|
GÓP-fréttir
|
Af ćttfrćđisíđu DV í tilefni sjötugsafmćlis Páls: Páll B.
Helgason sjötugur 22. júní 2008
* * |
| F. 22.06.1938 |
Páll fćddist í Svíţjóđ en ólst upp í Reykjavík frá tveggja ára aldri. Hann gekk í Vesturbćjarskólann í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá MR 1959, stundađi nám í lćknisfrćđi viđ HÍ og lauk ţađan cand. med. et chir. - prófi 1967. Páll var námskandidat á Landspítalanum, Landakotsspítala og Borgarspítalanum ţar sem hann var einnig viđ framhaldsnám á svćfingardeild 1968-70. Hann stundađi framhaldsnám í orku- og endurhćfingarlćkningum viđ Mayo Graduate School of Medicine í Rochester í Minnesota 1970-74. Páll er viđurkenndur sérfrćđingur í orku- og endurhćfingarlćkningum í Bandaríkjunum og á Íslandi og hefur sótt námskeiđ og ráđstefnur á ţví sviđi í Bandaríkjunum, á Bretlandi og víđar. Páll var lektir í líffćrafrćđi viđ HÍ 1974-84, stundakennari í lćknisfrćđilegri endurhćfingu viđ HÍ um árabil frá 1975 og sömuleiđis stundakennari viđ Nýja hjúkrunarskólann veturinn 1975-76. Páll var sérfrćđingur í orku- og endurhćfingarlćkningum á Landspítalanum 1974-81 og yfirlćknir endurhćfingardeildar Landspítalans 1981-94, sérfrćđingur í endurhćfingarlćkningum viđ öldrunardeild Landspítalans og Vífilsstađaspítalann 1994-96, settur yfirlćknir í endurhćfingu aldrađra viđ Lénssjúkrahúsiđ í Sundsvall í Svíţjóđ 1997 og hérađslćknir á Ólafsfirđi frá ársbyrjun1998, var yfirlćknir endurhćfingardeildarinnar á FSA 1998-99 og var síđan lćknir á heilsugćslunni í Stykkishólmi frá 1999 og í nokkur ár. Páll hefur veriđ ráđgefandi lćknir ýmissa félaga og stofnana, t.d. Hjálpartćkjabankans og Íţróttasambands fatlađra en ţar var hann varaforseti 1979-84. Ţá hefur Páll starfađ í ýmsum félögum og nefndum. |
| Fjölskylda |
Páll kvćntist 7.4.1962 Sigurlaugu Ragnheiđi Karlsdóttur, f. 20.06.1943, d.
7.4.1995, lögregluvarđstjóra í Reykjavík. Hún var dóttir Karls Guđmundssonar
lögregluvarđstjóra í Reykjavík og konu hans Gunnlaugar Charlotte
Eggertsdóttur húsmóđur. Ţau eru bćđi látin.
Börn Páls og Sigurlaugar eru Anna Hrönn f. 13.3.1961, bankastarfsmađur í Reykjavík, Gunnlaug Dröfn f. 20.8.1969, bókmenntafrćđingur og starfsmađur Flugfélags Íslands, Ragnheiđur Líney f. 27.11.1972, grunnskólakennari viđ Laugarnesskóla, Snorri Karl f. 8.7.1975, starfsmađur á Grundartanga. Seinni kona Páls er Virginia C. Revilles f. 23.2.1948, viđskiptafrćđingur. Systkini Páls eru Jóhannes f. 25.6.1946, fyrrv. útibússtjóri SPRON, búsettur í Kópavogi, Líney Hallfríđur f. 22.6.1949, skólastjóri á Raufarhöfn. |
| Ćtt | Foreldrar Páls voru Helgi Magnús Bergsson
f. 25.1.1914, d. 23.8.1978, hagfrćđingur og forstjóri, og Líney
Jóhannesdóttir f. 5.11.1913, d. 18.7.2002, rithöfundur. Helgi var sonur Bergs, skipstjóra í Reykjavík, Pálssonar og konu hans Helgu Magnúsdóttur húsmóđur. Líney er systir Jónu Kristjönu, móđur Benedikts Árnasonar leikstjóra. Líney er dóttir Jóhannesar Baldvins Sigurjónssonar óđalsbónda á Laxamýri, bróđur Jóhanns skálds og Snjólaugar, móđur Sigurjóns fyrrverandi lögreglustjóra, og Ingibjargar, móđur Magnúsar Magnússonar sjónvarpsmanns hjá BBC. Jóhannes var sonur Sigurjóns dannebrogsmanns á Laxamýri, Jóhannessonar, og Snjólaugar Ţorvaldsdóttur. Móđir Líneyjar var Ţórdís Ţorsteinsdóttir. |
| DV 20.6.2008 | Umsjónarmađur ćttfrćđisíđu DV er Kjartan Gunnar Kjartansson |