GÓP-vísur um ofurveruplatið - og fleira
GÓP-fréttir * Kom inn! * GOP-visur * Ofurveruplatið

Sjá einnig

Fimmtudagur 7. jan. 2010 - Forsetinn er maður ársins 2010

Þjóðkjör verður að gefa kjósendum skýra kosti. Ef JÁ - þá þetta. Ef NEI - þá þetta.

Ég sá ekki NEI-kostinn og taldi því að ekki kæmi til þjóðkjörs. Ég hafði hins vegar fulla trú á forsetanum sem hefur staðið sig frábærlega.

Gaman væri að hlusta á þann sem segðist mundu hafa hagað sér öðruvísi á næstliðnum árum í forsetans sporum - vel að merkja - að því gefnu að sá hinn sami hefði til að bera sömu góðu tengsl og afburða færni í samskiptum við stjórnendur og áhrifamenn annarra þjóða. Vissulega gæti hann þó hafa verið í vildarliði þáverandi seðlabankastjóra og því fengið réttar upplýsingar um stöðu bankanna en ekki verið mataður á blekkingum frá fyrstu hendi í bankanum og ríkisstjórn. Það er nefnilega af sú forna tíð þegar fastráðnir ríkisstarfsmenn þurftu að sverja forseta lýðveldisins hollustueið.

Vísun forsetans til ákvörðunar þjóðarinnar er að vísu með gráan NEI-kost - en hefur afar margar góðar afleiðingar.

  • Fjórðungur atkvæðisbærra skoraði á forsetann. Það er gott að unnt er að koma almannavilja á framfæri við forsetann sem er eina vörn hins ókosna. Afnám þess kosts yrði kolfelld í þjóðkjöri.
  • Á alþingi hefur nær helmingur þingmanna hamast með svigurmælum á stjórninni og fullyrt um vanhæfi hennar til alls. Stjórnin sé svikari og gangi erlendra erinda. Engin orð í úldnustu ruslakistu íslenskunnar voru ónotuð í þeim málflutningi. Meira að segja fundust talsmenn annars stjórnarflokksins í þessum hópi. Það var því eðlilegt að stuðningsmenn þessara talsmanna væru tilbúnir að fylgja heitingunum eftir með því að skrifa undir áskorun að vísa málinu til þjóðkjörs.
  • Forsetinn vísaði málinu til þjóðkjörs.
  • Nú hefur tónninn í stjórnarandstöðunni snúist við. Nú segir hún að auðvitað hafi aldrei annað staðið til en að greiða ísbjörgina Icesafe. Nú er öllum ljóst að hver mótmælandi á þingi hefur tekið þátt í samæfðu leikriti flokki sínum og persónu sinni til framdráttar en samt sem áður vonast til að lögin yrðu samþykkt.
  • Nú vill stjórnarandstaðan bjóða fram krafta sína til að leysa málið. Hvaða lausn er ófundin? Lögin voru sett til að undirstrika að ísbjörgin yrði greidd.
  • Þjóðarpúlsinn hefur vaknað af dvala og sá meirihluti gegn lögunum sem fyrir var er nú orðin að engu. Ljóst er að lögin verða samþykkt í þjóðkjörinu.
  • Koma mum í ljós að þjóðin áttar sig á því að starf í stjórnarandstöðu er ekki starf fyrir þjóðina. Stjórnarandstaða starfar einungis fyrir tvo aðila: flokkinn sinn - að hann fá fleiri atkvæði - og persónu sína - að hún nái endurkjöri. Þegar ekki er unnt að hreykja sér af eigin ágæti er eina leiðin að rægja þá sem stjórna. Algjör undantekning er að finna á þingi einstakling sem ætíð hugsar fyrst um þjóðarhag.
  • Það mun fara svo sem forsetinn ályktar: Þjóðin kemur samhentari út úr þjóðkjörinu.
  • Því miður mun flokkshyggjan og sjálfshyggjan samt ekki dala hjá þingmönnum og áfram verður það tálsýn að unnt sé að fá þá til að starfa saman að þjóðarhag.
  • Forsetinn er maður ársins 2010.
24. okt. 2009  - Heiðarleg og afdráttarlaus játning í leiðara Morgunblaðsins

Forsætisráðherra Íslands árin 1991 - 2004 skrifar þennan merkilega texta laugardaginn 24. október árið 2009. Þá hefur Íslendingum verið það dagljóst í heilt ár að ótrúlega hörmulega hefur tekist til með fjárhagslega yfirsýn stjórnvalda næstliðinn áratug. Gerð voru fjölmörg mistök en ráðamenn þjóðarinnar litu í önnur horn á ögurstundum.

Í þessum leiðara Morgunblaðsins segir sá sem þá sat í hásæti ríkisins að um hans hendur hafi allir fjármálaþræðir runnið og ekkert verið aðhafst sem skipti þjóðina meginmáli annað en það sem hann ákvað. Þetta er sannarlega heiðarleg og afdráttarlaus játning á eigi afglöpum.

Þó er athyglisvert að í lokin er hnýtt í eftirkomandi forsætisráðherra sem hagar málum eins og hann telji sig ekki öllum öðrum snjallari í meðferð fjármála. Það liggur við að sá grunur vakni að játning hins seka hafi bomsast út úr honum - alveg óvart.

Textinn virkar afvega -
erum við nú með - hér:
hann sem iðrast ærlega -
eða blaðrar af sér?

Sunnudagur 26. apríl 2009 - þegar atkvæðin hafa skilað sér úr kjörkössunum

Um siðferðisbresti
Ríkissjóður geymir mikið fé. Það er mitt fé. Helst mundi ég ráðstafa því sjálfur. Sú leið er fáum fær. Við hin leitum trausts fulltrúa til verksins. Gott er að vita að hann er verksamur og þekkir til starfsins en mestu skiptir hvort hann er traustsins verður. Eru vísbendingar um að hann gefi kost á sér til að hagnast sjálfur? Er fjölskyldufyrirtæki að gera hann út? Gengur hann erinda hópa, flokka eða fyrirtækja? Hefur hann orðið uppvís að viðtöku fjár á eigin reikning?

Allir vita að faguryrði slíks manns eru aðeins hluti af blekkingaleik. Ekkert gerir hann hæfan nema hann opni alla sína fjármálasögu. Detti hann í að heimta að umræðan skuli aðeins snúa að framtíðinni og komandi verkefnum er okkur ljóst að hann hefur ósagðar áætlanir sem ekki eru vænlegar fyrir heildina. Komist hann til áhrifa mun hann að lokum segja - því miður, ég vildi vel en raunveruleikinn tók af mér völdin - og - já - ég varð sjálfur ríkur - alveg óvart - og auðvitað fengu vinir mínir og börnin mín æðstu stöður samfélagsins - ekki eiga þau að gjalda mín. 

Erfitt er að vita upp á hár að einstaklingur eða stjórnmálaflokkur hafi óhreint mjöl í pokanum. Til þess þarf maður að vita með vissu að hann hafi tekið við peningum frá aðila sem hefur hagsmuni af veru hans í aðkepptri stöðu. Það er viðtaka fjárins sem er samningurinn. Umfram það er engra orða þörf.

Tvo kosti á sá sem staðinn er að viðtöku fjár án þess að upplýsa um það. Hann getur lagt öll spil á borðið og reynt hið ómögulega - að sanna að hvergi hafi málum þokað í hag þess sem greiddi og að það hafi ekki staðið til. Hinn kosturinn er að sjá ekki að hér er um siðferðisbrest að ræða.

Þegar litið er yfir siðferðisbresti stjórnmálamanna og sérstaklega ráðherra næstliðinna áratuga kemur skilmerkilega í ljós að enginn veit um siðferðisþroska þess einstaklings sem valinn er til fyrirsvars. Að lokum er enginn kostur á réttlátri málsmeðferð. Sá einn á framgang sem kemst í vinahópinn.

Við lifum í samfélagi sem ekki kennir þegnum sínum viðmiðunarreglur siðferðisins. Þetta á raunar við um öll þróuð samfélög. Siðferðisþroskinn fær á sig sömu dulúðina og trúmálin og verður að helgidómi sem öðrum komi ekki við. Í raunveruleikanum er siðferðisþroski leiðtogans mikilvægastur og þar eiga fjölmiðlar að fara í saumana.

Það sem við viljum er traustur maður sem fórnar sér í það verkefni að leiða samfélagið til vegar og gleði. Mín vegna þarf ekki að spyrja hann hvað hann muni gera ef þetta og þá þetta og þá kannski þetta gerist. Hann mun áreiðanlega finna aðra trausta sér til aðstoðar þegar að óvæntu kemur.

Þannig eru ferðir.

Kjörið loksins komst á blað
- koðnar mörgum brosið.
Það er ljóst af þessu hvað
þjóðin hefur kosið.

Mánudagur 26. janúar 2008 - Forsetinn truflaði valdhringinn

Forsetinn truflaði sjálfskipaða eigendur íslenska valdsins. Benti á að til þingrofs þarf undirskrift og eftirfylgd forsetans sem setur og slítur þingum. Þingrof hafa verið misnotkunar-trompás í ermi forsætisráðherra. Með þeim jóker gat hann komist hjá að lenda í minnihluta á þingi. Gat enn mulið undir eigin flokk og komið í veg fyrir aðra kosti. Forsetinn færði þá valdamisnotkun úr seiling uppgjafa forsætisráðherra framtíðarinnar ef annar þingmeirihluti er reiðubúinn til stjórnar.

Forseti Íslands á almanna lof
og aðdáun sanna:
aftekur misnotuð alþingisrof
undanhaldsmanna.

Mánudagur 26. janúar 2008 - kl. 16:25

Mikill brestur buldi við
bergmálar til fjalla
endurómar rindarið:
ríkisstjórn að falla.

Auravina argalið
óttaslegið stynur:
allt fer hér á aðra hlið
ef vort kerfi hrynur.

Auralausir eiga stef:
endast mun vor skerfur -
land mun blómstra aftur ef
auraliðið hverfur.

Sunnudagur 28. des. 2008 - Davíð Þór drepur sig úr lygamöntrudróma

Bakþankar Fréttablaðsins 7. des. 2008 voru stór áfangi í ferli ritarans. Hann gerði eftirfarandi grein fyrir hugtakinu Lygamantra.

1. Mantra er smíð tungumálsins.
"Tungumálið er sennilega hættulegasta vopnið sem maðurinn hefur fundið upp. Með því virðist nefnilega vera hægt að svipta venjulegt fólk heilbrigðri skynsemi og telja því trú um nánast hvað sem er."

2. Möntruvirknin er (a) algildislegur búningur, (b) spekiyrði og (c) endurtekning.
"Ef setning er sett fram í formi algildra sanninda eða spekiyrða og þulin nógu oft fer fólk sjálfkrafa að álíta hana rétta. Gildir þá einu hve miklum dómadags þvættingi hefur verið komið fyrir í henni."

3. Lygamöntrudæmi:
"Ástæða þess að ég er að vekja máls á þessu er að um þessar mundir virðist mér enn ein lygamantran af þessu tagi vera að fara á kreik. Sú setning hlýtur auðvitað að ofbjóða réttlætiskennd hvers manns og nísta hann í raunveruleikaskynið. Því má þessi blekking alls ekki verða að viðurkenndri staðreynd í huga nokkurs manns. Setningin er svona: Við tókum öll þátt í þessu."

Þessi Bakþanki er sá merkasti sem ég hef lesið eftir Davíð Þór.
Það er mikið þrekvirki að komast svo ofarlega í menningarbrekkur samfélagsins að ná að greina fyrstu lygamöntruna. Hún er hverjum kærust. Sá sem þar sest sér til hvíldar og lítur yfir hólinn kemst ekki hjá því að skima eftir fleirum. Áður en langt um líður silast þær í ljós. Fyrst þær sem síðast hófust. Þær eldri verjast vel. Best verst sú sem byrjað var að þylja yfir kornabarninu í vöggunni og stanslaust síðan. Á Íslandi hefst hún svona: Faðir vor, þú sem ert á himnum.

Lygamöntrufundur er áfall. Því meira sem dýpra er á henni. Smám saman styrkjast þó stoðirnar aftur. Reiðin út í þá sem héldu manni í möntrudrómanum víkur fyrir auknu víðsýni. Maður upplifir frelsi til að bera sjálfur ábyrgð á sjálfum sér. Og - maður reynir að halda lygamöntrum úr Bakþönkum sínum.

Sunnudaginn 21. des. 2008 rakst ég næst á Bakþanka eftir Davíð Þór.
Hann heitir Ömurleg jól, er ágætur texti og óskar öllum gleðilegra jóla.
Ólíkt fyrri jólahugleiðingum ritarans - var ekkert Faðir vor í þessum texta.

Lið sitt veitir lýðum trúr
lyftir þjóða sóma:
lúnar sálir leysir úr
lygamöntrudróma.

Föstudagur 12. des. 2008

Hörður Torfason
Hér er vefur hans >> http://hordurtorfa.com

RADDIR FÓLKSINS - http://raddirfolksins.org/

Tilgangur félagsins er að skipuleggja friðsamleg mótmæli og styðja við almenning í kjölfar efnahagskreppu á Íslandi. Standa að og hvetja til víðsýnnar umræðu og úrbóta í íslensku samfélagi með höfuðáherslu á mannleg gildi. Verði félagið lagt niður skulu eignir þess renna til sambærilegra félagssamtaka eða mannúðarmála.

Föstudagur 5. des. 2008
Snarsvar um lágnætti við fyrirspurn Íslendings erlendis um stöðuna hér heima.

(Date: Fri, 5 Dec 2008 00:15:24)

Íslendingar eiga margt
um sem mætti ræða
enda fólkið orðið argt
- á sumt fátt að snæða.

Höfðingjar sem hafa þá
höfgan lax í munni
þykjast kenna kjörin hjá
kreppualþýðunni.

Þykjast sjálfir þekkja best
þjóð að vísa leiðar
þótt þeir engan hafi hest
hvað þá tvo til reiðar.

Grípa skjótt til gæsa - því
gengur flest með asa -
fengnum troða ofan í
einkavinavasa.

Þegar ekki fleira finnst
fer til hags að sverfa
þá - er varir margan minnst -
mál þeim er að hverfa.

Eftir stendur undraþjóð
eignum sínum rúin
skuldahlekkjuð, göngugóð,
greiðslan aldrei búin.

Myrkt er úti, nú er nótt,
nauðafólk er hokið.
Sælu vinir, sofið rótt.
Sálminum er lokið.

Bestu kveðjur - GÓP

13. nóvember 2008 - Þjóðarskútan 6 vikur á strandstað

Nú er svo komið að meira að segja okkur - hin fávísu - er farið að óra fyrir hrikalegu umfangi efnahagshrunsins. Frá aldamótum hefur bankageirinn vaxið eins og trekt frá þrengri enda og þegar bólan sprakk náði víðari endinn yfir tólffalda ársframleiðslu landsins.  Það furðulega var - að þessu fylgdi alls engin eignaaukning í útlöndum. Þvert á móti. Allt byggðist á sífellt aukinni skuldsetningu. Og - það var innlenda vaxtaokrið sem hélt bílífinu uppi. (Sjá Andrés Magnússon og gögnin úr Seðlabankanum.)

Stjórnmálatoppar, eftirlitslið peningamála og fjáraflamenn voru í vina- og skelfingarvef með öndina í hálsinum. Stranglega bannað að sjá boðana. Gæta þess að engan óviðkomandi gruni neitt. Ef við hefðum þrengt reglur þá hefði nú eitthvað verið sagt - sagði forsætisráðherrann - sem síðan hefur einnig leitað á náðir ofurverunnar. Hugsanlega hefði getað verið vitrænt - að sækja um inngöngu í EB þegar útlitið var skást - en krónan varð fyrirskipað átrúnaðargoð.

Þeir sem stóðu vaktina hafa nú breytt sér í björgunarlið. Það er við gamla heygarðshornið. Hugsar fyrst og fremst um eigið skinn. Þar ræður vinavefurinn og flokkshagsmunir. Allir rúnir almannatrausti. Uppstokkun í stjórn dugar ekki. Það verður að kjósa, halda vinavefnum fjarri og kalla fagfólk til. 

Ofan sligar Íslandsknör
áralangur vandi,
- okkar frækna yfirför
endaði með strandi.

Sigið er nú siglutréð
sest er þjóðarskúta
og við segjum: útaf með
óráðsíu-stúta!

11. júlí 2008 - Plantaðar hugmyndir

Í blaðagrein um kynlíf þykir verðlaunakonu "jaðra við ofbeldi að planta svona hugmyndum í kollinn á 11 ára börnum". Þau hafi greiðan aðgang að efni með mismunandi og óæskilegum skilaboðum ... og sniðgangi upplýsingar að mestu leyti.

Trúboðinn kemur í hugann. Hann fær milljarða af almannafé. Af öllu afli plantar hann hugmyndum í kollinn á ungabörnum og elur á þeim alla ævi. Hann sér um að þau hafi greiðan aðgang að efni með hugmyndar-réttum skilaboðum og að þau sniðgangi allar staðreyndir. Skynsamleg umræða er forboðin.

Árangur hans er ótvíræður. Í útvarpi sama dag talar hagfræðingur, fyrrum alþingismaður og núverandi frammámaður í samtökum á vinnumarkaði. Um látinn mann segir hann "hvar svo sem hann er staddur." Stutt hlé - og svo: "Ég veit hvar hann er staddur".

Hér verður ályktað að hagfræðingurinn telji hinn látna vera virkan í ráðuneyti ofurverunnar.

Hér verður einnig ályktað að verðlaunakonunni yfirsjáist ofurkapp - og vellukkun samfélagsins í að kenna börnum - frá vöggu til grafar - að trúa bulli án nokkurs tillits til staðreynda.  

Barnið erfir tapað tafl
týnir lífsins gulli
þegar lagt er ofurafl
á að trúa bulli.

3. júlí 2008 - Bænanauðgun barna

Bænin kennir að til séu óáþreifanleg ill öfl. Uppspuninn um ill öfl hefur frá öndverðu verið notaður til að kúga þá fáfróðu. Auðveldast er að bænanauðga börnum. Fæst þeirra komast nokkru sinni heil úr heljargreipum þeirrar martraðar sem hefst þegar þau læra sína fyrstu bæn.

Englabull og áraher
æsku fyllir lævi.
Bænanauðgun barna er
bölvun heillar ævi.

12. júní 2008 - Ofurveran - Sumt verður ekki betur sagt.

Dr Gunni (Gunnar Hjálmarsson) ritar bakþanka Fréttablaðsins í dag um það þegar fólk er
að móðgast fyrir hönd annarra
.
Þar segir hann meðal annars:
...
Fyrst komast hinar móðguðu sveitir vitleysinga á flug þegar taka skal upp hanskann fyrir ímynduðu ofurveruna á himnum. Þá fara hinir móðguðu í ham og hreinlega sturlast. Þeir telja sig í fullum rétti til að vera brjálaðir enda er verið að vanvirða það sem þeim er "heilagast", ranghugmyndina í huga þeirra. Þeir brjáluðustu víla ekki fyrir sér að kveikja í eða drepa af því að þeir eru svo ægilega móðgaðir. Svo telja þeir sig studda af ofurverunni sem klappi ánægð uppi á skýi. - Eins og hún sjálf gæti ekki gengið í málið væri hún til, verandi þetta máttug - og allt.
...

Háskólar með helgideild
hrekja burtu þekkinguna
upp svo spinna aðra heild:
ofurverublekkinguna.

9. júní 2008 - Lokið er nú Baugsmálaferlum.

Þau hafa staðið yfir í nokkur ár. Að lokum komst Hæstiréttur að því að víst hefðu menn tekið sér ólögleg lán úr eigin hendi upp á ríflega 200 milljónir. Refsing við slíku væri aðeins sekt og því væri það fyrnt. Eftir stóðu dómar um misferli og sjálftöku lægri fjárupphæða. Verjendur sögðu að mestu skipti hversu þetta væri lítið miðað við það afl sem lagt hefði verið í málið.

Dæmdur maður dögun sér
- dómurinn var grófur -
var þó löngu ljóst: hann er
langtum minni þjófur.

15. maí 2008 - Fjármálageirinn á hverfanda hveli.

Bankinn minn, hann Glitnir, var ólmur í að ráða sér nýtt starfsfólk allt fram á þetta vor. Stórar væntingar og mikil starfsheit til fólks sem starfaði annars staðar. Byrjaði samt að segja upp fólki nokkru fyrr. Sagði svo einnig upp fólkinu sem síðast var blekkt til samstarfs. Svona haga sér einungis ómerkilegir atvinnurekendur.

Fjárgeirinn slappi og slitni
sleginn af raununum
- glataðist trúin á Glitni
gloprandi mannauðnum.

9. maí 2008 - Um dauðasyndir

Upp hafa komið allmörg mál, í því nágrenni sem kallar sig siðað, þar sem gerendur hafa framið verknað sem aðeins verður talinn til dauðasyndar.

Dauðasynd er öngin ein
úr má hvergi bæta
afsökun er ekki nein -
aðeins hægt að þræta.

20. febrúar 2008 - Kristilega "siðgæðið"

Enn einn presturinn staðsetur sig kyrfilega á þriðja stigi siðferðisþroskans með því að halda því fram að þeir sem ekki trúi á yfirnáttúrulegan refsivönd geti ekki öðlast siðferðisþroska. Þetta kallar á vangaveltur um það stórmerkilega fyrirbæri við háskóla sem nefnist guðfræðideildir eða guðspekideildir og virðast hafa það meginmarkmið að afmennta stúdenta til kristilegra starfa. Með vísan til myndrænna biblíulíkinga frá ævintýrinu um fæðingu Jesúbarnsins þar sem englar sjást svífandi aftan yfir kindahópi verður niðurstaðan þessi:

Ef til speki engill telst
yfir kindar huppi,
þá má segja - held ég helst:
Heimskan veður uppi.

9. febrúar 2008 - Eilífðarrefsingin

Hugleiðing um trúboða heimsins sem lofa öllum mönnum grænum skógum eftir dauðann - ef þeir aðeins - lifandi - játast undir viðkomandi trúarok - og helst drepa hina.

Eden alla svíkur:
aldrei rok né mein.
Lúx sem aldrei lýkur
loks er bölvun ein.

Dauðans tilboðstíkur
tapa flugi - því:
líf sem aldrei lýkur
langar engan í.

9. febrúar 2008 - Pólitíkurmarkið

Íhugun um ósannindaáráttu ritsjóra Morgunblaðsins í garð fyrrverandi borgarstjóra:

Nú á Morgunblaðið bágt
- blakar trénu ranga -
betra finnst að lúta lágt:
lætur þvælu ganga.

25. des. 2007 - Ok ofurveruplatsins

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur staðið sig vel í starfi menntamálaráðherra og eflst við hverja raun ekki síst þegar á henni hefur staðið karlremburaus frá Samfylkingu, Vinstri grænum - og nú síðast Framsókn. Í umræðunni um kristilega siðgæðið hefur hún - ein íslenskra menntamálaráðherra - lent í því að lýsa yfir sannfæringu sinni um hann guð í himnaríki - sem til var búinn í því skyni að vera skapari mannsins í sinni mynd og síðan notaður um aldir til að undiroka alþýðuna. Næsta ár eru 200 ár liðin frá fæðingu Darwins sem fimmtugur opinberaði þá leiðarsteina sem hann hafði fundið benda á þróun lífsins á jörðinni. Sú þróun hefur nú - einni og hálfri öld síðar - endanlega verið rakin til upphafs síns. Hætt er við að trúarsannfæringar reynist lítið hjálplegar til að bæta stöðu íslenskra barna á Písa-skalanum. Ekki verður þó undan vikist að nefna í leiðinni að  kristniboðsstefna Framsóknarflokksins gerir það að þjóðarnauðsyn að hann komist aldrei til áhrifa aftur. 

Almennt er mörlandinn ágæta glaður
- eftir sín kynni af Darwin í skóla -
verandi upplýstur alþýðumaður
utan við steina og kirkjur og hóla.

15. des. 2007 - Grunnstoð trúarbragða

Í Mogga dagsins skrifar Reynir Harðarson um trúmál og vitnar í skrif Karls biskups um það liðsinni sem biskupinn sækir til Satans og hvernig biskupinn lítur á þjóðsögur og ævintýri en boðar hins vegar að jólaguðspjallið sé heilagur sannleikur. 

Helgidómunum hæfir
hjátrúargámurinn -
biskupinn bratt þar gnæfir
og blessaður Sataninn.

14. október 2007 - Afmenntun biskupsins flóir yfir

Sigurbjörn Einarsson biskup hefur nú fengið fastan dálk í Morgunblaðinu og lætur þar ljós sitt skína. Í upphafi leiddi hann fram mikla mælskusnillinga sem ýmsir lofuðu mælskuna mælskunnar vegna en aðrir notuðu hana sannleikanum til framdráttar. Af því gaf hann blekkingameisturum lágar einkunnir. Svo skellti hann inn skáldsögunni um Jesú - rétt eins og hún væri sannleikur. Þá kom að því lögmáli lífsins sem Darwin opnaði augu manna fyrir. Það var afgreitt og ómerkt í fáum orðum.
Jesúbullið hafa flestir neyðst til að innbyrða með móðurmjólkinni - en það þarf að loka augum skynseminnar til að sjá ekki lögmál lífsins.

Biskup puðar pistlatörn
párar Darwins-kífið
minnir á þau mannabörn
minnst sem þekkja lífið.

28. ágúst 2007 - Undir útfararpresti

Guðaginntur álfur
ginnir næsta sinn:
"Guð það sagði sjálfur"
segir presturinn.

16. júlí 2007 - Hagnýting uppmagnaðs ótta

Koldíoxíð virðist vaxa með hækkandi hita andrúmslofts - en vöxturinn er sex öldum á eftir. Nú hefur verið sett upp svikamylla til að hala peninga til skógræktar af nytsömum sakleysingjum undir því yfirskini að koldíoxíð sé ekki afleiðing - heldur orsök hlýnunar! Sjá nánar í umfjöllun loftslagsvísindamanna. Í leiðinni er sakleysislegri nauðsynjablæju sveipað um það háttalag að ræna almenning landsvæðum og troða þar upp skógi - sem hver á?

"Nígeríu"-nafnið er
nets á svikum mestum
- "Kolviðurinn" keppir hér:
kunnuglegri flestum.

2007 Mbl >> Útísláttur fyrirpilta
6. jan.
Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason
16. jan.
Guðni Th. Jóhannesson
17. jan.
Jón Ólafsson
19. jan.
Björn Bjarnason
21. jan.
Þór Whitehead

Ljóst er að það slær út í fyrir mörgum embættispiltinum þegar kalda stríðið er til umfjöllunar.

Herrans orð er álfaþref.
Íslendingar kíma
er þeir lesa bunubréf
- börn síns kalda tíma.

Spottið veit að spennu veldur
sparðatínslustritið -
Þór hinn aldni ekki heldur
alltaf sté í vitið.

20. des. 2006 - Tekinn upp þráðurinn

Um þessar mundir er Framsóknarflokkurinn níræður. Hann hefur rýrnað bæði að atkvæðahlutdeild, fjölda kjörinna fulltrúa og tiltrú kjósenda. Í Reykjavík er þó kominn til stjórnunarstarfa síðasti Móhíkaninn sem raðar vinum og pólitískum samherjum á jötuna.  Það nefna sumir afturgengna háttsemi.

Aftur gengur frammaranna far
- forni tónninn þekkir stillinguna:
nýr og stæltur stjóri Framsóknar
sterkur kemur inn í spillinguna.

10. nóvember 2006 - Trúarundirstaðan

Útfararpresturinn fer með ævintýrið um konurnar sem á páskadagsmorgni gengu til grafar Krists. Þær töluðu saman um hvort þær mundu geta velt steininum frá munnanum en þegar þær komu þangað hafði hann verið fjarlægður, engill sat inni en Kristur risinn upp og farinn á flakk. Presturinn segir að þetta sé heilagt guðs orð og undirstaða kristinnar trúar.

Fabúlur margar ég merkar tel
um manninn og jólasveininn
en ljómandi er hve hún lukkaðist vel
litla sagan um steininn.

Apríl 2006 - Kjalvegur til einstaklinga

Hópur manna með alþingismanninn Kjartan Ólafsson af Suðurlandi sem talsmann beitir sér fyrir því að loka almannaveginum yfir Kjöl og byggja upp einkaveg og skattleggja alla sem fara þá fjallaleið. Þar fari alls konar umferð.

Allra vegur er um Kjöl
einum selja má'ann
-honum allra eign er föl
alþingsmann ef á'ann.

En ég styddi annan söng
og það gerðu fleiri:
að þeir græfu undirgöng
út að Akureyri.

26. janúar 2006 - Allt er vænt sem vel er grænt

Þjórsárver sögð tvímælalaust dýrmætasta land á Íslandi og umhverfisráðherra undirbýr lagafrumvarp til að stækka friðlandið þar.

Á öræfum ég flýt til feigðaróss
og fáir víst sem þaðan ekki vikju
fyrst jökuls drullusvað er dýrmætt góss
ef djarfar aðeins fyrir grænni slikju.

15. des. 2005 - Miklu minni þrjótur

Árni Magnússon er félagsmálaráðherra. Atferli hans við Valgerði Bjarnadóttur var í Hæstarétti Íslands dæmt refsiverð háttsemi og misbeiting valds. Hann hefur ekki hugleitt að segja af sér - eins og hann orðar það sjálfur. Framsóknarflokkurinn stendur með honum í því - þótt einungis formaður þingflokksins og formaður flokksins hafi tekið til máls um það.

Þingandstaðan fram nú fer
fjasandi með blaður
en þjóðin veit að Árni er
alveg saklaus maður.

21. nóv. 2005 - Undir útfararpresti

Músík lyftir anda efst
alla nær að styrkja
en þegar presta þulan hefst
þá er best að yrkja.

Ósk mín sú fer efst á pall
og með bendli rauðum:
hvorki prests né kirkju kall
komi að mér dauðum.

3. júní 2005 - Undir útfararpresti

Allir prestar - eins og nú -
öðru lífi hæla
og úr bókum ausa trú
óupplýstra þræla.

11. jan. 2005 - Undir útfararpresti

Þetta blíu blaður
blásið er um allt,
þetta dauðadaður
drepur þúsundfalt.

14. des. 2002

Ísland - þar sem allir hugsa sitt -
og er menn standa frammi fyrir vanda
veit hver og einn að arfa-rangt er hitt!
Aðeins ég á réttu hef að standa!

2. júlí 2002 - Undir útfararpresti

Eitt mér leiðist öðru meir
- eins og sumarhaglið -
kirkjuprestar, þegar þeir
þylja trúarstaglið.

Ágúst 1998:
Þorgeir Þorgeirson, kvikmyndagerðarmaður og rithöfundur, ritar nafn sitt með aðeins einu s-i. Þar um hefur hann átt í nokkru stappi við staðlastjóra Hagstofu Íslands

Þorgeir hefur þennan sið -
það menn gerir hlessa:
neitar hann að notast við
nema annað essa.

Júlí 1998: Hjörleifur skjótur að segja sig úr Alþýðubandalaginu

Mér er nú frekar að heyrast að Hjörleifur klingi!
Hér er nú ekki verið að fara með væl!
Hann er að sjálfsögðu orðinn þreyttur á þingi
og þykir hæfa að fara þaðan með stæl!

10. júní 1996 - Forsetaslagur

Allur fjöldinn er svo gerður
að hann fagnar
ef-forseti okkar verður
Óli Ragnar.

3. júní 1994 - Undir útfararpresti

Skil ég við skortinn glaður
til skeiðar og til hnífs
mætti ég sleppa, maður,
við martröð eilífs lífs.

24. október 1993

HÍ, RK, Lottó-lið
lagði hart að Steina:
Spilakassa viljum við!
Víst skal á það reyna!

Ráðstafar með ró og spekt
RAUN til allra þriggja -
sem er alveg ótrúlegt
eftirá að hyggja:

Sjá hið spilasjúka man -
með sjarm er loksins sköpuð
af háskólanum aðstaðan
uns aleigan er töpuð.

GÓP-fréttir  * efst á þessa síðu