|
GÓP-fréttir |
Guðm. G. Þórarinsson -
í Morgunblaðinu 4. janúar 2006:
Frábært
|
| Forsætis- ráðherra tekur á málum með festu |
Forsætisráðherra
beindi þvi til kjaradóms að breyta hluta dómsins varðandi laun æðstu
embættismanna og þingmanna.
Auðvitað getur forsætisráðherra ekki skipt sér að launamálum dómara. Það er allt annað með launamál alþingismanna. Löggjafarvaldið heyrir undir framkvæmdavaldið. Hann var að vonum ósáttur við að dómurinn féllst ekki á þessi tilmæli hans. |
| Grundvallar- breyting |
Ég
hitti mann á Laugaveginum sem sagðist aldrei hafa kosið framsóknarflokkinn
en nú mundi hann gera það. Svona forsætisráðherra þurfum við sagði hann.
Hann hélt áfram: “ Frændi minn var dæmdur í hæstarétti. Hluti dómsins var
honum hagstæður en hluti mjög óhagstæður. Þetta eru vandræði. Það er ekkert
hægt að gera, dómstólarnir líta á sig sem æðsta yfirvald. En loksins kemur
fram maður sem hefur kjark til að segja þeim að laga dómana. Ég ætla að tala
við Halldór og biðja hann að óska eftir því við hæstarétt að rétturinn
breyti þeim hluta dómsins sem var frænda mínum óhagstæður. Ef það fer að
verða algengt að dómstólarnir hlýði ekki forsætisráðherra þarf að setja lög
sem heimila forsætisráðherra að grípa inn í.”
Mér varð allt í einu ljóst að þetta frumkvæði Halldórs snýr að grundvallarbreytingu á grundvallarlögmálum í okkar þjóðfélagi og eins og maðurinn sagði, þar er margt sem þarf að breyta. |
| Menn hugsi sig um |
Svo
eru ýmsir sem ekki hafa yfirsýn yfir málið að agnúast út í Halldór fyrir
þetta. Menn eru að segja að hann hafi ekki skilið stjórnskipun landsins og
ég mótmæli því harðlega sem margir eru að segja að forsætisráðherra hafi
farið yfir um sem kallað er í þessu máli.
Það er undarlegt hve menn hafa tilhneigingu til þess að misskilja Halldór. Þegar hann sagði á flokksþinginu að herinn gæti bara farið, misskildu menn það. Hann varð að skýra það út sérstaklega að þessi orð sín þýddu að hann vildi hafa herinn áfram og viðhalda varnarsamningnum. Þeir sem ekki skilja þetta eru ekki læsir þó þeir þekki alla stafina. |
| Á réttri leið
Bjart |
Ég
held að margir verði þakklátir Halldóri ef hann getur látið breyta
óréttlátum dómum sem oft hafa fallið, það er að segja þeim hluta sem
óhagstæður er. Að vísu held ég að Halldór kalli yfir sig talsverða vinnu með
þessu því að svona dómar eru oft seinlesnir og flóknir.
Já forsætisráðherra, áfram á þessari braut og þá hlýtur fylgi flokksins að fara að lagast, minnsta kosti heyrði ég á manninum á Laugaveginum að hann ætlar að kjósa flokkinn ef hægt er að breyta dómnum hjá frænda hans. |
| Morgunblaðið 4. jan. 2006 |
Guðmundur G.
Þórarinsson er fyrrverandi þingmaður og gjaldkeri í stjórn Framsóknarflokksins. Til baka í greinar Guðmundar |