Vísna-Mál
6. ágúst 2010
Finnum yndis fjallakór
- fáum hvíldarnæðið
þegar stikar jörfajór
Jökulheimasvæðið.
27. maí 2010
Rjóð eru himinn og rjómalognsær,
reika um fljóð og gumar,
vindur er þýður og veröldin tær:
víst er nú komið sumar.
6. maí 2010
Glæringar viğ gríðarmáttsins hvoft,
glampar skjótast mökkinn dökka - ljósa,
öskuskýið er við efstu loft:
Eyjafjallajökull er að gjósa.
30. mars 2010
Gosið á
Fimmvörðuhálsi
Hrundi glóğ um hrannabrimin,
hraunaelfur rann -
inn í röğul-rjóğan himin
rauğur loginn brann.
21. feb. 2010
Eyjafjöll og Tindfjöll
Þorradagsins lita leið
liðast grund og hjalla,
ljómar birtan himinheið
handan Tindafjalla.
12. des. 2009
Þrettándaferð
í Þórsmörk
Eigðu tímans yndisför
- ylji loginn dýri -
ljómi bráin ljúf og ör:
líf er ævintýri.
6. des. 2009
Jólakveðjan
Stjörnublikið ber á grund,
brosir jólagaman:
væntumþykja, vildarlund,
vinastundir saman.
29. sept. 2009
Tíminn - lífsins ljúfa hnoss,
líðandinnar vegur,
fjörsins gleði eys á oss,
ævintýralegur.
20. sept. 2009
Nautalda
Aftur kemur fararfúsi
flokkurinn í hröðum skrefum:
Bjarnalækjarbotnahúsi
betri húsa einkunn gefum.
28. ágúst 2009
Sunnan jökla
Hingað kem ég ferðafús
fram um tímaálinn
hér er ljúft og lipurt hús:
Leppistungnaskálinn.
31. júlí 2009
Sumarskreppan 2009
Sólin gyllir sumarjörð
sýslur, þorp og hreppa
- nú skal rennt í Norðurfjörð
- nú er sumarskreppa.
7. maí 2009
Hægar líða himinský
hljóðnar gnýr á vegi
hnígur sólin hafið í
- hallar góðum degi.
26. apríl 2009
Kjörið loksins komst á blað
- koðnar mörgum brosið.
Það er ljóst af þessu hvað
þjóðin hefur kosið.
16. apríl 2009
Veröldin er víð og blá
vafin şekku rími:
lipurt víkur vetri frá
vorsins birtutími.
4. apríl 2009
Þegar ógn að fjöri fer
fimur greinir ráðin.
Vigtar lítt þá lokið er
- líka hetjudáðin.
22. mars 2009
Vaðaferð
Fari áin fram með gný
finndu væða staði
loks með varúð leggðu í
leit að traustu vaði.
5. mars 2009
Vetrarskreppa
Fjöllin teygja tindana
til að litkast betur:
roðum glæsir rindana
rennibjartur vetur.
5. jan. 2009
Þrettándaferð í Þórsmörk
Mörkin veðramildi gaf -
margt var þó af grjótinu
en fyrirstaða engin af
álunum í Fljótinu.
12. des. 2008
Jólakveðjan
Jólin ber í bjarta slóð
blika vonir nýjar:
- Jólaóskir, jólaljóð,
jólakveðjur hlýjar.
28. nóv. 2008
Norðurljósa himnahrím,
heiður stjörnugeimur,
veðrastillu vetrarrím:
Vænn er Íslands heimur.
13. nóv. 2008
6 vikur
Sigið er nú siglutréð
sest er þjóðarskúta
og við segjum: útaf með
óráðsíu-stúta!
12. okt. 2008
Suðurland í austurátt
upp í slyddu strengs-vind
skutumst til að skoða hátt
Skaftárhlaup við Sveinstind.
28. sept. 2008
Ferðadöfin
Haustið með laufið í litum
og landið svo skírt og tært
og angan af eini í vitum
og Ennisfjall silfurhært.
22. maí 2008
Finningu sem örlar á
eins og handan vöku
oft á tíðum eygja má
inn um litla stöku.
8. maí 2008
Litakvöld
Birtan á blikandi kvöldum
ber okkur gleðinnar arð -
sólin hún situr að völdum:
sumar er gengið í garð.
26. apríl 2008
Sigurður Ásgeirsson
Lagði frá sér lífsins bók
- leiðir átti fínar -
þekku brosi þar með tók
þakkarskuldir mínar.
8. mars 2008
Þórsmörk og Tindfjöll
Eins og segul eigum stað
innan vegs og sanda:
Mörkin dregur okkur að
- yndisleg að vanda.
24. feb. 2008
Febrúardagur
Geislunum stafar úr stöðunni neðri
á standfjöllin hvítu og auðu.
Um hábjartan daginn í heiðskíru veðri
er hvítbirta sólar með rauðu.
4.-6. jan. 2008
Þrettándaferð í Þórsmörk
Góður hópur, glettni-lið,
gert var út af örkinni,
glöð í bragði gripum við
góða tíð í Mörkinni.
Jólin 2007
Tvöþúsund og sjö er senn
siglt úr hugans inni
okkur færði æ - og enn
indæl vinaminni.
8. des. 2007
Langjökulskreppa
Lyftir sinni, léttir arm
leið um fjallagoðann
þar sem jökulbjartan barm
ber í aftanroðann.
27. nóv. 2007
Loks má hefja leitarí
- lýkur minnisstriti -
líklega er efnið í
efnisyfirliti.
12. okt. 2007
Hugur sýnir bjartar ber:
brátt mun farið víða.
Handan regns og rosa er
rýnt til betri tíða.
3. ágúst 2007
Lágt á himni líður hlý
ljómun yfir hafi:
Kringdur röðull kveður í
kvöldsins litatrafi.
27. júlí 2007
Sumarferðin
Rennur sól í roðalog
rjóðra skýjabálka
glitar fjöll og vík og vog
Vesturfjarðakjálka.
4. júlí 2007
Þakgil og Grænafjall.
Bílaferðafélagið
fylgir tímans kalli:
þröngan stig við Þakgilið
þræðir efst á fjalli.
21. júní 2007
Glóey roðagyllir heim
glitra sund og vangur
ljómar veröld lófum tveim
lengsti sólargangur
9. júní 2007
Reykjanesferð
Kliðurinn var kríuarg
kysstu gárur dranga
heim er sóttum Heiðnabjarg,
Höfn og Selatanga.
7. júní 2007
Munar í ylinn
Kannski missir kölski ró
klökkva með og volum -
en ég vona að hann þó
eigi nóg af kolum.
31. maí 2007
Vörmum sporum vorið fer
- vaknar margur bríminn,
senn að okkur svifinn er
sumarferðatíminn.
11. maí 2007
Snæfellsnes
Snarast var á Snæfellsnes,
snætt við Djúpalónið,
- sæll er hópur sem að les
sindurbjarta frónið.
23. apríl 2007
Öll er nú fönnin orðin meyr,
ylurinn greikkar sporið,
andar á vanga þýður þeyr:
það er víst komið, vorið.
19. apríl 2007
Við Goðastein
Frystir í læki hrímishrip
hrynur á klakahlein.
Farþjónn breytist í galdragrip
gengur á fanna rein.
Jökullinn er með jötunsvip
jafnan við Goðastein.
Þar er sem tefji tímans skip
- tignarleg útsýn ein.
27. mars 2007
Þórsmerkurpáskar
Svífur yfir brún og brá
bjarti geislinn hýri:
pjakkar nú og pæjur fá
páskaævintýri.
13. mars 2007
Hveravellir
Þegar Kári karlinn hlær
kátt úr veðrabrunni
heitir gott ef heiðbjart nær
helgarlendingunni.
7. mars 2007
Farhugann góða gl'ðum:
- giskum að vetrarkul
frysti á fjallasv'ðum
framan við Langjökul.
19. feb. 2007
Langjökull
Búnað og birgðir tókum
blakkir og tóg og spil -
Langjökul austur ókum
ofan í Dauðsmannsgil.
5. feb. 2007
Vísnagaman og vísnamál
Hörður! Þakka þína bók:
þessi ljóð til manna,
hvernig vægi hvert eitt jók
hversdagsatvikanna.
27. jan. 2007
Febrúarferðin
Blásið er til fleiri ferða
fer þá margur glaður -
Landhreppsmanna Laugar verða
ljúfur gististaður.
24. jan. 2007
Umhverfismál
Heimsendina ætíð skalt
uppspinna með bragi
- engin frétt er ef að allt
er í himnalagi.
14. jan. 2007
Keldnasvæði
Minnið geymir myrkurrjóða
morgungeislaþræði.
FÍ-bílar fengu góða
för um Keldnasvæði
7. jan. 2007
FÍ á Þórsmörk
Vart þó fengjum vagl á kinn
var - úr tíðar handraðanum -
vissulega velkominn
veturinn á þrettándanum.
Jólin 2006
Jólin koma - eftirvænting vex.
Vinakveðjur flytur þessi lína:
Jólatónninn 2006
tær og bjartur gleðji þig og þína.
21. okt. 2006
FÍ á Þórsmörk
Jökullónið blikar blátt,
blær er kyrr á fleti,
ísaspegill, undragátt
yfir jökulseti.
1. okt. 2006
Í Jökulheimum
Er að renna upp á loft
árdagsbjarmi fagur
fyrir höndum er - sem oft -
úrvals ferðadagur.
22. sept. 2006
Á Þórsmörk ég vakna
og lít yfir
heiðjöklahring
hrím er á jörðu
og sólin
er afboði nætur
hraðinn er mikill í ánni
- en kyrrð er í kring -
komið að tímanum
til þess að rísa á fætur.
16. sept. 2006
Hofsjökulshringur
Nýidalur! Nú er lag!
Nú er logn á húsum!
Boðar mildan, mætan dag
mönnum fararfúsum.
8. sept. 2006
Brekánið frá Gunni
Rjúki fold við reginstig
og rofni himins brunnar
þá er ljúft að leggj'á sig
leynivopnið Gunnar.
Sprett svo upp á Sprengislóð
sprækur segi yður:
Víst er úti veðurhljóð
en veðrið gengur niður.
9. ágúst 2006
Bláa strauma blikar á
blotar undan höllum
kaldalindir kliða hjá
Keldum, Rangárvöllum.
7. ágúst 2006
Úrvalskosta á ég völ
en ég rölti milliveginn
annars fæ ég óðar kvöl:
allt er betra hinum megin.
2. júlí 2006
Mosabirta
Undrafjall með ísaskart
efsta skýið greiðir
meðan landið mosabjart
mildan faðminn breiðir.
15. maí 2006
Svínaskarð
Hug af dvala vekja varð,
- var þá enginn tregur:
liggur yfir Svínaskarð
skemmtilegur vegur.
23. apríl 2006
Skaftárhlaup
Skaftá kemur kolamor,
kastar iðuföllum,
skilur eftir flaum og for
fyllta jökulsöllum.
8. apríl 2006
Vötn og vöð
Indælir allir kantar
- áttum hér ferðaval -
mínus hve mikið vantar
myndir úr Húsadal.
2. apríl 2006
Eyjafjallajökull
Vötn og himinn voru blá -
veðrið gladdi alla,
14 bílar fóru þá
ferð á jökulskalla.
25. mars 2006
Langjökulshellar
Stálafákur stikar veg,
stíg og jökulskalla,
opnar mönnum ótrúleg
ævintýri fjalla.
4. mars. 2006
Vötn og vöð
Hafaldan hvelfist að landi
hvítsindrar brotsins foss.
Ljósmynd af Landeyjasandi
litlu sunnan við Kross.
23. feb. 2006
Eitthvað er vorið að villast.
Vegirnir slakna og spillast,
leka úr vetursins viðjum.
Vorið er á honum miðjum.
17. feb. 2006
Silfurmorgun sól óspör
seiðir fjallaköllin.
Áttum þessa fínu för
fram í Eyjafjöllin.
7. jan. 2006
Þórsmörk á fjórtándanum
Indæl vetrarveðraröð
var á Merkurmótinu
áttum líka ágæt vöð
og á Markarfljótinu.
Áramót
Dagar fyrr um háa heiðið
hægt nú birtan vex:
tilbúið er tímaskeiðið
2006.
Suðurskautslandið
Fjöldinn horfir feginn á
ferðamannastandið
- ekki minnst er sjón að sjá
Suðurheimskautslandið.
Jólakveðjan 2005
Ljómar sunna lengri dag,
litar næturkjóla.
Heill þér gefi góðan hag,
- gleði árs og jóla.
23.10.2005
Vonarskarð - Bárðargata
Sést hér á mynd og mynd á víxl
malarvegurinn harði
liggjandi þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði
11.9.2005
Suðurjöklahringur
og Rauðibotn
Veðrið er ljúft í logni
og lífið er eins og ég vil
- mín ósk er úr andránni togni!
Það er indælt að vera til!
31.8.2005
Fyrr var áð við Sveina sjö.
Sá er fara kunni
bein um Sprengi bar þá tvö
Beinakerlingunni.
23.-24.8.2005
Kjölur, Merkigil ofl.
Fóru Kjölinn fornpeyjar
fannst og mikils virði
för úr dalnum Flateyjar
fram að Hvalvatnsfirði.
3.8.2005
GGÞ til varnar - og aftur
Halldór styður út í eitt
- ekki veitir af'ðí -
sá má aldrei segja neitt
svo ei finnist að'ðí.
17.8.2005
Veðrið um ófá áratog
aldregi betra yrði:
fundum við straumafallið og
Flatey á Breiðafirði.
15.8.2005
Eðli mannsins er að svara
áskorunum athafnanna:
enginn lætur framhjá fara
fengitíma atburðanna.
26.7.2005
Sumarmorgunsólin flott
sindrar af mér lúrinn,
manni gerir meir en gott
morgungöngutúrinn.
15.-25.7.2005
Fæeyingar á Laugavegi
Alla þreyta ásarnir,
ofan margur feginn,
þegar göngugarparnir
ganga Laugaveginn.
18.-20.7.2005
Stundum bjartan, stundum rakan,
stundum veður dimm:
sumarskrepputöfratakan
2005.
20.6.2005
á Hamaröy
Sé ég að í sálu mér
síast myndi ljós inn
væri ég sem Hamsun hér
í húsinu við ósinn.
16.-26.6.2005
Noregsmyndir
Sumarhlýr og sérlegur,
- sólin spilar rullu -
þegar Norður-Noregur
nýtur sín að fullu.
28.5.2005
Hálendið í bláma býr,
brosa fljóð og gumar,
nú er þýður þerrir hlýr
- það er komið sumar.
14.5.2005
Ofvirkniumræðan
Þjóðin undrast þannig tal,
þá fer allt í hringi
þegar fordóms fávíst hjal
fer úr skáp á þingi.
8.5.2005
Mýrdalsjökull
Undir glansi fannaflár
fundum huldusprungu
ókum næstum niðrí gjár
nærri Goðabungu.
3.5.2005
Esjan er ekki fögur
og Esjan er ekki ljót -
kærfinning mjó og mögur
mótast við hjartarót.
24.4.2005
Himinhringur nú er nýr
neistar morgunn fagur
fyllir heiði fagurhlýr
fjórði sumardagur.
26.3.2005
Merkurdagur
Ókum þokur undir ský
inn í bjarta stiptið,
meira var þó aðeins í
ánum þetta skiptið.
19.3.2005
Eitt er þarfar innantómt
ess með lykkjutaki.
Hulið margt er fremur frómt.
Freisti sá hinn spaki.
12.3.2005
Undir ferðabjartri brá
blika augu vökul -
góða skreppu áttum á
Eyjafjallajökul.
9.3.2005
árris
Bregður nótt við birtuskil
byrjar ómur lagsins
þegar vitund vaknar til
viðfangsefna dagsins.
9.2.2005
Öskudagur
Eftir taka margur má
mættinum sem ræður:
öskudagurinn sér á
átján veðrabræður.
8.1.2005
Fimmtándaferðin
Ósköp gaman þótti þá
þessum hópi sjóla:
fram á Þórsmörk fór hann á
fimmtándanum jóla.
2.1.2005
Ferðakveðja
Áramótaheitin hafa
haldið sig við trimm,
efndaferlið tak án tafa
2005.
25. des. 2004
Jóladagur 2004
Jólaóskavenjan var
vinahjörtum kosin -
kærast þökkum kveðjurnar,
kossana og brosin.
2. des. 2004
Jólakveðjan 2004
Jólasveinajólin blíð
jólaljós og sögur -
eigðu jóla töfratíð
2004.
29. nóv. 2004
St. John's
Okkar valda vesturfar
væng og hreyfla þandi -
áttum stundir ágætar
á Nýfundnalandi.
21. nóv. 2004
Vefa skör um vötn og ál
veturkóngsins fingur
Gladdi okkar munamál
Merkurvatnahringur.
10. nóv. 2004
Margt að verða, margt að ske,
margt þú kannski fyndir
færirðu á FKE
forsíðu og myndir
30. okt. 2004
Vindar blása bjartan seið
brautin víða liggur.
Okkur sýndi langa leið
Langasjávarhryggur.
24. okt. 2004
Sveipti gulli sjó og land
sól á norðurhveli
fórum þá á Fauskasand
framhjá Auraseli.
10. okt. 2004
Bylur á fjöllum
Veðrið blint er firna fól
- feykir vindur hvessinn -
þá er gripið tækni-tól:
treyst á gps-inn.
10. okt. 2004
Leið 16 og Dynkur
Erum komin öll á stjá
og með hlýju vinki
Hrauneyjunum förum frá
fram að gamla Dynki.
7. okt. 2004
Hveravallavarðinn
Höllu Fjalla-Eyvindur
átti bú til fjalla
en þó virðist ótengdur
inn til Hveravalla.
29. ágúst 2004
Síðsumarferð 2004
Heljarskarð í Hjaltadal,
hörslasandinn gríðar,
heiðina í Haukadal,
Hörðudal - og víðar.
26. ágúst 2004
Karl T. Sæm
Sólin, hún situr í hlíðum,
sindrar hin hvíta mjöll,
glaður þú skundar á skíðum
í skála við Tindafjöll.
27. júlí 2004
Orkunám
Undirbúningsiðju er
um það bil að ljúka.
Saman afl og orka fer
inn við Kárahnjúka.
24. júlí 2004
Fáskrúðsfjarðar frændaher
fimum höndum iðjar,
- silfurkveðjur senda h;ér
Sumarliðaniðjar.
18. júlí 2004
Brenniás
Upp um holt og ofan af
eftir heiðalendum
júlí glæsijörðu gaf
Jakobsafkomendum.
12. júlí 2004
Sumarskreppan 2004
Er ég forðum falinn lá
fyrir vinda máli
fremur góður fannst mér þá
Fremrigiljaskáli.
29. júní 2004
Ísland
Blási vindar votlegir
veðrið sólin lagar
þegar koma þjóðlegir
þúsund veðra dagar.
26. júní 2004
Forsetakjör
Ástþór keyrði í sitt fen.
Ýmsir Baldur hylla.
Órg er drottinn dagsins, - en
Davíð, - hann fór illa.
25. maí 2004
Lind
æskusindur er um hind,
ýfir vindur lokka,
hér er Lind við lífsins tind,
ljúf með yndisþokka.
23.april 2004
Dátt er að nema dyninn
í daganna böggli:
Framtíðin flytur inn
þótt fortíðin ströggli.
9.april 2004
Eyjafjallajökull
Hef ég hugann káta
hérna undir björkinni.
það er ljúft að láta
líð'úr sér á Mörkinni.
21.mars 2004
Langjökull
Yfir jökulbungu breiðir
bylurinn sitt hvíta sjal,
hríðarflókann langar leiðir
leggur fram á Kaldadal
9.mars 2004
Gullfoss
Gullfoss brimar boðaföll
bólgnar kvikan gljúpa
æðir flóð með ærslasköll
oní gjána djúpa.
26.feb. 2004
Nýtt sjónarhorn
Nýju hjónin nefna senn
nýja ungalinga,
nýrra tíma nýja menn
nýrra upplýsinga.
8.feb. 2004
Þegar loksins galar GÓP
grípast spjör og leppur.
Gleður okkar hressa hóp
Hveravallaskreppur.
25.jan. 2004
Ók í færi, frosti hertu,
fargreiður.
Skemmtilegur skjöldur ertu,
Skjaldbreiður.
11.jan. 2004
Vetrarferðin í þórsmörk
Vötn og fljót um fjalla sal
flétta streng og ála
þegar lið úr Langadal
lokar Skagfjörðsskála.
4.jan. 2004
Er sem nemi kynja-kall,
klettamyndir lesi,
meðan sit eitt sjávarfall
sæll í Fiskinesi.
26.des. 2003
Fjöllin dregur rjóð í röð
röðulsgeislinn hagur.
Kvöldið sest á tindatröð.
Takk! þú fagri dagur.
14.des. 2003
Vatnahringur
Það, að geta vaknað við
víða, bláa heiðið,
táknar bara, býst ég við,
besta æviskeiðið.
5.des. 2003
Jólakveðjan 2003
Hugarsending, heið og blíð,
hefur jólasögur,
þökk og ósk um töfratíð
2004.
1.des. 2003
Togar mann og tefur
truflar hugann ört
hvað sem maður hefur
heimskulega gjört.
20.nóv. 2003
Langadals-skreppa
Þegar á ég, vinaval,
von á ykkar fundum
langar mig í Langadal
löngum, góðum stundum.
20.nóv. 2003
Spurningalistinn
Sá sem mann úr spjörum spyr
sparar hikið stysta
ef hann hefur fengið fyr
fullan spurnalista.
6.nóv. 2003
Kærleiksspilið
Veist að þú átt þessa hlíf
- það á næsti skilið
að þú hlýju ljómir líf:
leikir Kærleiksspilið.
25.sept. 2003
Úlfatíminn
Örugglega eigum sum
erfiðleika skilið
sem að vitum ekki um
úlfatímabilið.
13.sept. 2003
13. sept.-ferð JÖRFÍ í Jökulheima
Mætti hópsins morgunbrá
morgunsól í flosi
urðu karl og kona þá
kát með fjallabrosi.
16. ágúst 2003
Davíð og Gunnur
Ykkur gangi heil til hags
hending náttúrunnar:
sá sem grípur gleðir dags
gætir hamingjunnar.
28. júlí 2003
Sumarhringur 2003
Ókum fjöll og undir ský
- yfir steina hála -
Dyngjufjalladal og í
Dyngjufjallaskála.
Fjölskyldan Sig
Spjara Sig og Spóka Sig
Sperra Sig og Rífa,
Hækka Sig og Herða Sig
Hypja Sig og Drífa.
21. júní 2003
Sólarstöðustund er nú.
Stillt er önd og vangur
er um landið líður þú:
lengsti sólargangur.
7. júní 2003
Myndrænt!
Hefur verið traust og trú
textaframsetningin.
Myndin breytir! Næst er nú
nýja uppsetningin!
25. maí 2003
Yndislegir mæta mér
Merkur-endurfundir.
Ljúfi staður, þakka þér
þínar góðu stundir.
24. maí 2003
Seinna lítum aftur á
ævi vorrar haga -
minningin mun þekkja þá
þessa góðu daga.
15. maí 2003
Apotekið
Oft fær ráðið reynslu bylt,
raðgert verkaklifin,
og hér færðu, ef þú vilt,
affelgunar-lyfin.
4. maí 2003
Þjóðarseiðinn þylur oss
þessi hvíti hökull.
Útsýnið er algjört hnoss,
Eyjafjallajökull!
25. apríl 2003
Það er eins og allir sjá
á Fríkirkjuvegi:
peysufötin prýða á
Peysufatadegi.
17.-19. apríl 2003
Páskaskreppumyndir
Oftast ekki mikið mas
meira ef affelgast, þá
verður sosum soldið bras
að setja dekkið aftur á.
11.-13. apríl 2003
myndir - ferlar
Þegar heppnir þeysa hæst
- þar á ofan hreppa
veðurblíðu - verður glæst
Vatnajökulskreppa.
29. mars 2003
Kveðja
Ilmar sýn um innstu hlið
er - í hlýju skini -
gengnir áar gleðjast við
Gísla Jakobssyni.
28. mars 2003
Umbunargaldurinn
Ekki seinkað, ekki flýtt,
allt á réttum grunni:
umbun komi ótt og títt
- eftir framvindunni
23. mars 2003
Karl T. Sæm er kominn á
kæran stað að spjalla
ljómar glettni, létt er brá,
ljúft er inn til fjalla.
11.3.2003
Byrja, skapa, búa til,
bæta, laga, græja,
hjálpa, veita vina-yl,
vera, brosa, hlæja.
26.2.2003
Markarfljótið
Oft ég þakka Inga staf
er ég kenni grjótsins
- sérlega í ýmsum af
álum Markarfljótsins.
25.2.2003
Fá í störfum strengirnir
stilling náttúrunnar
vel þeir dafna, drengirnir
Davíðs Karls og Gunnar.
20.2.2003
Ganga úr sér gúmmískór
grýtt er hraunafetið:
riðar stinnur jörfajór
Jökulheimanetið.
15.2.2003
Andartaksins fer í frí
finnst, er mikið stressar,
hvíla geð að grípa í
gamansögur þessar.
2.1.2003
Ferðakveðja
Hljóma glettnu hlýju stefin
- hlökkum ég og þú!
treystum böndin, tökum skrefin
2003.
11.12.2002
Jólakveðja
Koma jólin - hæ og hó -
hefjast jóla-párin:
Fáir gleði, frið og ró!
Farsæl komi árin.
26.11.2002
Við Tungnaá
Við Hófsvað í hlýju og regni
er horft yfir ólgandi straum
og óttast að vart mönnum vegni
að vaða og aka þann flaum.
16.11.2002
Kveðja
Víst var ei allt sem í óði
ævinnar þrönga stig
en núna var gullvagninn góði
gerður að sækja þig.
27.10.2002
Haustferðir 2002
Nú er kvaddur kokkurinn,
kær þökk húsfreyjunum
þegar ferðaflokkurinn
fer úr Hrauneyjunum.
27.09.2002
Haustferðin 2002
Jökulheimahúsakynni:
- hópur vaknar klukkan 7.
Hlýtt og bjart í haustferðinni
haustið 2002.
13.09.2002
13.sept.-ferð JÖRFÍ
JÖRFÍ er í Jökulheimum
jafnan 13-september
hækkar þá á gömlum geymum
gleðin - eins og vera ber.
12.08.2002
Héldum áður hópinn oft
hurfumst innan tíðar
hittumst svo á hótel Loft
hálfri öldu síðar.
5.08.2002
Hátíð víða fór á flot,
fólkið veður elgi,
meir en áður varð nú vot
veislumannahelgi.
21.07.2002
Ekkert nema auðnin grá
allt frá Tungná upp til fanna,
og svo við, sem vorum á
veisluborði öræfanna.
24.06.2002
Hverfur ekki sól í sjá
- sést í djúpum brunni,
bláir himnar brosa á
bjartri Jónsmessunni.
13.05.2002
Rómur fer um borg og bý
býður nemandanum
trausta mennt að taka í
Tækniháskólanum.
16.04.2002
Fa á Bjarni Bjarnason
búlu margra heima,
á ég þar á öllu von
- er að vökudreyma.
06.04.2002
Undraljóðið í þér býr,
eygir hróður víða:
lífsins óð og ævintýr
inní glóðum tíða.
03.03.2002
Bjarni 60
Sindrar nú þín sextugs-skál,
sólin hyllir drenginn,
höndin traust og hugdjörf sál
hefja gleðistrenginn!
12.02.2002
Leggur aldrei ár í bát,
opin vina gættin.
Hún er bæði kær og kát
Krakavallaættin.
10.01.2002
Sigurjón Pétursson
Þegar siglir Sigurjón
sali himinvinda
vinahugur fer um Frón
fullur kærra mynda.
02.01.2002
Hlaupum, klifum, hvergi rifum
heims um undrin sjö,
iðum, tifum, töfrum, lifum
2002
13. des. 2001
GÓP og Ragna gaman skrifa
- góðum hug er veitt:
Jólakveðjur til þín tifa
2001.
8.10.2001
Áttirnar á enda sér,
um er lognið tæra:
eg hef beðið eftir þér,
yndishaustið kæra.
2001
mottó Vefskólans:
Eitt er gott um allan veg
og sem aldrei bilar:
úthaldsþrjóskan elskuleg
árangrinum skilar.
29.07.2001
Morgunn
í Jökulheimum:
Ljóssins þytur nú er nær,
niðar lognsins bragur,
jötunbliki jörðu slær
Jökulheimadagur.
02.07.2001
Ofvirknibókin
Kemur lið við lítinn kút,
lagast brautin flókin:
Loksins komin er hún út
Ofurvirknibókin.
12.06.2001
Ættarmót
Ættarmótið, ættarmótið,
einu sinni enn!
Allir koma saman
afskaplega gaman!
Erum saman, erum saman
einu sinni enn!
11.05.2001
Alexander Bjarmi
og litli bróðir
Trítlar inn og tosar sæng
tindrandi og rjóður
tekur undir verndarvæng
voða lítinn bróður.
Ferðaloginn:
úr Far-Roðanum
:,:Oss framtíðin laðar
um fjall og um vað.
Vér förum á fjarlægan stað!:,:
29.3.2001:
Bjarni og Helga
Ykkur réttum - yfir lönd
yfir bláan sæinn
alúðar og heillahönd:
Til hamingju með daginn!
24.3.2001:
Ferðadöfin
Nú er veröld víð og blá,
vitjar þankinn kæri:
snjór um hlíðar, ísar á,
ævintýrafæri.
7.1.2001:
Þórsmerkurferðin
Nóttin líður - nú er hér
niður ísa-lagsins
og þau bíða eftir mér
ævintýri dagsins.
11.12.2000:
Eigðu happ og heillafund,
heilsubót og glaða lund,
jólahug og jólastund!
Jólakveðjan 2000.
05.12.2000:
Töfrar okkur tíðin mild:
tifar blærinn svalur.
Sólin leikur litasnilld:
ljómar himinsalur.
í heita
pottinum
ág. 2000:
Auðvitað er alltaf kíf
og einhverjir sem deyja
en það er lúxus þetta líf
það verð ég að segja.
Þórsmörk
(Morning has broken ..)
18. júlí 2000:
Þórsmörk er alveg
einmuna staður
ymur þar galdur
árið um kring.
þar kem ég dapur,
þar kem ég glaður
þar kem ég hljóður
- og þar ég syng.
úr
En-lausu 1994:
Nýjar fregnir telja trú
og traust í alla yður:
Gísli Ólafur er nú
aftur kominn niður.
23.4.2000:
Páskaskreppan
við Arnarvatn:
Klukkan sjö og sól er há
sem er þeirrar gerðar
að hún kallar okkur á
og til nýrrar ferðar.
9.4.2000:
Oddur B. Grímsson
50 ára:
Ævintýrin eigir víð
íss á landi kjörnu
gangir alla ævitíð
undir heillastjörnu.
2.4.2000:
Merkurferð 1.-2.4
Vetrarfæri, tóg og tog,
tiplað yfir grjótið -
oft um Krossá ekið og
yfir Markarfljótið.
31.3.2000:
GóP-60
Finnumst við og fögnum dátt
fátt er meira gaman
en að geta glaðst og átt
gleðistundir saman.
13.03. 2000:
Freyja og þórir
Eruð fyrir ofan skýin
og með blik í augunum
gangið allan ævistíginn
undir heillabaugunum.
Feb. 2000:
Gleðivélin
Óðar kveikir bros á brá
- bræðir skelina,
glampar auga, glóir á
gleðivélina.
26.02.00-18:17
Hekla
Mökkur hátt á himin rís,
hver sér vægðar biður,
upp um herðar Heklu gýs,
hraunið vellur niður.
10. feb. 2000:
23.01.00 57sm
Ertu kominn, unga tröll!
- af þér ljómar sjarmi
og þú gleður okkur öll,
Alexander Bjarmi.
24. jan. 2000:
Ókum austur veðravor
- vildum finna björkina.
Víða lagði vatnaspor
vetrarferð í Mörkina.
9. jan. 2000:
Spinnst úr tímans miklu móðu
mögnuð lífsins stund
- ykkur færi allt í góðu
árið 2000.
23. des. 1999:
Ykkur berast okkur frá
og á hlýjum nótum,
allra bestu óskir á
árþúsundamótum.
3. des. 1999:
Töfrum búni tímans rokkur
teygir hjólin
og úr buska yfir okkur
eru jólin.
27. nóv. 1999:
Í Þórsmörk í fjölbreyttu færi.
Um fjöllin lék árroðinn kæri
og himinninn tæri
sem hló þótt ég færi
upp Hvanná með krapið í læri.
28. okt. 1999:
Eins og hálfgert hitableyti
haustið er -
nú er hér á næsta leiti
nóvember.
15. okt. 1999:
Ók í einu rúsi
yfir harða velli
upp að úrvals húsi
undir Miklafelli.
26. sept. 1999:
Morgunn við Álftavatn
Álftavatn úr niði nætur
nú er slegið töfrablæ.
Þytur dagsins þýðast lætur.
Þorgeir Helgi segir: Hæ!
25. sept. 1999:
Á Þórsmörk
Blíðast er á okkur yrt
allar Merkurstundir:
gróður brosir, kjarr er kyrrt,
Krossá ymur undir.
19. sept. 1999:
Einum galdri eg hef kynnst
uni heilla-sáttur
er mig töfrar yst sem innst
orðsins kyngimáttur.
23.07.99
Drjúpa stóru droparnir
drög og mýrar flota,
síga jarðar soparnir
- senn er allt í blota.
26.06.99
Fróm er þökk og fjarska hlý
frá oss hjónum, brellnum,
fyrir úrvals fæðu í
Fjöruhúsi, Hellnum.
18.06.99
Kveðja
Roðar heiminn rjóða ský
- roðnar það af hlýjunni
er Jakob Hallgríms hljómar í
himnasinfóníunni.
14.05.99
Baðar nú sólin bjartan sjá
bæi og sveitir lands:
þjóðinni færir alúð á
afmæli forsetans.
13.05.99
Vorið nýja nú ég sé:
næturhúmin dvína,
bráðnar þeli, bruma tré.
Bráðum fer að hlýna.
1.05.99
Hvíld frá ysi, hvíld frá bæ,
hvíld frá gný og skralli:
ferð í Þórsmörk fyrsta maí
fóru GÓP og Kalli.
19.04.99
Einhvern veginn held ég helst
heilsufarið batni
ef í læknisfræðum felst
ferð að Hagavatni.
12.03.99
Upp ég rifja enn á ný
ævintýri dagsins
þegar kvöldið kveður í
kvæði sólarlagsins.
07.02.99
Um Þingvöll á þorranum björtum
- það er ein stórkostleg för
sem upplyftir hugum og hjörtum
og heldur brosi á vör.
Gleðilegt ár 1999:
Vinda tímans oft er undruð
- enda upp á tíu!
Nú er komið nítján hundruð
níutí' og níu.
Jólakveðjan 1998:
Fer um hugi fákur besti
fetar kæra minnishlíð.
Ykkur beri gæfu-gesti.
Gleðilega jólatíð!
Gömul jólavísa:
Ganga jól um garð og hól
- gleðja sjóla skjaldar -
nýjárssól við norðurpól
næturkjóla faldar.
2.des. 1998:
Haustsins blíða heldur sér
hlýtt er tíðin spunnin,
nú er síðast nóvember
næsta þýður runninn.
Sept. 1998:
Andar blærinn undur laust
- yljar náttúrunni.
þetta ljúfa litahaust
líður seint úr minni.
Sept. 1997:
Hátt yfir tærum tindum
tifar hún, stjarnan skær.
Ísland í öllum myndum
er mínu hjarta nær.
Sept. 1996:
Kveðja
þegar lít ég þunda jörð
þeysa sé ég Hreiðar
yfir hæstu himinskörð
- hefur tvo til reiðar.
17. júní 1995
Endurbæta alltaf má
Íslendingabraginn
þó að allir þekkist á
þjóðhátíðardaginn.
19. febr. 1995
Framhlaup Tungnaárjökuls
Nú er lag að nýta dag,
nú skal rís'á fætur:
okkur gengur allt í hag
ef að vanda lætur.
26. júní 1968:
Jöklasystur sá ég fyrst
sólu kysstar rísa
hvassar, byrstar, efst og yst
- ímynd nyrstu dísa.
6. nóv. 1965:
Sprengisandur
Við höfum séð er sunnudagur
settist upp á loftið, fagur,
sólflóð braut á silfurhæðum
sindraði í litaglæðum:
- hvílík ægifegurð fleyg
er fengum við í einum teyg!
10.3.1962:
Jakob Gíslason sextugur
Þó að vísan verði sein
vill mig dísin hvetja, slynga,
svo að rísi rímugrein
um rafurlýsi íslendinga
Góð upplausn er 800*600
- ég nota 1280*1024
Kveðja!

webmaster