GÓP-fréttir

Kom inn!
GOP-visur

Vísur af ýmsum toga
 

Sjá einnig

9. feb. 2012 Í gestabók GGí:

Veðuráttin eins og fer
eftir flöskustúti
klárt er þó að komin er
kalsarigning úti.

12. jan. 2012 Í gestabók GGí:

Dunar vor stund meður drauma og þrár
og dagarnir liðast og þeysast
en gamanið er þegar glöggskyggnar brár
sjá gáturnar rakna og leysast.

12. okt. 2011 - afmæli Vikars

Af andrár öldutoppi
sem yptir tímans knerri
er eins og skeyti skoppi
með skemmtiósku hverri
og brosi sem að blikar
er bjarminn ljómar Vikar.

5. sept. 2011 GGí 91 árs:

Mamma er hress - leggur örvunarorð
í ómaflóð septemberlagsins
og inni í stofunni breiðast um borð
blómin í tilefni dagsins.

25. ág. 2011 Til Högna sem kemur eftir tvo daga:

Góðan dag - og gleðilega
gangi allt til hags -
eigðu kosti allra vega
Íslandsferðalags.

22. júlí 2011 Í gestabók GGí

Spjall um sitt og heimsins hvað
- hugmyndir og skissur -
umræðan fór auðvitað
út um allar trissur.

5. júlí 2011 Ásmundur Jakobsson á afmæli í dag

Tíminn gengur ár og aldaspor
og iðkar hvorki þjálfun eða trimm
en hann er sá sem heldur áraskor:
Til hamingju með 65!

11. júní 2011 Íris Hild á afmæli í dag

Heiðursmær - oss hlý og skyld -
hannar gripi klára.
Þetta er hún Íris Hild
- orðin átján ára.

9. júní 2011 Í gestabók GGí á svalri tíð

Komna vorið kælir
kuldabylurinn -
vísast svo oss sælir
sumarylurinn.

7. júní 2011 Afmæli FRG

Rún af-mæli ársins á
útá Norðurlöndunum
heillaóskum úðast frá
Íslands sólarströndunum.

25. nóv 2010

Ekkert - manni með sín gen
meðan blikin tifa -
gleðilegra getur en
gamanið: að lifa!

10. nóv. 2010 Afmæli RFG

Fimmtuga á fögrum degi
Freyju hyllum þúsundfalt -
ljós og stoð á lífsins vegi
létt og djörf - og til í allt.

7. nóv 2010 Lýsing

Kliðmjúk eins og klukka
klýfur tímans haf -
lífsviðhorfið LUKKA
ljómar henni af.

4. nóv. 2010 Í gestabók GGí undir haustveðragný

Fægir þöll og bjarkir berar
bylurinn -
oss að venju vísiterar
veturinn.

7. okt. 2010 Í gestabók GGí eftir sjálfvirkar staðfærslur frá tilteknum kapítula ævinnar

Minnumst glöggt, við gleymskuós,
gleðinnar og kífsins:
stendur okkur stjörnuljós
stúdentskafli lífsins.

14. ágúst 2010 Í gestabók Guðrúnar og Birkis í Birkihlíð í Súgandafirði:

Fas og viðmót þakka þýtt
og þekkri fremstu von
- blessuð! Guðrún, Birkihlíð
og Birkir Friðbertsson.

11. nóv. 2009 Freyja - afmæli:

Við óskum þess að allt þér bæti hag
og efli snjallan hug og lipran fót,
þú eigir margan ævintýradag
og allir dagar marki tímamót.

1. okt. 2009 Í gestabók GGí eftir stjórnmálaspjall

Títt er talað, margt er mál,
mörg er orðaspíkin -
hún er illyrt orðaprjál
Íslandspólitíkin.

25. ágúst 2009  Undir útfararpresti. Hugleiðing um styttri æviþulu:

Ævisagan öll í kvæði:
Eftir upphaf
heill og yndi hafði bæði.
Hrökk svo uppaf.

20. júní 2009 Berta Rögn 5 ára

Glæsiveisla, malt og mix
magnar yndishag
nú er unga fröken fix
fimm ára í dag.

10. júní 2009 Hægt gengur að gangsetja Touched by Life – bókargerð

Margt er í krókum sem teljast til tafar
- en tekst þó að mjakast -
og öll munu kurlin svo komast til grafar
og kolagerð takast.

31. maí 2009 Nafngiftardagur Emblu Júlíu Mjallar

Upplitið djarflegt og augun skýr,
ákveðin, einlæg og snjöll -
ævin þér verði ljúft ævintýr
Embla Júlía Mjöll.

17. maí 2009 Sunnudagur  - Þjóðhátíðardagur Norðmanna - sem fengu gull á Júróvisjón í gær

Halló Noregur - og til hamingju með Eurovision !!!!!!!!!!!!!!

Í logni og óvanalega hlýju veðri hugsum við hlýlega til frænda okkar í Noregi. Við sendum þeim hátíðarkveðjur í tilefni dagsins - og hamingjuóskir í tilefni sigursins í Júróvisjón í gær.

Okkar frábæra Jóhanna söng okkur Íslendinga upp í annað sæti - en vegna fjárhagsstöðu landsins erum við einnig þakklát Norðmönnum að vera í fyrsta sæti með glæsibrag og taka þannig að sér þann útgjaldabikar að halda hátíðina næsta ár.

Lognið glampi glæinn,
gleðin fylli bæ,
sólarsunnudaginn:
sautjánda í maí.

Bestu hátíðakveðjur!

14. október 2008 Böðvar Bjarki 1962

Tafarlaust er tímans mikla spil
tapast grönd og slemmur eru unnar.
Við sendum bjartar bestu kveðjur til
Bjarka og til allrar fjölskyldunnar.

12. sept. 2008 Ólafur Freyr 1959

Efldu þína léttu lund
lífs er skammvinn saga
eigðu marga unaðsstund,
yndislega daga.

20. júní 2008 Berta Rögn fjögurra ára

Hoppar glöð á hæl og tá
hefur viljann klára
einarðleg með bros á brá:
Berta - fjögra ára.

14. júní 2008 Lind útskrifast sem leikskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands

Leikskólann muntu laga
lipur og glögg og skýr -
eigðu um alla daga
yndisleg ævintýr.

8. júní 2008 Til Freyju Rúnar

Strýkur blærinn blómarósirnar
- blæs þó hraðar lífsins gangur ær -
héðan koma heillaóskirnar:
til hamingju með daginn þinn - í gær.

29. maí 2008 Suðurlandsskjálfti 6,4 á Richter- kl. 15:45
- en þá vorum við raunar þrír í Esjugöngu og fundum ekki fyrir neinu.

Ærir það kálfa
ærir það álfa
ærir oss sjálfa
æ þegar jörð fer að skjálfa.

26. maí 2008 

Rekkar sem að rak í nauðir
reynast hljóðari
þeir sem ekki eru dauðir
eru fróðari.

9. mars 2008 Gestabókin í Þórsmörk var svo fullskrifuð að nöfn okkar tróðust á öftustu kápusíðu:

Margur hingað innúr ók
- átti stundu hlýja:
það er ljóst að þessa bók
þarf að endurnýja.

3. mars 2008 Bjarni 66

Aldurstalan ætíð vex
- eldumst báðir saman -
þín er orðin sex og sex
sem er bara gaman.

2. febrúar 2008 Afmælisveisla á nýja heimilinu

Húsmóðirin, hún er smört,
hefur veislu klára.
Hjartans óskir! Arna Björt,
orðin nítján ára.

24. janúar 2008 

Eins og spuna furðuflug
úr föstum skorðum
er að hitta eigin hug
í annars orðum.

17. janúar 2008 Hjá mömmu - sem er lífsglöð og lagin til hugar og handa

Guðrún hefur glaða brún
- glettin nýtur lagsins -
opnum huga eygir hún
yndisleika dagsins.

12. október 2007

Til Vikars:

Afmæli á eilífð hvers
er sem tímans bryggja:
sigldu glaður, sæll og hress,
sextíu og þriggja.

1. ágúst 2007 Hjá Stellu Guðmundsdóttur í Heydölum:

Heydalina höfum gist
- hér kom ferðasella -
eftir þessa yndisvist:
- ástarþakkir, Stella!

29. júlí 2007

Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti við Patreksfjörð:

Kemur fjöldinn forvitinn
- fagnar gömlu dóti -
margan fornan fróðleikinn
fundum við á Hnjóti.

24. júlí 2007

Eftir vikudvöl í Kerlingarfjöllum
fengu ráðskonur staðarins þessa þakkarkveðju sem syngja skal við sama lag og Bjarnastaðabeljurnar:

Kerlufjallakonurnar
þær kokka mikið núna
ýmsa rétti einfalda
og aðra mikið snúna

Þær efla okkur öll
þær gleðja okkur öll
sem komum í Kerlingarfjöll.

27. júní 2007

Í tilefni dagsins

Sunnan-andinn sólblíður
seiðir kul úr gjósti
- hérna færðu, Hólmfríður,
heillaósk í pósti.

7. júní 2007

 Heitt - eða hlýtt?

Þann 7.6.2007, skrifaði Høgni Egilsson:
Blessaður.-... - Hér úti er ekstra-sumar og 30 gráður.
Heldurðu að það sé heitara í helvíti? Kær kveðja - Högni

Þegar spurt er þess hve hlýtt
þegnum býðst í neðra
er þess von að enn sé nýtt
íþrótt vorra feðra:

Sífellt föðurmyndin mín
mælti ósköp fegin:
striplið yrði Péturs pín
Paradísarmegin.

Eftir lífsins erilstreð
allur hyrfi bagi
kæmist hann í kofa með
kyndingu í lagi.

Ylnum fagnar í sitt vé
- aldrei of af hlýju -
þótt í gráðum þá hún sé
þrjátíu og níu.

Kannski missir kölski ró
klökkva með og volum -
en ég vona að hann þó
eigi nóg af kolum.

5. feb. 2007

Til Harðar Zóphaníassonar fyrir ljóðabók hans Vísnagaman og vísnamál
sem hann gaf mér laugardaginn 3. febrúar.
Yfirleitt blaða ég og les svo ljóð og ljóð í ljóðabókum en þessa bók las ég langtímum.

Hörður! Þakka þína bók:
þessi ljóð til manna,
hvernig vægi hvert eitt jók
hversdagsatvikanna.

27. des. 2006

Opnun nýrrar gestabókar Irmu

Gestabókin góða er
gleðispegill tímanna:
það sem hugum birtu ber
blikar meðal rímanna.

20. des. 2006

Um þessar mundir er Framsóknarflokkurinn níræður.
Hann hefur rýrnað bæði að atkvæðahlutdeild, fjölda kjörinna fulltrúa og tiltrú kjósenda.
Í Reykjavík er þó kominn til stjórnunarstarfa síðasti Móhíkaninn sem raðar vinum og pólitískum samherjum á jötuna. 
Það nefna sumir afturgengna háttsemi.

Aftur gengur frammaranna far
- forni tónninn þekkir stillinguna:
nýr og stæltur stjóri Framsóknar
sterkur kemur inn í spillinguna.

14. des. 2006

Hugleiðing

Manna sjóð til silfurs tel:
sá er þjóðar hella
sem er góður, gerir vel,
gengur hljóður ella.

7. desember 2006

Þekkt er sú skemmtan að raða orðum upp á óvanalegan máta
svo venjuleg merking þeirra búi til nýja liti í huga heyrandans - eða lesanda ljóðsins.
Oft er hljómurinn svo raunveruleikalíkur að menn villast á honum og heiminum.

Tjáning hvers orðs míns í orðanna öruggu röð
útmálar fyrir þér hug minn um veraldar keröld,
- uppstokkuð verða þau óður á endastöð
sem aðeins er til í orðanna sérstæðu veröld.

30. nóv. 2006

 

 

 

23. nóv. 2006

Í gestabók GGí

Mömmu höfum við hressta
það heitir hjá sonunum
með óskir um allt hið besta
einnig frá konunum.

Í gestabók GGí

Sitjum við hérna saman
synir og móðir vor
spjöllum og gerum gaman -
gæfan á fjölmörg spor.

3. nóv. 2006

Til Guðrúnar Gísladóttur
sem 30. október árið 1940 giftist Pétri Sumarliðasyni á 61. afmælisdegi Aðalbjargar Jakobsdóttur.

Til þess þér að glæða bros og gleðja
svo glitri fornar minningar í huga þér
þá kemur hérna til þín tölvukveðja
í tilefni af 30. október.

30. mars 2006 Í gestabók hjá GGí:

Engu ætla ég að lýsa
eða leita svars
því var samin þessi vísa
30. mars.

23. mars 2006 Í gestabók hjá GGí:

Þetta á að verða vísa
- veit þó ekki enn um hvað -
Nú er víst að koma krísa,
- kannski best að geyma það.

19.janúar 2006 Við kveðjuathöfn í Langholtskirkju um Jónu Jakobínu Jónsdóttur frá Vogum við Mývatn.
Útförin gerð nyrðra þann 20. janúar.

Minnisdagar rifjast rósóttir
- rennur fylking undir áratogum -
Jóna Jakobína Jónsdóttir,
ég var hjá þér forðum útí Vogum.

21. nóv. 2005 Við útför Sigurðar E. Þorkelssonar, skólastjóra og skákmanns

Hugurinn er þýður þótt
þeysi minnisfákar:
Siggi Þorkels hefur hljótt,
hlustar, brosir, skákar.

21.-23. okt. 2005 Við Köldukvísl við Svarthöfða - á suðurleið úr Vonarskarði:

Mörg hefur lítil lænupísl
lagt oss gildru snúna
en ósköp var hún Kaldakvísl
kurteis okkur núna.

29. sept. 2005 Á teppi handa Bertu Rögn

Undur heimsins horfir á
hlý og björt í sinni.
Með sitt glaða bros á brá
breytir veröldinni.

5. ágúst 2005 Ágúst Örn 11 ára

Vakna, klæðast, brosa breitt,
byrja, gera, klára,
öllum störfum annar greitt
Ágúst - ellef' ára.

24. ágúst 2005 Félag kennara á eftirlaunum fór sumarferð
frá Akureyri í Fjörður og Flateyjardal og naut kvöldverðar í Grenivík.
Þar var á boðstólum vín með matnum sem varð tilefni eftirfarandi endurtekningar á vísunni frá 26. ágúst 2000:

Vín ég þigg með þessum bita
- það er sosum ekkert aððí
utan það sem allir vita:
eg verð bara fullur afðí.

3. júní 2005 Við útför Björns A. Kristjánssonar, múrarameistara

Fjöldamörgum lagði lið
- lét sér annt um vini -
bestu kveðjur berum við
Birni Kristjánssyni.

Bjarni Ólafsson sat við hlið okkar og þá tengdist Ólafur Jónsson Birni í huganum
- svo sem var forðum í félags- og bæjarmálum:

Fengu oft að öðrum hlúð
- almenningsins vörn -
ríma tveir í innstu úð:
Ólafur og Björn.

2. des. 2004 Við útför Gísla Friðriks Þórissonar

Minningin, ljúf sem í ljóði,
ljómar þinn gengna stig.
Óvænt var gullvagninn góði
gerður að sækja þig.

17. október 2004 Morgunn í Jökulheimum


Músaðu á myndina til að sjá þær allar úr ferðinni.

Jökulheimahúsið er
hlýr og traustur skúti
hvort sem lægð um loftin fer
eða logn er úti.

Hvít er iðan - hvert sem sný -
hvín við ramman slaginn -
gamla húsið grillir í
glaðabjartan daginn.

Líður vel við ljúfan yl
leiðangri sem er’ðar
- samt er kominn tími til
að tygja sig til ferðar.

Ævintýrið á sér stað
og þá bætir haginn
lífsins góða gaman - að
geta tekið slaginn.

Veðrið blint er firna fól
- feykir vindur hvessinn -
þá er gripið tækni tól:
treyst á gps-inn.

2.-4. janúar 2004 Í Fiskinesi

Gistum við Pétur Örn hjá Þóri Hauki Einarssyni og Lilju Sigrúnu Jónsdóttur í Fiskinesi við Drangsnes. Sigrún sýndi mér listaverk sem hún hafði unnið í námi og var myndskreytt ævintýri frá umhverfi Fiskiness. Bæði þessi kvöld hófust seint - því við fórum úr Reykjavík fyrra kvöldið en frá Ísafirði það síðara. Við sátum því saman svo sem einn sjávarfallstíma:

Er sem nemi kynjakall,
klettamyndir lesi,
meðan sit eitt sjávarfall,
sæll í Fiskinesi.

18.desember 2003

Helgarvetur! Skreppum skjót,
skoðum ísalinginn,
Merkurár og Markarfljót:
Merkurvatnahringinn!

4. okt. 2003 

Gott er stef með góðu rími -
gæða fólk og góðir fundir,
góður dagur, góður tími,
góðir vinir, góðar stundir.

14. des. 2002 

Ísland - þar sem allir hugsa sitt -
og er menn standa frammi fyrir vanda
veit hver og einn að arfa-rangt er hitt!
Aðeins ég á réttu hef að standa!

10. júlí 2002

Ókum hingað árvökul
og í tákn var lesið:
leiðin upp á Langjökul
lá um Skálpanesið.

25. ágúst 2001 Hjá Irmu:

Eru komnir ungir tveir
og með bros á hvarmi:
Það er Ágúst Örn og þeir
Alexander Bjarmi.

Sumarferðin 2001 um Norð-Austurlandið

4.-5. ágúst 2001:
Í gestabók Réttarkots - en það hús reyndist langtum glæsilegra en kot-nafnið gefur til kynna:

Fagnar lúi ferðasveins
fínu Réttarkoti
gistir seint í öðru eins
úrvals glæsisloti.

6.-7. ágúst 2001 í gestabók í Ytralóni:

Hver sem þetta lúinn les
lyfti huga glaður:
Ytralón við Langanes
er ljúfur gististaður.

10.-11. ágúst 2001:
Húsverðir voru þær Rakel og Sirra. Stæld hrynjandi Jóns Helgasonar í Áföngum:

Kverkfjallavættir kyrja: Hæ!
kalla á fætur lýði.
Litríkt er hvolf um lognsins bæ
laugar nú sólin gríði.
Sumarið veitir blíðan blæ
bljúgur er andinn þýði.
Rakel og Sirra sitji æ
Sigurðarhús með prýði.

10. ágúst  2001- í Sænautaseli:
Það eru hjónin Björn Hallur og Lilja sem sinna ferðamönnum í Sænautaseli. Heitar lummur eru lostæti staðarins:

Bóndinn í Sænautaseli
segir okkur af kúnni.
Allt er á hverfanda hveli
- hvar má nú leita að frúnni?


Í Sænautaseli er næði
og sætt fyrir þá sem vilja
og lummurnar bjóða þau bæði
Bjössi Hallur og Lilja.

27. júní 2001 Hólmfríður Þórisdóttir - fertug

Fríða - með sinn innri eld
alla vefur hlýju
og er núna - að ég held -
orðin 40.

21. júní 2001 Aðalbjörg Eir Endurnýjar skírnarheitið
Veisla í Haukahúsinu á Ásvöllum 24. júní 2001

Glöð og broshýr, fim og fjörg
fari lífs á degi
okkar snjalla Aðalbjörg
Eir um gæfuvegi.

Maí 2001 Katrín Valgerður útskrifast úr Listaháskólanum

Legg ótrauð á lífsins stig,
listin bætir haginn.
Heill og gæfa heiðri þig!
Til hamingju með daginn!

29. apríl 2001 Guðrún Andrea fermd

Signir daginn sól á sprangi
um Selfossbæinn
og við óskum að þér gangi
allt í haginn.

08.04.2001 Leifur Ingi Vilhelmsson fermdur

Sindrar land í sólarkossi
- signd er okkar ósk og von:
ljúft og milt þér lukkan hossi,
Leifur Ingi Vilhelmsson.

08.04.2001 Assa Ósk fermd:

Yndisveröld augað sér
- allt fer þér í haginn.
hamingju við óskum þér,
Assa Ósk, með daginn.

15.01.2001 Í gestabók hjá GGí

Þú sem lítur þennan stað
því mátt yfir lýsa
að hér finnist fest á blað
fremur ódýr vísa.

4. janúar 2001 Kveðja við fráfall Svövu Jónsdóttur á Snælandi.
Svava var frá Geitavík í Borgarfirði eystri. Hennar maður var Halldór Pétursson, rithöfundur, fæddur og upp alinn á Héraði. Hann starfaði hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks, og síðar lengi hjá Kópavogshreppi og Kópavogskaupstað. Bræðurnir Halldór og Runólfur reistu húsið sem þá hét Snæland 2B árið 1947 en Runólfur var þá annar bóndinn á Snælandi við Nýbýlaveg í Kópavogi.

Árið 1967 fluttum við hjónin inn í austurendann - þar sem Runólfur áður bjó. Halldór og Svava bjuggu hinum megin í húsinu en hljóðbært þil skilur húsið í tvær íbúðir. Við vorum því hvor um sig - fyrir handan. Halldór féll frá tíu árum fyrr.

Snæland geymdi mannamót
mörg var gestablandan
er Héraðsbur og borgfirsk snót
bjuggu fyrir handan.

Undangenginn áratug
áttu hvort sinn veginn
hittast nú við brautarbug
að búa hinum megin.

Halldór alheim er að þvo
í óði sólarlagsins -
hefur gullvagn sendan svo
Svava njóti dagsins.

Halldór kallar hátíð þá
hóar vinum snjöllum
Svava veislu annast á
Iða- grænum völlum.

Nú er kominn tími til
að tala, brosa, fagna!
-
Þökkum gott við gamalt þil.
GÓP og Ragna.

26. ágúst 2000

Nú er frændaflokkur glaður
- fínt er vín sem konan lagðí
víst er það þó verst að maður
verður bara fullur afðí.

27. ágúst 2000 Skírður Friðrik Óli Kristinsson og Guðbjargar

Eigðu ráð og úrlausnir
æ á friðarstóli.
Heila ævi hafðu byr.
Heill þér, Friðrik Óli!

22.-23. janúar 2000 Myndatextar í  Þórsmerkurferð

Ókum austur veðravor
- vildum finna björkina.
Víða lagði vatnaspor
vetrarferð í Mörkina.

Ljúf er veröld, logn er á,
léttur er´ann Blesi -
engar fannir er að sjá
inní Langanesi.

Jóni Agli af er sagt:
á sinn gleðipinkil.
Hann til gamans hefur lagt
höfuðið í vinkil.

Stakkholtsgjá á hægri hönd
horfum fram á Stakkinn.
Handan ganga Goðalönd,
gegnt þeim: Stangarslakkinn.

Krossá umdi ljúflingslag
létt var því að finna vöð
ákváðum þann eina dag
yfirferð í hliðar-röð.

Ekki verður öllum kalt
er á snjónum lenda -
eftirvænting eflir allt
inn við Stóra-Enda.

Angar sýnast - eins og hér -
orðnir rótabenda -
Jóni Agli - eins og mér -
inní Stóra-Enda.

Brekkurnar til beggja handa
- bratt er undir hamraþili -
Þórir og hann Óli standa
yfir Litla-Enda-gili.

Ef ég mætti óskir senda
einni mundi þannig haga:
Steinboginn í Stóra-Enda
standi alla mína daga.

Hér er þessi mikla mynd.
Merkilega gaman
er að finna fjall og tind:
fjórar myndir saman!

*

Sigmundur er ætíð snar
öruggur við stýri -
Merkurferðin veit ég var
vatnaævintýri.

Allt er hér með einum blæ
og af léttum toga
útí logni, útí snæ
eldaskíðin loga.

Ellefu hún orðin er
og á degi nýjum -
Eggjarnar í blámann ber.
Blikar sól í skýjum.

Er sem stefni allir á
Einhyrning - með spjótið!
Yfir fara þurfum þá
þunga Markarfljótið.

Margur gleðigaukur hló
gaman er á völlunum -
og má líta ögn af snjó
uppá Tindafjöllunum.

Markarfljót á aurum er
oft með þungum hætti
- sá sem ugg í brjósti ber
björgulegri þætti.

*

Hvernig var nú vistin þeim
vinum sem hér dvöldu
innfrá fyrir öldum tveim
í árferði köldu?

Þið sem eruð allir hér
ævintýri hljótið
af því að nú ætlum vér
yfir Markarfljótið.

Myndatökumaðurinn
má í engu slaka:
strax er fundinn staðurinn
- stokkið svo - að taka.

Yfir skafli er eitt ský
- einhver grasapjatla -
þar sem fossinn fellur í
fagurgerða Katla.

Göngum við á Gunnarsstein
- gamall bálkur vísar.
Rangá af sér ryður ein:
- rosalegir ísar.

Desember 1999 Jól - opnun nýrrar gestabókar hjá GGí:

Allt sem tíminn yfir ók
er í minnislundi:
geymir þessi gestabók
góðra vina fundi.

21. júní 1999 Árnaðaróskir:

Fallegt hús á fornu býli
fullt með borð og stóla.
Ást og hlýja ætíð skýli
æsku Smáraskóla.

Maí 1999 Unimog 4004 auglýstur - og seldur:

Fyrst var hann auglýstur:

Stærstu tegund á ég af
Unimog til sölu.
Ók þó færi allt á kaf
- og í veðri svölu.

Síðan var hann seldur. Hann hafði verið kynntur á vefsíðunni svo þar þurfti að setja upp tilkynningu um að hann væri seldur:

Upplýsingar yður flyt:
Unimog er seldur.
Ekur bráðum - og á vit
ævintýra heldur.

Ágúst 1998 Þorgeir Þorgeirson, kvikmyndagerðarmaður og rithöfundur, ritar nafn sitt með aðeins einu s-i. Þar um hefur hann átt í nokkru stappi við staðlastjóra Hagstofu Íslands

Þorgeir hefur þennan sið -
það menn gerir hlessa:
neitar hann að notast við
nema annað essa.

28. júní 1998 Ragna Freyja Gamalíelsdóttir 80 ára -

Ævifleyið áfram ber
eilíf tímans gára:
Ragna Freyja orðin er
áttatíu ára.

Annað gildismat Annað gildismat
Þegar kaupmaðurinn missti konuna sína fór hann að endurmeta stöðuna. Verslunin gekk vel, húsið hans var stórt og nýtt og einkasonurinn var vel giftur og þau áttu tvö yndisleg börn. Hann ákvað að gera þeim vel. Hann eftirlét syninum verslunina fyrir málamyndagreiðslu sem aldrei var raunar innt af hendi og hann bauð þeim báðar hæðir hússins en flutti sjálfur upp í tvö herbergi í risinu. Þau voru hjartanlega þakklát og gleðin geislaði af þeim.
Þegar árin liðu varð þessi tilvera æ hversdagslegri og þar kom að gamla manninum fannst veruleg breyting orðin á viðmóti sonar síns og fjölskyldu hans í sinn garð. Það var orðið engu líkara en þeim þætti hann vera orðinn eins og niðursetningur á heimili þeirra. Þetta féll honum afar þungt.

Hann ræddi þetta stundum í trúnaði við fornvin sinn sem þótti hér komið í vont efni. Eitt sinn þegar þeir hittust sagði vinurinn að þeir skyldu taka til sinna ráða. Hann hafði tekið með sér eina milljón í peningum og lét gamla kaupmanninn hafa. "Í kvöld kem ég í heimsókn til ykkar" sagði hann. "Ég þekki son þinn vel og hann er vel stæður. Þegar við höfum allir spjallað saman stutta stund þá ber ég upp erindið sem er á þann veg að ég eigi í skammtíma erfiðleikum með fjármögnun og bráðvanti eina milljón strax. Það mun sjálfsagt standa í syni þínum að verða við þeirri málaleitan að lána mér þá peninga. Þegar það er sýnilega komið í þrot þá skalt þú koma hógværlega til skjalanna og bjóðast til að lána mér upphæðina. Eftir viðeigandi gleði mína skaltu fara upp til þín og dvelja þar dálitla stund en koma svo aftur niður og láta mig hafa þessa peninga."

Þetta gekk nú eftir. Vinurinn kom í heimsókn og fór fram á skammtímalán sem sonurinn sá engin ráð til að verða við. Gamli kaupmaðurinn kom þá til skjalanna og sótti upp í herbergið sitt eina milljón í peningum sem hann lét vininn hafa.

Eftir þetta gerbreyttist viðhorf sonarins og eiginkonu hans til gamla mannsins og nú var eins og hann væri aftur orðinn dýrmætur hluti fjölskyldunnar. Þegar hann dó flýttu þau hjónin sér að kanna herbergið hans nánar. Þar fundu þau ekkert fémætt - aðeins umslag sem stílað var til þeirra. Í því var þessi vísa:

Ég er farinn allra veg
- ást og hlýju ykkar finn.
Okkar tíð var yndisleg -
einkum seinniparturinn.
8. apríl 1998  - Aðalbjörg Eir 11 ára

Árin komi, mæt og mörg,
milt ég til þín pára
bestu óskir, Aðalbjörg,
- orðin ellef' ára.

18. febrúar 1998  - Pétur Örn 49 ára

Töfra bjóða tímans dyr
- tökum þátt og hikum eigi -
hamingju- og heillabyr
hafir þú á nótt sem degi!

31. janúar 1998  - Bragi Skúlason sextugur.

Bragi og Ingunn héldu teiti í Tjarnarbæ við Sauðárkrók þar sem komu stórt hundrað manns og stóð fram á nótt. Aftast á síðu gestabókarinnar er þessi vísa:

Pennann minn ég ber á blað
- bráðum fer að daga -
dýrt ég met að eiga að
Ingunni og Braga.

5. febrúar 1998 - var gengið frá VHS-spólunni með afmæli Braga. Á spólubakinu eru tvær vísur. Önnur segir frá því að í afmæli Braga kvaddi sér hljóðs Jón, skólastjóri í Hólum, og kom víða við en sagði m.a. að það mætti ráða af göngulagi Braga hvort hann væri ánægður með verk sitt:

Jón í Hólum stakk við staf,
sté til árs og daga:
gæðastaðal greindi af
göngulagi Braga.

Með kveðju frá okkur RFr fylgdi þessi vísa:

Hugur veit af vinastað
vestan Tröllaskaga
bjart er þeim sem eiga að
Ingunni og Braga.

21. desember 1997  - Þórir Pétur Pétursson skírður

Vaskur skírður var hann á
vetrar-sól-stöðunum -
framtíð kemur - fer hann þá
fimur á vöðunum.

13. desember 1997  - Vísa næsta árs

Vinda tímans oft er undruð
aldrei leitar sátta -
nú er komið nítján hundruð
níutí'og átta.

1. nóvember 1997  - laugardagur hjá GGí

Í vari hjá mömmu eigum við eina stund:
ofan í hugann seytlar rósemd og friður,
æsingur hjaðnar og glæðist hin létta lund
og loks verða áhyggjur allra sem dúnn og fiður.

19. okt. 1997  á Ljósafossi hjá Irmu

Blikar á bláa strengi
blíðan er endalaust
tíbrá um teig og engi
- tindrandi fagurt haust.

18. október 1997  í matarboði hjá Freyju og Þóri

Fölur er skógur og farið að dimma
- fléttast um himininn bjarmar í loga -
þá komum við hingað á Klapparstíg 5A
í kvöldverð af algjörum hátíðatoga.

27. júlí 1997  í Berlín - Guinnes-gestabók.

Þar var 40 tonna gestabók sem stefnt var á að verða heimsmetsbók og fá inni í heimsmetabók Guinnes. Þar bættu RFr og Irma nöfnum sínum við og þangað fór einnig þessi vísa:

Sá hér orðum eftir tók
á því getur klifað
að í Guinnes gestabók
GÓP-i hefur skrifað.

19. júlí 1997  * Á Eyrarbakka

Gísli Jakobsson og Johanne voru á Eyrarbakka og einnig Signý dóttir Jagga og Jon maður hennar. Þar var margt fólk bæði skylt og einnig tengt Geirakoti þar sem Gísli var í sveit. - Í gestabók:

Stundin er flogin með fögnuð í sinni
en framtíðin lengi skal minningu vagga
um hópinn af fólki sem hérna var inni
er hér komu Gísli og Signý hans Jagga.

5.-8. júlí 1997 - Guðrún Gísladóttir og GÓP í Norðurlandsreisu

Við skoðuðum minjasafnið á Akureyri:

Það er nú ekkert voða, voða
með verðlausa hluti fleiri og fleiri,
- mér fannst samt ágætt að mæta og skoða
Minjasafnið á Akureyri.

Við gistum í Skúlagarði í bjartri og sólríkri hásumarsnóttinni og fögrum morgni:

Þessi veröld er af fegurð full,
ég fór hér út í logn og sól og starði -
það var morgunstund sem gaf mér gull
að geta vaknað upp í Skúlagarði.

GGí færði Safnahúsinu á Húsavík myndir úr fórum Herdísar Jakobsdóttur. Úti voru veður mild og inni gekk hugurinn í bland við næstliðna öld:

Veröldin er engu lík
- öll með blíðuveður,
Safnahús á Húsavík
hug og auga gleður.

30. júní 1997  * Kveðja til Jóns úr Vör

Vísa með bókinni Í erli dægranna til Jóns úr Vör. Textinn allur á blaði festu fremst í bókina Í erli dægranna:

30. júní 1997 - Atvikin hafa gert mér þá gleði að ég hefi kynnst Jóni úr Vör. Á næstliðnum þrjátíu árum áttum við fyrst samstarf og síðan góða viðkynningu og hann hefur gefið okkur Rögnu Freyju nokkrar ljóðabóka sinna. Þessi atvikaflétta veitir okkur kærkomið tækifæri til að færa honum þessa ljóðabók.

Orðsins jöfur, Jón úr Vör,
jafnan höfuð bragsins!
Hér í stöfum: Erill ör,
und og töfur dagsins.

27. maí 1997 * Jón Sæmundsson 75 ára - vísa í skeyti:

Léttur - og í lyndi glaður,
ljúfur sínum frændum öllum.
Heill þér, vin og heiðursmaður!
Heill þér, Jón frá Krakavöllum!

27. maí 1997 * Við útför Þóru Jóhönnu Jónsdóttur.

Þóra starfaði mörg ár með RFr við Sérkennslustöð Kópavogs og líka eitt ár sem við vorum öll saman ásamt Karli Jónssyni í Hlaðgerðarkoti.

Langt er nú síðan að ljúfast við kvöddumst.
Lýsir enn huganum minningasproti
er saman við unnum og saman við glöddumst
í Sérkennslustöð og í Hlaðgerðarkoti.

21. maí 1997  * Íslenski Everest-dagurinn

Þreyttir - en UPPI! á Everest
eftir torfæru-sniðglímur -
inntu af höndum afrek mest:
Einar og Björn og Hallgrímur.

Fýsti að kanna þol og þor
þreyja frostið og fjallavindinn
klifu æ hærri klettaskor -
klifu að lokum upp á tindinn.

Þeir hafa klifið Gríðar-Geir
- gætilega með færni slynga - .
Án þess að ætla - eiga þeir
aðdáun allra Íslendinga.

18. maí 1997  - Fermingarsystkini GGí hittast á 100 ára afmæli

Eyrarbakkahrepps Liðin eru 63 ár frá fermingardeginum og aðeins eru eftirlifandi 8 af 16 eða 17 alls. Samkoman var í Gamla-Læknishúsinu.

Ennþá vakir æskugaman
aftur er ég orðin(n) krakki.
Hingað okkur hóar saman
100 ára Eyrarbakki.

12. maí 1997  - Svona fæðist staka:

Hugur nær í niðurlag.
Nokkrar myndir vaka.
Svo er málið sveigt í hag:
Svona fæðist staka!

5. og 12. maí 1997

Nokkrar veðurvísur

12. maí - nú tindrar allt
- talsvert betra veður:
nú er ekki norðan-kalt
- nýtt sem skjaldan skeður!

6. maí er sól við hnjúk
- sindri landið klæðir -
þó er bæði frost og fjúk:
Fýkur yfir hæðir.

5. maí 1997

Jökulsins blik er í blænum
og blikið er næturkalt
og enn er'ann svalur af sænum
þótt sólskinið ylji allt.

þessi vísa var ranglega dagsett þann 6. maí og þegar það uppgötvaðist varð þessi til:

Núna er ég alveg hlessa
- ei er tíminn kyrr!
Ljóst er að ég orti þessa
einum degi fyrr!

22.3.97  til Karls Jónssonar.

Um traust og lipurt aksturslag Karls Jónssonar - hvað sem á gengur og hversu stór sem bíllinn/rútan er.

Öryggið er ökusiður
- eins þó verði ögn að ralla.
Út og suður, upp og niður -
enginn ekur á við Kalla.

Mars 1997 Fannst endilega að til þyrfti að vera vísa sem endaði á orðunum: Sjoppurnar við styrkjum seinna

Rennur sól og roðar brúnir rinda hreinna.
Sjáum betur, sjáum beinna -
sjoppurnar við styrkjum seinna.

22. maí 1995  - í matsal Orkustofnunar

Hér sit ég glaður við bitans borð
og bregð á pappírinn penna
og fæ á örkina orð og orð
því orðin úr honum renna.

Hvað gleður mann eins og matarhlað
og matinn finn' í sig renna?
Ja - ekki neitt - nema besta blað
sem bíður hreint - eftir penna.

Feb 1994  í En-lausu ferðinni. Veðrið var stórkostlegt á leiðinni austur sveitir.

Er sem landið okkur greiði
allar götur - faðminn breiði:
ökum við í óskaleiði
austur yfir Hellisheiði.

1994 í En-lausu ferðinni: Þá var fagurt í Mýrdalnum

Móður jörð - hvar sólin setur
sína geisla, mild og há, -
pelli býr og prýðir betur:
Pétursey er fjólublá!

* Feb 1994 í En-lausu ferðinni - í gestabók hússins í Miklafelli

Við ókum hingað í einu rúsi
yfir harða velli
og áðum í þessu úrvalshúsi
undir Miklafelli.

Feb 1994 í En-lausu ferðinni. Þetta varð síðar miðerindi í afmæliskveðjum til ferðafélaga - og að lokum í Far-roðanum.

Sjá roðann í austri! hann brýtur sér braut!
boðar fullkominn öræfadag!
Hvílík fegurð og dýrð sem oss fellur í skaut!
Hvílík fylling í ævinnar lag!
Og litflóðið háa
um ljóshvolfin blá
sem ljómar nú Íslandi á!

05.09.1993  - ekið niður Fimmvörðuháls eftir för frá Lakalandi á Mýrdalsjökul og þaðan yfir á Eyjafjallajökul.

Hér er vörðuð braut um börð
- blæs á svörðinn, frjálsi, -
og úr hörðu er hún gjörð
á Fimmvörðuhálsi.

05.09.93  - Þorsteinn Sólheimabóndi veitti okkur leiðsögn á Mýrdalsjökli en þar var þoka efst uppi.

Nú óku þeir kaldir um skriðjökulsker
- af skelfingu sat ég og góndi -
en sleppi ég lifandi þakka ég þér,
Þorsteinn minn, Sólheimabóndi.

á Skírdag
vorið 1997
Gíslavinafélagið fór á Skeiðarársand  í einmuna veðri.

Ánægð, glöð og einnig þreytt,
augun eins og stjörnur skinu -
Skeiðarförin gekk nú greitt
hjá Gíslavinafélaginu.

4. mars 1997  - Seinniparturinn er svo ágætur að maður eiginlega verður að búa til á hann fyrripart

Margur afar orðstæltur
með andans sáld
heitir áður hagmæltur
en höfuðskáld.

18. janúar 1997 á Þórsmörk - vetrarferðin

Öndin kemst á æðra stig
- yndi býr í sinni -
hamingjurnar heiðra mig
hér á Þórsmörkinni.

16. febrúar 1997 - Skírð Þórey Kristinsdóttir Sigursveinssonar

Snertir alla snótin björt
snemma broshýr þóttir
þraut að gleði þú færð gjört,
Þórey Kristinsdóttir.

5. febrúar 1997 - Ásdís Guðjónsdóttir

Ásdís fertug! - snjöll og börnum blíð
og bjarminn hlýr -
af Dalbraut færðu ósk um úrvalstíð
og ævintýr.

9. des. 1996  - Voða-vísur:

Við mig hefur viljað loða
- vart þó talist geti skaði -
að ég hefi verið voða
veikur fyrir auðu blaði.

Í desember er dagur voða
dimmur mestanparts
en mér væri skemmt að skoða
Skeiðará í mars.

4. des. 1996  -GÓP+GGí+Sigr.Ásm.+Eva í Selfoss-Eyrarbakki-Rvík að vitja Sigurðar á Sjúkrahúsinu á Selfossi. Inni á Kaffi Krús:

Þett'er gott og gamalt hús
og gleðina ég með mér ber.
Ég er inná Kaffi Krús
og kominn fjórði desember.

Í Gamla læknishúsinu á Eyrarbakka: (Veðrið hafði verið eindæma fagurt)

Yfir háls og yfir heiði
- yfir fjallagoðann -
ökum við í óskaleiði
inn í morgunroðann.

21. september 1996  - við útför Hreiðars Jónssonar bónda í Árkvörn (19.01.1918 - 14.09.1996)

Þegar lít ég þunda jörð
þeysa sé ég Hreiðar
yfir hæstu himinskörð
- hefur tvo til reiðar.

1996  - Gleðilegir áfangar!

Það er alveg yndislegt
áfanga að fagna.
Ykkur gefist gleðilegt!
GÓP og Ragna.

1996  - Til Litlu Kaffistofunnar

Blikar ljós er ber mig nær
- börnin staðinn lofa -
hvíldarunað lúnum ljær
Litla Kaffistofa.

Maí 1996  - við útför Sigríðar Sigurðardóttur

Afl þitt og orku sóttir
í Eyjafjallabrag
Sigríður Sigurðardóttir
sem við kveðjum í dag -
sem ég kveð í dag.

13. apríl 1996 - Sigurður Gíslason áttræður
Írskt þjóðlag: Wild Rover

Hann Sigurður Gíslason áttræður er
því apríl er kominn og vorið er hér
og ömmubörn leiðast í læknisins hús
og lyfta hér glösum - þó í þeim sé djús
--
segja: Hæ! hó! Siggi!
* * * hér er veisla og fjör!
Hér dokar nú stundin,
á stanslausri för.

3.4.96

Tifar fjólan fjaðurmild,
fjöllin höfuð hneigja,
sjá - hér er hún Íris Hild -
ássins huldumeyja.

22. des 1995  GÓP, GGí og Sigríður Ásmundsdóttir í Eyrarbakka- og Stokkseyrarferð.

Gerð var ferð af þessum þrim
- þokkinn blikar, forni.
Morgunskjanna ber á brim
bjart á vetrarmorgni.

4. okt 1995  - við Ljósafoss

Þó það virðist vera flaustur
veit ég að það er
fjarska gott að fara austur
fjórða október.

2. sept 1995 - Samúel Guðmundsson 60

Fórum við háan fjallaveg
í fegursta mánaskini!
Myndin er eftirminnileg:
margt var um trausta vini
með inngripin örugg og elskuleg.
Einum af þessu kyni:
sextugum kveðju sendi eg
Samúel Guðmundssyni

28. ágúst 1995  - á fyrsta kennarafundi í MK

Kjörin eru orðin skar
aurinn upp er urinn
þó af öllu verstur var
verkfallsárangurinn.

22. ágúst 1995  - Sverrir Hilmarsson fertugur.
Vinnudagur á Eyrarbakka við að slá upp stillönsum. Til staðar eru Sverrir, Steinunn og GÓP.

Léttur er þinn lipri hæll,
leiftra augun hlýju.
Alla ævi sértu sæll!
Sverrir, fjörutíu.

12. ágúst 1995  - Fyrripartur á botn!

Fer minn óður fyrir bí
fremur óhaglega
stuðlum þó hún stendur í,
stakan ódauðlega.

30. júlí 1995  - í Eyrarbakkaferð

Enn er heimsókn austur gerð
- eflist ættarkraftur
við Eyrarbakkaökuferð
og í bæinn aftur.

22. júlí 1995  - Sumarferðin á Njáluslóðir

Einmuna veður
Laugardaginn 22. júlí 1995 í logni og glaða sólskini var haldið austur úr Reykjavík og sem leið liggur eftir gamla veginum um Svínahraun. Hann var fyrst lagður 1877-8 og síðan lagaður og endurbættur á sama stað en nú er hann víða orðinn harla grýttur. Við gengum um Kolviðarhólinn í stafalogni með sól á heiðum himni. Þó skyggndumst við árangurslaust eftir Búasteininum í fjallinu norður frá Hólnum því ekkert okkar þekkti hann - þótt hann væri bara rétt vinstra megin við slóðina upp í Yxnaskarðið - ofan við spýtnabrakið úr skíðastökkpallinum.

Skein yfir landi sól á sumarvegi
Stundum hefur verið haft á orði að höfundar margra Íslendingasagna hafi ekki aðeins klætt persónur sínar litklæðum við hversdagsstörf heldur einnig gætt þess að hafa alltaf úrvals veður - rétt eins var þennan bjarta dag:

Frammá skjómans skæru tíð
skarpur hjó menn víða,
sólarljómi lék um hlíð,
- logn og rjómablíða.

og silfurbláan Eyjafjallatind
Jökullinn skartaði sínu fegursta og taðan angaði þegar við áðum við Hlíðarendakirkju:

Tær er veröld til að sjá
tifar urt í blænum.
Hugarsjónum horft er frá
Hlíðarendabænum.

Síðan gleymdum við okkur um stund í litríkum viðburðum Njálu.

Réttrar sjónar kelda
Í Rauðaskriðum og á Bergþórshvoli var kominn nokkur andvari en útsýnið ógleymanlegt upp til fjallanna og út til Vestmannaeyja. Þaðan var haldið um Hvolsvöll að Keldum á Rangárvöllum þar sem menn böðuðu augu sín með vatni úr nærlægri lind sem í hópnum var nefnd Maríu-brunnur og taldist veita öllum rétta sýn:

Ef að týnist rétta rýn
ráðasón ég melda:
bætir rýn og réttir sýn
réttrar sjónar kelda.

Mjög jókst mönnum réttsýni við þetta
- en ef þú, lesandi góður, leggur leið þína til Keldna að finna Maríubrunninn
þá skaltu fyrst skoða myndirnar neðan við þessa grein.

Okkur dvaldist í góða veðrinu á Keldum og sungum við undirspil í kirkjunni. Síðan héldum við vestur yfir Rangárvelli, fórum hjá Gunnarsholti og að Þingskálum. Þar gengum við um búðir. Þá bar svo við að reiðmenn leituðu vaðs og fóru yfir Rangá og við gátum séð fyrir okkur hvernig þeir Gunnar og Njáll höfðu þar verið á mannþingi:

Garpur knár um garða fer
Gunnar sá hinn slyngi -
fortíð þá með okkur er
á Þingskálaþingi.

1. júlí 1995  - Í Garðabæjarlaug

Um mig leika löðrin hlý
- líkt er sem ég dotti -
ljómar dagsins lúxus í
laugar heita potti.

21. júní 1995  - hugsað til gönguferðar um Rvík um miðnætti 17. júní með BBP

Endurbæta alltaf má
Íslendingabraginn
þó að allir þekkist á
þjóðhátíðardaginn.

12. júní 1995 - Við útför Maríu Þorsteinsdóttur

Þó nú á kveðjur kunni
að koma nokkurt hlé
í endurminningunni
eg áfram til þín sé.

Maí 1995 

Æða-fullin hæst á hoppa
hjartans bullu - hring
ævi-gullin er að toppa
úrvals fullnæging.

14. maí 1995  - Í Eyrarbakkaferð

Alltaf eflist - eins og sérð -
ættar önd og kraftur
við Eyrarbakkaökuferð
og til baka aftur.

6. maí 1995 - Fyrsti laugardagur

Senn kemur grunurinn græni
gróðurinn vaknar þá
varmur er andblærinn væni
- vorið er brostið á.

30. apríl 1995  - Farið til Siglufjarðar í fermingu Karls Hersteinssonar

Í indælisveðri einn apríldag
ókum við bjarta vorsins jörð
og kvöldsólin merlaði ljóð og lag
og liti norður við Siglufjörð.

Sól hófst úr ægi yfir jörð
- allt var með hægum vindum -
morgunninn sindraði Siglufjörð
sveipaðan fjallatindum.

Og meðan gáran bærði bát
og blæinn kyrrði og kyrrði
fermd voru börnin keik og kát
í kirkju á Siglufirði.

mars/apríl 1995 Lind fær nýtt rúm

Vænum litum vefur sig
vor í björtu húmi -
lán og gæfa ljómar þig,
Lind, í þessu rúmi.

11. febrúar 1995  - Sigríður Sigurðardóttir fimmtug

Afl þitt og orku sóttir
í Eyjafjallabrag
Sigríður Sigurðardóttir
sem ert fimmtug í dag.

25. janúar 1995  - Afmælisteiti í kennarakaffi - Ingólfur A. Þorkelsson 70 ára 23. jan sl.

Terta mikil tætt í spað
- teiti gott við borðin -
og tilefnið er - auðvitað -
að Ingólfur er
orðinn.

Janúar 1995

Segi ég í jólarími:
ég var ósköp latur -
heimskulegur háttatími
heimskulegur matur.

Vinda tímans oft er undruð
- áfram veltur grimm -
nú er komið nítján hundruð
níutíog fimm.

Desember 1994 - svar til Magnúsar Kr. Jónssonar

Þegar stefið frá mér fer
finnst mér rétt að lýsa
yfir því að þetta er
þrítug jólavísa:

Ganga jól um garð og hól
gleðja sjóla skjaldar.
Nýjárssól við norðurpól
næturkjóla faldar.

Þakka styrk - og það að fá
þel af óða-steðja.
Hérna kemur, frænda frá,
friðarjólakveðja.

11. nóv 1994  

GÓP-fréttir á einum stað
og auðvitað til þess að
ef að þú vilt eiga blað
að þú getir tekið það.

12. okt 1994  - Til Vikars með ferðabók Nansen:

Þessi bindi, þykk og blá,
þóttu forðum skólinn
Nansen sjálfur segir frá
svaðilför á Pólinn.

16. ágúst 1994  - Leiðbeining til sundlaugagesta:

Í sturtu skil ég skítinn minn
og skrúbba þegar ég fer inn
þvæ svo af mér laugarlút
líka þegar ég fer út.

6. ágúst 1994 - Fyrsti laugardagur og Sigríður Ásmundsdóttir 75 ára

Hún hefur brosmild lagt sitt lið
ljómar af henni þróttur
- sætustu kveðjur sendum við
Sigríði Ásmundsdóttur.

5. ágúst 1994 - Fæddur Ágúst Örn í Odense kl. 06.38

Uggs í heimi er það vörn
og óskahugur glæddur
að heillakallinn Ágúst Örn
Ólafsson er fæddur.

17. júní 1994

- kl. 21

Málræktarvísa Stöðvar-2 og Bylgjunnar - og Málræktarsjóðs:
Fyrri partur fyrst vísu er frá þeim:

Á Þingvöllum mun þjóðin fá
þjóðhátíð að fagna.
Ekki mun við Öxará
Íslandsklukkan þagna.

Pára verð ég Post Scriptum
pergamentið á
anda mínum upplyftum
ögn að létta á:

Stóð eg við Öxará
eina skamma lífsins stund
ég kom þá - og þú komst þá
á þjóðhátíðarfund!

Var í brjósti vonin skær -
virt og glæst var efndin!
- Þessar kæru þakkir fær
Þjóðhátíðarnefndin.

Júlí 1994 Látin tengdamóðir Böðvars Bjarka

Þegar ljárinn leggur strá
- lífsins skárar vegu -
ég við gráti aðeins á
orðin fátæklegu.

Maí 1994

Stundum er í heimi hart
- hjálpin dugar skemur -
þá er "orðið" ekki margt
er að gagni kemur.

1994 María Þorsteinsdóttir áttræð:

Tímabil áttu tvenn og þrenn
talhrein og einbeitt þóttir -
megirðu gleðjast mörg ár enn
María Þorsteinsdóttir.

Í DV var María ættfærð til margra presta:

Ættina prýðir prestaher
- prentað í DV - ei ég ýki -
María glögg og glettin er
gulltrygg inn í himnaríki

21. apríl 1994 Annar sumardagur

Vetur hopa verður frá
vors því kveðju segi:
ykkur gleði óska á
öðrum sumardegi.

20. apríl 1994 Kópamessudagur. Á tölvubraut er Elvar Níelsson:

Sólin björt og glettin fer um geislageiminn:
- Elvar - sem var áður dreyminn -
er að fara út í heiminn.

Allar ferðir upphefjast á andartaki
er þá góður gleðivaki
að geyma það á almanaki.

Mars 1994 Þreytandi aðstaða á vinnuherbergi kennara:

Aðstaðan er ei svo ill
að ekki nái vana
en það mætti ef til vill
endurbæta hana.

16.-17. apríl 1994 var aðstaðan betrumbætt - a.m.k. til bráðabirgða:

Hér er orðið inni stætt
- allt í þekku standi -
aðstaðan var endurbætt
og er viðunandi.

Upp skrifað

8. apríl 1994

Verður lokum verka náð?

Verður lokum verka náð?
víst mun tími ráða
- ég kann ekkert annað ráð
en að kýla á'ða.

Klósettvísan - sem mætti gjarnan hanga uppi á mörgu almenningsklósettinu:

Öllum setum upp þú skalt
ávallt lyfta, góði,
og ef þú pissar út um allt
ertu bara SÓÐI.

Okkar menn við kjötkatlana

Liðsmenn í bláu og líka vens-
laðir á jötuna hnappast við rökin
að nú er að verða síðasti sjens
því sjálfstæðismenn er'að missa tökin

30. nóv 1993 - Á rissblaði

Ráð er að þakka - rétt er það -
risspappír Jóna skilaði
en enginn óskaði eftir að
athafna sig á rissblaði

þessvegna hef ég þetta ort
þó ekki sé það kvæði
en risspappírinn er orðinn kort
- án þess að það til stæði.

Kemur hér loksins stakan stök
- stendur á fornum grunni:
í henni finna allir rök
og eru á meiningunni:

Dagsins erill eykur brun-
ið í streitukófi
- en alltaf er nú afslöppun
yfirseta í prófi.

30. ágúst 1993 

Æskusindur er um hind
ýfir vindur lokka
þetta er Lind við lífsins tind
ljúf með yndisþokka.

26. maí 1990 - MK-söngurinn.

Lag:

Sjung om studentens lyckliga dag,
låtom oss frojdas i ungdommens vår -
Än klappar hjärtat med friska slag!
och den ljusnande framtid er vår.

Inga stormar än
i vårt sinne bo,
hoppet är vår vän,
vi dess löften tro, när vi knyta forbund i den lund,
där de härliga lagrarna gro: Hurra!

* * * * * * * * * * * * * * * *

Allt er svo bjart þennan bláfagra dag
blikandi framtíð - í æskunnar óði!
Alheimur skartar með skínandi brag -
skundum djarft fram á blikandi slóð!

Heill Menntaskólanum
í Kópavogi!
Heill! Menntaskólanum!
MK! Þar sem æskan var leikur og ástin kom senn!
Endurómar í hjartanu enn!
MK! Þar sem við öll urðum menn!
Húrra!

31. mars 1990 Auka - 'vísa Íslendinga'

Við höfum fundið fjör og gleði saman
við fögnuð bæði hals og fljóðs og pars
sem hérna þótti þrumustuð og gaman
á þessum þrítugast'a og fyrsta mars -
og nú er lýkur ljúfum vinafundi
við lítum björtum augum fram á veg
eins og á morgni geisli sól á sundi
er setur nýjan dag - svo elskuleg!

20. des. 1989 20. des. 1989.

Enn er hjá Rannveigu og Ingólfi kennarapartí
- sem ömmunni vinsælu úr Dölunum hefði þótt margt í.
Samkvæmið byrjar um fimm að hefðbundnum hætti
og hingað var öllum tjáð að koma ætti.

Í Hlaðbrekku fjórtán er alltaf mjúkt að mæta
- mér finnst það lyfta geði og andann bæta
að eiga hér inni - þegar aftur er skólinn -
eina - tvær stundir . . til þess að glæða jólin.

Hér sé ég Þorstein og Jóhann og hér sé ég GÓPinn
- já, hér sé ég mestallan MK-kennarahópinn -
dasaðan ögn - en öll hefur önnin blessast
og allir því byrjaðir strax að braggast og hressast.

Á góðri stundu er ljúft að líta til baka
og láta hugann við samstarfið gæla og vaka
frá önninni fjöldamargs er að minnast og geyma
en margt er það raunar líka sem best er að gleyma.

Á jólatrénu logar mörg ljósaperan
og leiftrar hlýleik útyfir veraldarfrerann
skiptir þá minna máli hjá konum og köllum
að kannski hefur þar aldrei logað á öllum.

Í þessari vísu þakka ég önnina alla
allt sem er gengið - með kosti sína og galla -
GLEÐILEG JÓLIN og gangi ykkur allt í haginn
og gifturíkan hvern komandi framtíðardaginn.

Svo hittumst við, félagar, öll eftir áramót aftur
eins og því stýri allsráðandi kraftur -
já, rétt eins og í okkur magnaður máttur togi
að Menntaskólanum í Kópavogi.

Nú er loksins komið að endingu óðsins
- en ég ætl'a að stýra merkingu viðtökuflóðsins:
Fyrir mér viðstaddir kannski ögn klappa megu
en klappa svo húslof þeim Ingólfi og Rannveigu!

Laugard.

22. okt 1988

Í Noregi (Kl:14.53).

Prúða og indæla Una
með ástúð og innri funa
nú áttu afmælisdag!
Ævin er afmælaruna
og af því fer mig að gruna
og yrki í afmælisbrag
í skóla þú skjótt munir bruna
og skrifa og lesa og muna
- skoppi þér allt í hag!

13. sept 1988 Í Noregi - þriðjud. (Kl:22.11).

Þið, sem fylktuð til fjalla
og fóruð um hlíðar og hjalla
þar sem orkan og æðri kraftur
uppfyllir líkamann aftur
skriður klifuð og kletta
klár - og án þess að detta -,
Jóhann, Una og Anna -
eruð nú komin til manna.

Des 1987 Jólakveðja

Hækkar á himni sólin
hér upp við norðurpólinn
fer hún um stjörnustólinn
og styttir skammdegiskjólinn

Rauð eru byggðu bólin
bjarmar á þökin og hólinn
- snúast hátíðahjólin -
hafið það gott um jólin!

Des 1986 Jólakveðja

Ár eftir ár eftir ár ...
verður það erfiðara
að láta töfraloga æskujólanna tendra sálina.
Þá eru börnin himnasending!

Þeirra jólaævintýri
kemur svífandi á töfraskýi kl. 6 á aðfangadagskvöld
og umvefur þau.

Þessir töfraálfar ævintýrisins!
Eftirvænting þeirra
umvefur okkur og glæðir jólalog í brjóstið
- ár eftir ár eftir ár ...

Úr vísum

frá

maí 1983

Nefndir eru kennarar við MK

Upp ég stend og vísu vel
- vona að fyrtist enginn -
Þorstein, formann, fyrstan tel,
fræða og lista drenginn.

Ingólf nefna milding má
- minnir á Seif að ráðum:
Ólympos hann er að fá
- Aþena kemur bráðum.

Kennir, togar, áfram ýtir
ungu hjörðinni:
ákveðin sér Ásdís flýtir
eftir jörðinni.

Einörð þykir Ingibjörg
svo allir fylgja þema
- sífellt hress og aldrei örg:
yndi MK-nema.

Jóhann háa hefur raust
hæst á bláu fjalli
fer um lá og lífsins naust -
ljúfi, dáði, snjalli.

Hittir í mark með hugmynd snjallri
- hálfri - eða allri!
Fullur af útþrá - fullur af von -
Finnbogi Rútur Þormóðsson.

Sólveig okkar er á línum allra landa
og glæðir skólann fimum, fínum,
frönskum anda.

Kanadiski, norski, þýski, enski, franski Íslendingur ..
við þekkjum öll að þessi halur -
það er hann Alan Réttidalur.

Einörð mjög á allan veg -
ætíð röskleg þóttir,
geysi snjöll og gæfuleg
Guðrún Helgadóttir.

Sigurður fer oft á stjá
út að taka myndir -
á við marga aðra þrjá
er á fjallatindi.

Þegar djúpt úr ausu er
illt að súpa kálið -
Þórður kemur, Þórður sér,
Þórður leysir málið.

24. júlí 1976

Þótt sé hverfull heimurinn
hver sinn skerf þar hlýtur.
Besti erfiseimurinn
er að hverfa nýtur.

5. jan. 1975

 - í gestabók á Hlíðarvegi 16

Taumlaus er tímans ferja
- vér tókum oss með henni far
á brun milli brota og skerja
í brimvarir framtíðar.

1972 Sverrir Árnason - fermingaróskir og kveðjur

Eigðu í hryðjunum ætíð þann undraskjöld
að afspyrnuélin öll birtir upp um síðir
og þá muntu skynja - er hækka himnanna tjöld -
Að hásalir lífsins eru bjartir og víðir.

1970  - um skjótferð í Jökulheima
Á þessum árum fóru minni bílar yfir Tungnaá á bílakláfnum á Haldi og óku norðan við Þórisvatn, um Veiðivatnahraun að Þröskuldi undir Lýsingi og svo inn með Ljósufjöllum í Jökulheima. Þetta þótti ágætlega gert á 8 klst. Stórir bílar gátu farið Hófsvað og verið fljótari. Samt þótti GÓP aldeilis ótrúlegt þegar það fréttist að Guðmundur Jónasson hefði ekið úr Reykjavík um Hófsvað í Jökulheima á 4 klst og 15 mínútum. Þar af varð til þessi vísa:

Lítið er nú landið vort
og létt um það að streyma:
á fjórum tímum fór - og kort -
fram í Jökulheima.

30. apríl 1969 Yfirseta í Landsprófi.
Íslensk ritgerð með ýmsum valmöguleikum
- og auk þess var gefið eitt auka-ritgerðarverkefni:

Penninn minn

Oft ertu, penninn minn, geislandi glaður
og grípur til skeiðs yfir örkina hálfa,
töfrar fram veraldir vinnandi hraður,
vindana skekur og kyssir álfa,
blómlífsins nýtur er bergmálið þýtur
og bláheiðið hvíta þér lýtur.

En stundum, þá veröld er villt og flúin,
verðurðu tjáningarmátunum rúinn,
illur í skapi og öfugsnúinn
og engu kemur á blað.
Þótt sólflóðið þegnunum þráðu árni
- þá ertu bara úr plasti og járni
og þá er ei furða mér þyki og sárni
þegar þú dratthalast ekki af stað,
- og þú um það!

Mars 1968

Fossanöfnin

Gömul þula höfð eftir Höllu Jónsdóttur í Árkvörn
með nöfnum fossanna í Fossum sem er fossasvæði vestan við Bleiksárgil í Fljótshlíð.

Sídjarfur innstur sýnist mér
svo Búþarfur eftir fer,
Gendill er hér geysistór.
Gumphaus ofan fyrir klettinn fór.
Spýtingur jafnan spjarar sig
spyr hann Brúðu: Viltu mig?
Rófulangur er ræfilsgrey.
Rekkar nefna Leginmey.
Meyjarmiga er mikið pen,
má svo nefna Þriggja spen (Þríspen).
Næturótti svo nafnið ber
og nú eru upptaldir lækir hér.

GÓP endurskrifar þuluna:

Sídjarfur byrjar,
Búþarfur kyrjar.
Gendill er þriðji
þó Gumphaus ei styðji.
Spýtingur bunar
og Brúðulag dunar.
Rófu- er langur
Leginmeyjar-angur.
Meyjarmiga er oft sén
míga á Þríspen
þá Næturótti blossar.
Nefndir eru Fossar.

Des. 1965 Jökulheimar
Jólakveðja til
Péturs Sumarliðasonar, Jökulheimabónda:

Ljósufjöll og Gjáfjöll,
Gíghóll og Bláfjöll.
Gnapi, Rati, Mosaskeggur,
Garpur Fitjar, Skálaveggur,
Tungnaá og Breiðibakur,
Botnaver og Jökulkrókur.
Nýjafellið, Fóstra, Dór
fylla Jökulheima kór.

Fleygiskvísl og Félagar.
Flæðir Stak á sandi þar.
Heimabunga, Heimalind,
Hamar, Systur, Jökulmynd.
- -
Standa há í fjarska fjöll.
Fögnum næsta sumri öll.

Sumarskreppan
1965

Við höfum sofið Eldgjá í,
átt þar skamma viðdvöl því
að um Sveinstind leiðin lá,
Langasjó og Tungnaá.

7. júní 1961

ári undan
Rún !

Handa fljóði fann ég óð
fram úr skjóðu minni:
mærin rjóða fimbulflóð
fékk af ljóðmerinni.

Pegasus  (gömul vísa)

Einn er léttur upp við klett
undir fjalla stalli
eykur nettan andans sprett
óðsins snjalla kalli.

>>  
>>  

GÓP-fréttir  * efst á þessa síðu