Forsíða
MK-miðstöðin

 |
MK á Grænlandi 13. - 15. júní 1995
MK-kennarar fóru náms- og kynnisferð til Grænlands og gistu tvær nætur í Quaqortoq - sem einnig nefnist Julianehaab upp á
dönsku. |
|
Wild Rover |
Texti: GÓP
Írskt þjóðlag: Wild Rover
Ath! Feitletruðu sérhljóðarnir í viðlaginu segja hvar dvelja
skal í söngnum!!
**** merkir að stappa skal fótum fjórum sinnum - |
KEF-
Narsarssuak |
Í júní til Grænlands einn flokkurinn fór og flaug yfir hafið í jökulsins kór og Íslandið það var í Keflavík kvatt og komið í Narsarssuak - undir bratt -- o-og - margt var um manninn
**** þar var hæ þar var hó! o-og gleði og galsi og geislar á sjó.
|
Til
Quaqortoq |
Hér þyrlu við tókum - einn hálfgerðan hólk - og hávaðinn truflaði Kópavogsfólk - en létt henni var yfir rindana rennt og rétt skömmu síðar í Quaqurtoq lent --
o-og - þar var'ann Allan
og hún Anna Hjartar og Anna Sigga og Ásdís Vatnsdal -
|
Á
hótelið |
Við komum á hótelið - hlýlegt og nýtt - og horfðum á landið - svo nakið og grýtt,
en vorum í sinninu fangin og fús og fundum í klettunum hús eftir hús --
o-og - þar var'ún Bára og Elísabet Þ(orn) og Hannesdóttir og Eyvindur Al -
|
Heimsókn
á
Verslunar-
skólann |
Til skóla eins hópurinn hélt nú af stað og ástæða virðist að tíunda það að klifum og óðum og æddum á fund og áttum í skóla mjög fróðlega stund --
o-og - þar var'ann Garðar og hann GÓP og Guðbjörn
og Guðjón og Guðrún og Helga Sigur -
|
| Laxmetið |
Um malbikuð stræti við mældum nú grjót og mættumst í verslun við brekkunnar fót og hótelið setti - til heiðurs og hags - upp hátíðakvöldverð - og matreiddi lax. -- þar var Hildur og Hildur og hún Hjördís Friðjóns og
Ingibjörg Haralds og Jóhann Ísak -
|
| Siglt af stað |
Glænýr vaknar dagur og nökkvinn er klár og niðmjúkur fjörður og himinninn blár og reifar nú veröldu rósfingruð dís við runnum hér innan um speglandi ís --
o-og - þar var hún Jóna
og þar var hann Kristján og Magnea Ingólfs og Margrét Friðriks -
|
| Hvalsey
og
Garðar |
Þar guðshúsarústirnar fundum við fyrst sem forfeður hafa á Hvalseyju gist og spáð var og spjallað hann Einarsfjörð inn - við áttum í Görðum að dvelja um sinn --
o-og - þar var Neil sjálfur og hún Soffía Waag og þar voru Solveig og Þórarinn og -
|
Heim
á leið |
Á heimleið fór skipper í nikku að ná og nú fóru dansarar allir á stjá á meðan jókst ísinn með ugg sinn og grand en indæll að eiga sem klaka í bland --
o-og - Þórhildur var þar og þeir Þórir og
Örn.
Alvaldur, Alvaldur, æ sé þeim vörn.
(Með viðeigandi lagi!!).
|
.. eins og
ljóðið
við lind .. |
Og Quaqortoq beið eins og ljóðið við lind við litum það speglast í fjarðarins mynd og nóttin var ung og við komum á krá og kliður í sinni og glampi á brá --
o-og - margt var um manninn þar var hæ þar var hó! og gleði og galsi og geislar á sjó.
|
Til
Narsarssuak |
Að morgni var fjörðurinn fullur með ís sem framundan stefni í sífellu rís og við fórum áfram og aftur á bak að ending með þyrlu til Narsarssuak --
o-og - margt var um manninn þar var hæ þar var hó! og gleði og galsi og geislar á sjó.
|
Horft til
Bröttuhlíðar
og síðan
heim til
Keflavíkur |
Á Brattahlíð horfðum við handan um fjörð með hugann við Eirík sem nam þessa jörð - Já, Grænland er allt með svo einstæðum hreim að eftirsjá ríkti er flugum við heim
-- o-og - margt var um manninn þar var hæ þar var hó! og gleði og galsi og geislar á sjó.
Hér er endir á kvæði - hér er veisla og fjör -
en alltaf við hugum að annarri för.
|
| Viðauki |
Nokkrir kviðlingar urðu til í ferðinni
og vegna hennar
|
Laxmetið var
eftirminnilegt -
en var
bætt upp
með eftirrétti |
Lax og ís - og eftir því einhver kaffidropi - Jú! við
erum jákvæð í Julianehåbi.
|
Garðar Gíslason
pantar vísu þegar
siglt er frá Görðum.
Nefna skal Garða og
nota orðið hrjóstrugt. |
Við höfum gengið um Garða - grýtt er þar bæði og hrjóstrugt að sjá - er það þó úrval jarða og eiga þar margir sína þrá.
|
| Ylur í ómi nætur |
Grænlandsveðrin þekk og þýð þelið gleðjast lætur er ég núna ykkur býð öllum góðar nætur.
|
Des. 1995:
Hugsað til
Grænlands-
ferðarinnar:
|
Í mér gjallar Grænlandið gleði-spjalla ómi ísa skalla útlandið er með fjallarómi.
Okkur rættist aldaþrá í Narsarssuaki þangað flugum yfir á einu andartaki
Stigir þú á Grænlandsgrund gripinn lú' og streitu áttu búna unaðsstund - allur rúinn þreytu.
|