inná Kaffi Krús og kominn fjórði desember.
Í Gamla læknishúsinu á Eyrarbakka: (Veðrið hafði verið eindæma
fagurt)
Yfir háls og yfir heiði - yfir fjallagoðann -
ökum við í óskaleiði inn í morgunroðann.
|
21. september 1996 - við útför Hreiðars Jónssonar bónda í
Árkvörn (19.01.1918 - 14.09.1996)
Þegar lít ég þunda jörð þeysa sé ég Hreiðar yfir hæstu himinskörð - hefur tvo til reiðar.
|
1996 - Gleðilegir áfangar!
Það er alveg yndislegt áfanga að fagna. Ykkur gefist gleðilegt!
GÓP og Ragna.
|
Til Litlu Kaffistofunnar
Blikar ljós er ber mig nær - börnin staðinn lofa - hvíldarunað lúnum ljær Litla Kaffistofa.
|
Maí 1996 - við útför Sigríðar Sigurðardóttur
Afl þitt og orku sóttir í Eyjafjallabrag Sigríður Sigurðardóttir sem við kveðjum í dag - sem ég kveð í dag.
|
13. apríl 1996 - Sigurður Gíslason áttræður
- Írskt þjóðlag: Wild Rover
Hann Sigurður Gíslason áttræður er því apríl er kominn og vorið er hér og ömmubörn leiðast í læknisins hús og lyfta hér glösum - þó í þeim sé djús --
segja: Hæ! hó! Siggi! * * * hér er veisla og fjör! Nú dokar'ún, stundin, á stanslausri för.
|
3.4.96 - ...
Tifar fjólan fjaðurmild, fjöllin höfuð hneigja, sjá - hér er hún Íris Hild - ássins huldumeyja.
|
22. desember 1995 GÓP, GGí og Sigríður Ásmundsdóttir í
Eyrarbakka- og Stokkseyrarferð.
Gerð var ferð af þessum þrim - þokkinn blikar, forni. Morgunskjanna ber á brim bjart á vetrarmorgni.
|
4. október - við Ljósafoss
Þó það virðist vera flaustur veit ég að það er fjarska gott að fara austur fjórða október.
|
GÓP - 2. september 1995: Samúel Guðmundsson 60
Fórum við háan fjallaveg í fegursta mánaskini! Myndin er eftirminnileg: margt var um trausta vini með inngripin örugg og elskuleg. Einum af þessu kyni: sextugum kveðju sendi eg Samúel Guðmundssyni
|
28. ágúst 1995 - á fyrsta kennarafundi í MK
Kjörin eru orðin skar aurinn upp er urinn þó af öllu verstur var verkfallsárangurinn.
|
22. ágúst 1995 - Sverrir Hilmarsson fertugur.
- Vinnudagur á Eyrarbakka við að slá upp stillönsum. Til staðar
eru Sverrir, Steinunn og GÓP.
Léttur er þinn lipri hæll, leiftra augun hlýju. Alla ævi sértu sæll! Sverrir, fjörutíu.
|
12. ágúst 1995 - Fyrripartur á botn!
Fer minn óður fyrir bí fremur óhaglega stuðlum þó hún stendur í, stakan ódauðlega.
|
30. júlí 1995 - í Eyrarbakkaferð
Enn er heimsókn austur gerð - eflist ættarkraftur við Eyrarbakkaökuferð og í bæinn aftur.
|
|
22. júlí 1995 - Sumarferðin á Njáluslóðir
Einmuna veður
Laugardaginn 22. júlí 1995 í logni og glaða sólskini var haldið austur
úr Reykjavík og sem leið liggur eftir gamla veginum um Svínahraun. Hann
var fyrst lagður 1877-8 og síðan lagaður og endurbættur á sama stað en
nú er hann víða orðinn harla grýttur. Við gengum um Kolviðarhólinn í
stafalogni með sól á heiðum himni. Þó skyggndumst við árangurslaust
eftir Búasteininum í fjallinu norður frá Hólnum því ekkert okkar þekkti
hann - þótt hann væri bara rétt vinstra megin við slóðina upp í
Yxnaskarðið - ofan við spýtnabrakið úr skíðastökkpallinum.
Skein yfir landi sól á sumarvegi
Stundum hefur verið haft á orði að höfundar margra Íslendingasagna
hafi ekki aðeins klætt persónur sínar litklæðum við hversdagsstörf
heldur einnig gætt þess að hafa alltaf úrvals veður - rétt eins var
þennan bjarta dag:
Frammá skjómans skæru tíð
skarpur hjó menn víða,
sólarljómi lék um hlíð,
- logn og rjómablíða.
og silfurbláan Eyjafjallatind
Jökullinn skartaði sínu fegursta og taðan angaði þegar við áðum við
Hlíðarendakirkju:
Tær er veröld til að sjá
tifar urt í blænum.
Hugarsjónum horft er frá
Hlíðarendabænum.
Síðan gleymdum við okkur um stund í litríkum viðburðum Njálu.
Réttrar sjónar kelda
Í Rauðaskriðum og á Bergþórshvoli var kominn nokkur andvari en
útsýnið ógleymanlegt upp til fjallanna og út til Vestmannaeyja. Þaðan
var haldið um Hvolsvöll að Keldum á Rangárvöllum þar sem menn böðuðu
augu sín í Maríu-brunni sem veitir öllum rétta sýn:
Ef að týnist rétta rýn
ráðasón ég melda:
bætir rýn og réttir sýn
réttrar sjónar kelda.
Okkur dvaldist í góða veðrinu á Keldum og sungum við undirspil í
kirkjunni. Síðan héldum við vestur yfir Rangárvelli, fórum hjá
Gunnarsholti og að Þingskálum. Þar gengum við um búðir. Þá bar svo við
að reiðmenn leituðu vaðs og fóru yfir Rangá og við gátum séð fyrir okkur
hvernig þeir Gunnar og Njáll höfðu þar verið á mannþingi:
Garpur knár um garða fer
Gunnar sá hinn slyngi -
fortíð þá með okkur er
á Þingskálaþingi.
|
1. júlí 1995 - Í Garðabæjarlaug
Um mig leika löðrin hlý - líkt er sem ég dotti - ljómar dagsins lúxus í laugar heita potti.
|
21. júní 1995 - hugsað til gönguferðar um Rvík um miðnætti 17.
júní með BBP
Endurbæta alltaf má Íslendingabraginn þó að allir þekkist á þjóðhátíðardaginn.
|
12. júní 1995 - Við útför Maríu Þorsteinsdóttur
Þó nú á kveðjur kunni að koma nokkurt hlé í endurminningunni eg áfram til þín sé.
|
Maí 1995
Æða-fullin hæst á hoppa hjartans bullu - hring ævi-gullin er að toppa úrvals fullnæging.
|
14. maí 1995 - Í Eyrarbakkaferð
Alltaf eflist - eins og sérð - ættar önd og kraftur við Eyrarbakkaökuferð og til baka aftur.
|
6. maí 1995 - Fyrsti laugardagur
Senn kemur grunurinn græni gróðurinn vaknar þá varmur er andblærinn væni - vorið er brostið á.
|
30. apríl 1995 - Farið til Siglufjarðar í fermingu Karls
Hersteinssonar
Í indælisveðri einn apríldag ókum við bjarta vorsins jörð og kvöldsólin merlaði ljóð og lag og liti norður við Siglufjörð.
Sól hófst úr ægi yfir jörð - allt var með hægum vindum - morgunninn sindraði Siglufjörð sveipaðan fjallatindum.
Og meðan gáran bærði bát og blæinn kyrrði og kyrrði fermd voru börnin keik og kát í kirkju á Siglufirði.
|
mars/apríl 1995: Lind fær nýtt rúm
Vænum litum vefur sig vor í björtu húmi - lán og gæfa ljómar þig, Lind, í þessu rúmi.
|
11. febrúar 1995 - Sigríður Sigurðardóttir fimmtug
Afl þitt og orku sóttir í Eyjafjallabrag Sigríður Sigurðardóttir sem ert fimmtug í dag.
|
25. janúar 1995 - Afmælisteiti í kennarakaffi - Ingólfur A.
Þorkelsson 70 ára 23. jan sl.
Terta mikil tætt í spað - teiti gott við borðin - og tilefnið er - auðvitað - að Ingólfur er
orðinn.
|
Janúar 1995:
Segi ég í jólarími: ég var ósköp latur - heimskulegur háttatími heimskulegur matur.
Vinda tímans oft er undruð - áfram veltur grimm - nú er komið nítján hundruð níutíog fimm.
|
Desember 1994 - svar til Magnúsar Kr. Jónssonar
Þegar stefið frá mér fer finnst mér rétt að lýsa yfir því að þetta er þrítug jólavísa:
Ganga jól um garð og hól gleðja sjóla skjaldar. Nýjárssól við norðurpól næturkjóla faldar.
Þakka styrk - og það að fá þel af óða-steðja. Hérna kemur, frænda frá, friðarjólakveðja.
|
11. nóvember 1994
GÓP-fréttir á einum stað og auðvitað til þess að ef að þú vilt eiga blað að þú getir tekið það.
|
12. október 1994 - Til Vikars með ferðabók Nansen:
Þessi bindi, þykk og blá, þóttu forðum skólinn Nansen sjálfur segir frá svaðilför á Pólinn.
|
16. ágúst 1994 - Leiðbeining til sundlaugagesta:
Í sturtu skil ég skítinn minn og skrúbba þegar ég fer inn þvæ svo af mér laugarlút líka þegar ég fer út.
|
6. ágúst 1994 - Fyrsti laugardagur og Sigríður Ásmundsdóttir
75-ára
Hún hefur brosmild lagt sitt lið ljómar af henni þróttur - sætustu kveðjur sendum við Sigríði Ásmundsdóttur.
|
5. ágúst 1994 - Fæddur Ágúst Örn í Odense kl. 06.38
Uggs í heimi er það vörn og óskahugur glæddur að heillakallinn Ágúst Örn Ólafsson er fæddur.
|
17. júní 1994 - kl. 21 * Málræktarvísa Stöðvar-2 og Bylgjunnar
- og Málræktarsjóðs: Fyrri partur frá þeim
Á Þingvöllum mun þjóðin fá þjóðhátíð að fagna. Ekki mun við Öxará Íslandsklukkan þagna.
Pára verð ég Post Scriptum pergamentið á anda mínum upplyftum ögn að létta á:
Stóð eg við Öxará eina skamma lífsins stund ég kom þá - og þú komst þá á þjóðhátíðarfund!
Var í brjósti vonin skær - virt og glæst var efndin! - Þessar kæru þakkir fær Þjóðhátíðarnefndin.
|
Júlí 1994 - látin tengdamóðir Böðvars Bjarka
Þegar ljárinn leggur strá - lífsins skárar vegu - ég við gráti aðeins á orðin fátæklegu.
|
Maí 1994
Stundum er í heimi hart - hjálpin dugar skemur - þá er orðið ekki margt er að gagni kemur.
|
María Þorsteinsdóttir áttræð:
Tímabil áttu tvenn og þrenn talhrein og einbeitt þóttir - megirðu gleðjast mörg ár enn María Þorsteinsdóttir.
Í DV var María ættfærð til margra presta:
Ættina prýðir prestaher - prentað í DV - ei ég ýki - María glögg og glettin er gulltrygg inn í himnaríki
|
21. apríl 1994 - Annar sumardagur
Vetur hopa verður frá vors því kveðju segi: ykkur gleði óska á öðrum sumardegi.
|
20. apríl 1994 - Kópamessudagur. Á tölvubraut er Elvar Níelsson:
Sólin björt og glettin fer um geislageiminn: - Elvar - sem var áður dreyminn - er að fara út í heiminn.
Allar ferðir upphefjast á andartaki er þá góður gleðivaki að geyma það á almanaki.
|
Mars 1994: Þreytandi aðstaða á vinnuherbergi kennara:
Aðstaðan er ei svo ill að ekki nái vana en það mætti ef til vill endurbæta hana.
16.-17. apríl var aðstaðan betrumbætt - a.m.k. til bráðabirgða:
Hér er orðið inni stætt - allt í þekku standi - aðstaðan var endurbætt og er viðunandi.
|
Verður lokum verka náð? Upp skrifað 8. apríl 1994
Verður lokum verka náð? víst mun tími ráða - ég kann ekkert annað ráð en að kýla á'ða.
Klósettvísan - sem mætti gjarnan hanga uppi á
mörgu almenningsklósettinu:
Öllum setum upp þú skalt ætíð lyfta, góði, og ef þú pissar út um allt ertu bara SÓÐI.
Okkar menn við kjötkatlana
Liðsmenn í bláu og líka vens- laðir á jötuna hnappast við rökin að nú er að verða síðasti sjens því sjálfstæðismenn er'að missa tökin
|
30. nóvember 1993 * Á rissblaði
Ráð er að þakka - rétt er það - risspappír Jóna skilaði en enginn óskaði eftir að athafna sig á rissblaði
þessvegna hef ég þetta ort þó ekki sé það kvæði en risspappírinn er orðinn kort - án þess að það til stæði.
Kemur hér loksins stakan stök - stendur á fornum grunni: í henni finna allir rök og eru á meiningunni:
Dagsins erill eykur brun- ið í streitukófi - en alltaf er nú afslöppun yfirseta í prófi.
|
30. ágúst 1993
Æskusindur er um hind ýfir vindur lokka þetta er Lind við lífsins tind ljúf með yndisþokka.
|
Auka - 'vísa Íslendinga' - 22. mars 1991
Við höfum fundið fjör og gleði saman við fögnuð bæði hals og fljóðs og pars sem hérna þótti þrumustuð og gaman á þessum tuttugast'a og öðrum mars - og nú er lýkur ljúfum vinafundi við lítum björtum augum fram á veg eins og á morgni geisli sól á sundi er setur nýjan dag - svo elskuleg!
|
|
26. maí 1990 - MK-söngurinn.
Lag:
Sjung om studentens lyckliga dag, låtom oss frojdas i ungdommens vår - Än klappar hjärtat med friska slag! och den ljusnande framtid er vår.
Inga stormar än i vårt sinne bo, hoppet är vår vän, vi dess löften tro, när vi knyta forbund i den lund, där de härliga lagrarna gro: Hurra!
* * * * * * * * * * * * * * * *
Allt er svo bjart þennan bláfagra dag blikandi framtíð - í æskunnar óði! Alheimur skartar með skínandi brag - skundum djarft fram á blikandi slóð!
Heill Menntaskólanum í Kópavogi! Heill! Menntaskólanum! MK! Þar sem æskan var leikur og ástin kom senn! Endurómar í hjartanu enn! MK! Þar sem við öll urðum menn! Húrra!
|
20. des. 1989.
Enn er hjá Rannveigu og Ingólfi kennarapartí - sem ömmunni vinsælu úr Dölunum hefði þótt margt í. Samkvæmið byrjar um fimm að hefðbundnum hætti og hingað var öllum tjáð að koma ætti.
Í Hlaðbrekku fjórtán er alltaf mjúkt að mæta - mér finnst það lyfta geði og andann bæta að eiga hér inni - þegar aftur er skólinn - eina - tvær stundir . . til þess að glæða jólin.
Hér sé ég Þorstein og Jóhann og hér sé ég GÓPinn - já, hér sé ég mestallan MK-kennarahópinn - dasaðan ögn - en öll hefur önnin blessast og allir því byrjaðir strax að braggast og hressast.
Á góðri stundu er ljúft að líta til baka og láta hugann við samstarfið gæla og vaka frá önninni fjöldamargs er að minnast og geyma en margt er það raunar líka sem best er að gleyma.
Á jólatrénu logar mörg ljósaperan og leiftrar hlýleik útyfir veraldarfrerann skiptir þá minna máli hjá konum og köllum að kannski hefur þar aldrei logað á öllum.
Í þessari vísu þakka ég önnina alla allt sem er gengið - með kosti sína og galla - GLEÐILEG JÓLIN og gangi ykkur allt í haginn og gifturíkan hvern komandi framtíðardaginn.
Svo hittumst við, félagar, öll eftir áramót aftur eins og því stýri allsráðandi kraftur - já, rétt eins og í okkur magnaður máttur togi að Menntaskólanum í Kópavogi.
Nú er loksins komið að endingu óðsins - en ég ætl'a að stýra merkingu viðtökuflóðsins: Fyrir mér viðstaddir kannski ögn klappa megu en klappa svo húslof þeim Ingólfi og Rannveigu!
|
Laugard. 22. október 1988 (Kl:14.53).
Prúða og indæla Una með ástúð og innri funa nú áttu afmælisdag! Ævin er afmælaruna og af því fer mig að gruna og yrki í afmælisbrag í skóla þú skjótt munir bruna og skrifa og lesa og muna - skoppi þér allt í hag!
|
Þriðjud. 13. september 1988 (Kl:22.11).
Þið, sem fylktuð til fjalla og fóruð um hlíðar og hjalla þar sem orkan og æðri kraftur uppfyllir líkamann aftur skriður klifuð og kletta klár - og án þess að detta -, Jóhann, Una og Anna - eruð nú komin til manna.
|
Jólakveðja 1987
Hækkar á himni sólin hér upp við norðurpólinn fer hún um stjörnustólinn og styttir skammdegiskjólinn
Rauð eru byggðu bólin bjarmar á þökin og hólinn - snúast hátíðahjólin - hafið það gott um jólin!
|
Jólakveðja 1986.
Ár eftir ár eftir ár ... verður það erfiðara að láta töfraloga æskujólanna tendra sálina. Þá eru börnin himnasending!
Þeirra jólaævintýri kemur svífandi á töfraskýi kl. 6 á aðfangadagskvöld og umvefur þau.
Þessir töfraálfar ævintýrisins! Eftirvænting þeirra umvefur okkur og glæðir jólalog í brjóstið - ár eftir ár eftir ár ...
|
Úr vísum frá maí 1983 - nefndir eru kennarar við MK
Upp ég stend og vísu vel - vona að fyrtist enginn - Þorstein, formann, fyrstan tel, fræða og lista drenginn.
Ingólf nefna milding má - minnir á Seif að ráðum: Ólympos hann er að fá - Aþena kemur bráðum.
Kennir, togar, áfram ýtir ungu hjörðinni: ákveðin sér Ásdís flýtir eftir jörðinni.
Einörð þykir Ingibjörg svo allir fylgja þema - sífellt hress og aldrei örg: yndi MK-nema.
Jóhann háa hefur raust hæst á bláu fjalli fer um lá og lífsins naust - ljúfi, dáði, snjalli.
Hittir í mark með hugmynd snjallri - hálfri - eða allri! Fullur af útþrá - fullur af von - Finnbogi Rútur Þormóðsson.
Sólveig okkar er á línum allra landa og glæðir skólann fimum, fínum, frönskum anda.
Kanadiski, norski, þýski, enski, franski Íslendingur .. við þekkjum öll að þessi halur - það er hann Alan Réttidalur.
Einörð mjög á allan veg - ætíð röskleg þóttir, geysi snjöll og gæfuleg Guðrún Helgadóttir.
Sigurður fer oft á stjá út að taka myndir - á við marga aðra þrjá er á fjallatindi.
Þegar djúpt úr ausu er illt að súpa kálið - Þórður kemur, Þórður sér, Þórður leysir málið.
|
24. júlí 1976 -
Þótt sé hverfull heimurinn hver sinn skerf þar hlýtur. Besti erfiseimurinn er að hverfa nýtur.
|
Pegasus (gömul vísa)
Einn er léttur upp við klett undir fjalla stalli eykur nettan andans sprett óðsins snjalla kalli.
|
1970 - um skjótferð í Jökulheima
Á þessum árum fóru minni bílar yfir Tungnaá á bílakláfnum á
Haldi og óku norðan við Þórisvatn, um Veiðivatnahraun að
Þröskuldi undir Lýsingi og svo inn með Ljósufjöllum í Jökulheima.
Þetta þótti ágætlega gert á 8 klst. Stórir bílar gátu farið
Hófsvað og verið fljótari. Samt þótti GÓP aldeilis ótrúlegt
þegar það fréttist að Guðmundur Jónasson hefði ekið úr
Reykjavík um Hófsvað í Jökulheima á 4 klst og 15 mínútum. Þar af
varð til þessi vísa:
Lítið er nú landið vort og létt um það að streyma: á fjórum tímum fór - og kort - fram í Jökulheima.
|
30. apríl 1969
Yfirseta í Landsprófi.
Íslensk ritgerð með ýmsum valmöguleikum
- og auk þess var gefið eitt auka-ritgerðarverkefni:
Penninn minn
Oft ertu, penninn minn, geislandi glaður og grípur til skeiðs yfir örkina hálfa, töfrar fram veraldir vinnandi hraður, vindana skekur og kyssir álfa, blómlífsins nýtur er bergmálið þýtur og bláheiðið hvíta þér lýtur.
En stundum, þá veröld er villt og flúin, verðurðu tjáningarmátunum rúinn, illur í skapi og öfugsnúinn og engu kemur á blað. Þótt sólflóðið þegnunum þráðu árni - þá ertu bara úr plasti og járni og þá er ei furða mér þyki og sárni þegar þú dratthalast ekki af stað, - og þú um það!
|
|
Mars 1968
Gömul þula höfð eftir Höllu Jónsdóttur í Árkvörn
með nöfnum fossanna í Fossum sem er fossasvæði vestan við
Bleiksárgil í Fljótshlíð.
Sídjarfur innstur sýnist mér svo Búþarfur eftir fer, Gendill er hér geysistór. Gumphaus ofan fyrir klettinn fór. Spýtingur jafnan spjarar sig spyr hann Brúðu: Viltu mig? Rófulangur er ræfilsgrey. Rekkar nefna Leginmey. Meyjarmiga er mikið pen, má svo nefna Þriggja spen (Þríspen). Næturótti svo nafnið ber og nú eru upptaldir lækir hér.
GÓP endurskrifar þuluna:
Sídjarfur byrjar, Búþarfur kyrjar. Gendill er þriðji þó Gumphaus ei styðji. Spýtingur bunar og Brúðulag dunar. Rófu- er langur Leginmeyjar-angur. Meyjarmiga er oft sén míga á Þríspen þá Næturótti blossar. Nefndir eru Fossar.
|
Des. 1965 - Jökulheimar
Jólakveðja til
Péturs Sumarliðasonar, Jökulheimabónda:
Ljósufjöll og Gjáfjöll, Gíghóll og Bláfjöll. Gnapi, Rati, Mosaskeggur, Garpur Fitjar, Skálaveggur, Tungnaá og Breiðibakur, Botnaver og Jökulkrókur. Nýjafellið, Fóstra, Dór fylla Jökulheima kór.
Fleygiskvísl og Félagar. Flæðir Stak á sandi þar. Heimabunga, Heimalind, Hamar, Systur, Jökulmynd. - - Standa há í fjarska fjöll. Fögnum næsta sumri öll.
|
1964 -
Við höfum sofið Eldgjá í, átt þar skamma viðdvöl því að um Sveinstind leiðin lá, Langasjó og Tungnaá.
|
Frá 7. júní 1961:
Handa fljóði fann ég óð fram úr skjóðu minni: mærin rjóða fimbulflóð fékk af ljóðmerinni.
|