GÓP-fréttir

Gjörðu svo vel! 
MR-59

Hvar er hver?

Orðsending
>> hvað
og til hvers?

Innritunar-
eyðublað

Samstarf
um MR59-
vefinn

 

MR59  Myndavefurinn er hér!

Finnumst aftur, félagar,
fögnum glöð í lundu
meðan okkar forna far
fléttar ögurstundu.

Myndirnar
eru hér
!

Minnispunktar
Þessi síða opnast með vísuninni >> http://www.gopfrettir.net/open/mr59/

Áttu myndir frá góðri stund?
Sendu þær inn - og ef þær sýna fólk - þá hafðu nöfnin með!!

!!!!!!!!!
Fastir
liðir
!!!!!!!!!

Perlan
miðvikudaginn 6. okt. 2010
- klukkan 17
2010 Minnispunktar >> og >> Myndirnar eru hér!
74. R
1. sept
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Í Grasagarðinu 1. september 2010

Albína, Björn, Ásta, Unnur, Andrés, Sigurður, Aðalsteinn, Hildur,
Kolbrún, Anna, Kjartan, Kristín, Sigrún, Kristján og Eiður.

73. R
4. ágúst
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Grasagarðinum 4. ágúst 2010

Standa: Kristján, Kristmundur, Sigurður, Gísli, Eiður og Þorgrímur.
Sitja: Sigrún, Guðrún og Solveig.

Sent
12. júlí
kl. 17.09

Út að
ganga
-
senn
koma
myndirnar

!!

Út að ganga á miðvikudögum!

Síðasti fundur MR59 haldinn í Flóru sl. miðvikudag ályktaði að það væri og yrði ómaksins vert að fara nú að ganga.

Fyrsta ferð, núna á miðvikudaginn 14. júlí kl. 16:00, Elliðavatn, 3,7 km, lagt af stað frá Krika, félagsheimili Sjálfsbjargar við Elliðahvammsveg. Fjölskylduvæn ganga fyrir alla frá langömmum og -öfum niður úr, nákomna og fjarskylda, sem sagt fyrir alla fjölskylduna, kl. 16:00,  - -  þið sáuð það, var það ekki?

Þetta er gönguleið nr. 20 í heftinu "25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu". Sjáumst.
Í umboði Eiðs og fundarsamþykktarinnar,
Aðalsteinn

72. R
7. júlí
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Grasagarðinum 7. júlí 2010

Standa: Kristján, Gísli, Aðalsteinn, Sigurlaug, Haukur, Unnur, Kjartan, Anna, Eiður og Kristmundur.
Sitja: Albína, Ragnheiður og Þóra.

Klukkan að verða 18 - og aðeins hálftími í Þýskaland-Spánn á fótboltahlið heimsins.

71. R
2. júní
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Grasagarðinum 2. júní 2010

Á heimleið Sigurlaug, Haukur Þorgilss., Sigurður, Þóra Kristín, Sigríður og Sigrún.

70. R
5. maí
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 5. maí 2010

Sitja: Þóra Kristjáns, Unnur og Guðrún.
Standa: Guðmundur, Kristján, Aðalsteinn, Kristmundur, Sigrún, Björn, Theodór í fangi Sigurðar, Kristín, Albína og Þóra Jóns.
Þá var Eiður farinn.

69. R
7. apríl
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 7. apríl 2010

Sitja: Ragnheiður Eggerts, Þóra og Ragnheiður Ben.
Standa: Anna Björg, Sigurlaug, Eigill, Sigríður, Kolbrún, Kristmundur,
Kjartan, Haukur, Þorgrímur, Eiður, Björn og Sigurður.

Þá var Aðalsteinn farinn og einnig Ólöf og fjölskylda.

68. R
3. mars
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Í Perlunni 3. mars 2010

Sitja: Unnur og Ragnheiður.
Standa: Eiður, Kristján, Albína, Hólmsteinn, Sigurður, Haukur, Hildur og Ólafur.

67. R
3. feb.
2010

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Í Perlunni 3. febrúar 2010

Sitja: Guðrún, Aðalsteinn, Sigurlaug og Guðný.
Standa: Kjartan, Hanna Kristín, Kristmundur, Albína, Eiður, Sigurður, Unnur, Haukur, Ragnheiður og Hildur.
Björn var farinn á stefnumót við Carmen.

66. R
13. jan.
2010

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 13. janúar 2010

Sitja: Unnur og Guðný Ýr.
Standa: Anna Björg, Kristján, Guðmundur, Aðalsteinn, Hildur, Kristín, Hanna Kristín, Kjartan og Þorgrímur.
Haukur Þorgilsson var lagður af stað.

Sent
3. jan.
2010
Óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka allt gamalt og gott.
Sit hér á "óðali mínu" á sunnanverðum Spáni, skammt frá Torrevieja.

Er heimiliskennari tveggja stráka, 12 og 15 ára. Foreldrar þeirra eiga hér glæsilegt hús og fjölskyldan dvelst hér a.m.k. þrjá mánuði á ári. Þeir ganga í grunnskóla á Íslandi og ég held þeim við efnið meðan þeir eru hér.

Foreldrar þeirra gerir mér allt til þægðar og ég fæ allt upp í hendurnar, þrigga herbergja íbúð og bíl. Baldur var hjá mér um jólin en dóttir okkar leysti hann af og kom fyrir áramótin en fer á miðvikudag.

Veðrið hér er eins og á góðum sumardögum á Suðurlandi!!

Sé ykkur í Perlunni í byrjun mars.

Bestu kveðjur á næsta miðvikudagsfund.

Kær kveðja, - Þóra Kristín

2009

Minnispunktar
65. R
2. des.
2009

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 2. des. 2009

Sitja: Páll, Ragnheiður og Unnur.
Kristján, Anna Björg, Haukur, Kristmundur, Sigurlaug, Ólöf, Þorgrímur, Guðrún, Aðalsteinn og Hanna Kristín.
Eiður var farinn og GÓP tók myndina.

Sent:
5
. nóv
2009
Takk fyrir myndirnar.

Ég ætlaði að mæta í Perluna, en gleymdi mér við að halda saumaklúbb, sem varð með litlum fyrirvara. Þar mætti Ásta Sveinbj. m.a. og var hin hressasta.
Vonandi mætum við bara báðar næst.

Kær kveðja, Anna Björg.
64. R
4. nóv.
2009   

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 4. nóvember 2009

Þorgrímur, Kristján, Sigrún, Sigurður, Albína, Andrés, Þóra Kristín, Eiður, Unnur,Sigurlaug, Aðalsteinn og Kjartan. Kristmundur kom rétt á eftir og GÓP tók myndina.

63. R
7. okt
2009
   

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 7. október 2009

Sigrún snýr við okkur baki, Sigurður, Eiður, Kjartan, Guðný Ýr, Ragnheiður, Haukur, Þóra Kristín, Björn. Hildur er á leið í kræsingar, Sigríður, Haukur Þorgilsson og Aðalsteinn. Í hópinn bættust Kristín Arnalds, Andrés, Þorgrímur, Kristmundur og Unnur.

62. R
2. sept
2009
   

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Flóru 2. september 2009

Haukur Fil snýr við okkur baki, Aðalsteinn, Guðný Ýr, Sigrún, Hildur, Elín, Sigurður, Albína, Kristmundur, Þorbergur, Guðrún, Anna og Eiður. Björn kom ögn síðar og GÓP tók myndina.

61. R
5. ágúst
2009
 

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Flóru 5. ágúst 2009

Þegar myndin var tekin sátu við borðin Haukur Þorgilsson fremstur til hægri, þá Hólmsteinn. Kristján, Þóra Kristjáns,Hildur, Haukur Fil, Eiður, Guðný, Sigurveig, Unnur, Ragnheiður, Ólafur Sigurðsson með Albínu og næst til vinstri Þorgrímur. Farin voru Sigurður Þórðarson og Sigrún með tvö barnabörn.

60. R
1. júlí
2009

 

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


5 borða fundur í Flóru 1. júlí 2009.

Sólargangur frá Aðalsteini: Kjartan, Sólveig, Anna Björg, Hildur, Elsa Rúna, Björk, Sigrún, Sigurður, Kristján, Hanna Kristín, Guðný Ýr, Unnur, Haukur Fil að tala við Eið, Ragnheiður, Þóra Kristín, Sigurlaug, Andrés, Kristmundur og Haukur Þorgilsson sem snýr baki við myndavélinni.

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

Afmælisreisa til Edinborgar - 11.-14. júní


Gamli bærinn í Edinborg

Myndir hafa borist frá Kristmundi, Unni og Kristjáni og Elínu og Leo.

Myndir
Ólafs
Péturssonar
og
Sigurðar
Þórðarsonar
úr
ferð á
Snæfellsnes

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

Afmælisreisa um Snæfellsnes - 6.-7. júní


Höfnin við Arnarstapa - mynd: Sig.Þórðars.

Sent 12. júní
Ferðin var frábær, veðrið yndislegt á laugardeginum og margt að skoða og skólafélagarnir skemmtilegir. Maður bragðaði aðeins Jökul og Skriðjökul án þess að verða meint af. Gaman að koma að Bjarnarhöfn, skoða eldgömlu kirkjuna með sínum gömlu munum og safnið. Góður hákarlinn og harðfiskurinn hjá þeim. Hef ekki áður skoðað Stykkishólm svo náið, kirkjuna, norska húsið, Fimm fiska og ýmis kaffihús. Mikið um að vera í höfninni (sjómannadagurinn) - flekahlaup með meiru.
Siggi Þórðar var að taka myndir á heimleiðinni í rútunni - fyrir myndavefinn.

Vona að þeir sem eru í Edinborg núna eigi góða daga.

Hittumst hress í Flórunni. Bestu kveðjur - Anna Björg.

59. R
3. júní
2009

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Fjögurra borða fundur í Perlunni 3. júní 2009

Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Anna Björg Jónsdóttir, Eiður Svanberg Guðnason, Gísli Ólafur Pétursson, Guðmundur Garðar Þórarinsson, Guðný Ýr Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Haukur Þorgilsson, Hildur Bjarnadóttir, Kolbrún Rögn Valtýsdóttir, Kristín Arnalds, Kristján Sigurjónsson, Kristmundur Halldórsson, Unnur Skúladóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Þorgrímur Eiríksson, Þóra Kristín Jónsdóttir, - og sérstakur gestur var Ingibjörg Björnsdóttir. Gleymi ég einum?

Fagnaður
30. maí

Nemendasambandsfagnaður 30. maí
Árgangurinn fimmtugur

58. R
6. maí
2009

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Anna Björg, Sigrún, Björk, Kristín og Elsa Rúna í Perlunni 6. maí 2009.

Að þessu sinni komum við 20 talsins: Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Anna Björg Jónsdóttir, Björk E. Jónsdóttir, Björn Þorvaldsson, Eiður Guðnason, Elsa Rúna Antonsdóttir, Gísli Ólafur Pétursson, Guðmundur Garðar Þórarinsson, Guðný Ýr Jónsdóttir, Haukur Þorgilsson, Hildur Bjarnadóttir, Hólmsteinn Sigurðsson, Kjartan Jóhannsson, Kristín Arnalds, Kristmundur Halldórsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigurlaug Guðmundsdóttir og Þorgrímur Eiríksson.

57. R
1. apríl
2009

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


19 í Perlunni 1. apríl 2009

Stúlkur - sitja: Albína, Hildur, Elín, Unnur og Sigurlaug.
- standa: Anna Björg, Hanna Kristín og Guðný Ýr.

Piltar: Björgúlfur, Eiður, Gísli, Aðalsteinn, Kristján, Andrés, Kristmundur, Björn, Haukur Filippusson, Sigurður og Haukur Þorgilsson.

56. R
4. mars
2009

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 4. mars 2009

Sigurður Þórðarson snýr til okkar baki að ræða við Guðmund Ólafsson til hægri. Á vinstri hring eru Sigrún Andrésdóttir, Kristín Arnalds (sést varla) Sigurlaug Guðmundsdóttir, Haukur Filippusson, Hildur Bjarnadóttir, Albína Thordarson, Kristján Sigurjónsson, Anna Björg Jónsdóttir, Ragnheiður Benediktsson, Eiður Guðnason, Björn Þorvaldsson, Þóra Kristjánsdóttir og Aðalsteinn Eiríksson.

Einnig konu Kristmundur Halldórsson, Sigríður Hjördís Indriðadóttir, Unnur Skúladóttir, Þorgrímur Eiríksson - og einn enn - sem ritari man ekki hver var. Samtals voru 21 saman komnir að meðtöldum GÓP.

55. R
4. feb
2009

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni 4. febrúar 2009

Þar komu (á myndinni): Guðmundur Garðar Þórarinsson, Sigrún Andrésdóttir, Unnur Skúladóttir, Sigurlaug Guðmundsóttir, Kristmundur Halldórsson, Sigurður Þórðarson, Eiður Guðnason, Björn Þorvaldsson, Hildur  Bjarnadóttir og Aðalsteinn Eiríksson.

Auk þeirra voru til staðar Elín Ólafsdóttir, Hólmsteinn Sigurðsson, Kristján Sigurjónsson, Albína Thordarson og GÓP.

Sent:
3
. feb
2009
Re: Perlan * miðvikudaginn 4. feb. 2009 - klukkan 17

Er búin í aðgerðinni og er nú í ,,endurhæfingu" á NLFÍ í Hveragerði.
Kem ekki í þetta sinn.
Bestu kveðjur, - Anna Björg.

Sent:
1
. feb
2009
Re: Perlan - miðvikudaginn 4. feb. kl. 17

Get því miður ekki mætt í Perluna þar sem ég sit um þessar mundir tíma í svæðisleiðsögn í Leiðsöguskólanum í MK - mánudaga - þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 17:30 fram eftir kvöldi.

Bið fyrir bestu kveðjur til félaganna. Vinsamlegast sendið fréttir ef svo ber undir - einkum varðandi ákvarðanir eða tillögur um vorfagnað eða vorferð.
Kær kveðja,- Þóra K.

54. R
7. jan
2009

Aðalsteinn Eiríksson skrifar kl. 21:24

Regluleg samverustund okkar skólasystkinanna leið að þessu sinni, miðvikudaginn 7. janúar 2009, án myndatöku, enda Gísli Ólafur hvergi nærri í holdinu, þótt hann hafi eflaust verið með okkur í andanum.

Mætt voru, auk ritara þessa bréfs, Albína, Andrés, Anna Björg, Eiður, Guðmundur Ólafs, Guðrún Kristjáns, Hanna Kristín, Hildur Bjarna, Hólmsteinn, Kristmundur, Óli Mixa, Sigrún Andrésar, Siggi þórðar, Sigurlaug, Solveig Einars og Þóra Jóns.

Vei mér ef ég gleymi einhverjum.

Mestan fögnuð vakti koma Guðrúnar Kristjánsdóttur sem ekkert okkar hafði séð í hartnær 50 ár.

Skólaslit Menntaskólans í Reykjavík vorið 2009 verða 29. maí og samkvæmi nemendasambandsins daginn eftir eða hinn 30. maí. Aðalræðumenn þessara tildragelsa beggja koma samkvæmt hefð úr okkar röðum. Bekkjarráð 6. bekkjar verður boðað til fundar í næstu viku samkvæmt yfirlýsingu formanns, Eiðs Guðnasonar, til þess að fjalla um þetta alvörumál. Auk tiltækra bekkjarráðsmanna eða varamanna þeirra þykir rétt að fulltrúi árgangsins í stjórn Bindindisfélagsins, Hildur Bjarnadóttir, sitji fundinn.

Utan ræðumennsku mun fundurinn fjalla um og ákveða ferðalag hópsins í júní, með öllum venjulegum fyrirvörum um að veður leyfi og fyrirhuguð samgöngutæki verði starfrækt.

Með bróðurþeli, Aðalsteinn.

2008

Minnispunktar

53. R
3. des
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Í Perlunni 3. des. 2008

Standa: Kristján, Unnur, Björk, Aðalsteinn, Sigurlaug, Albína, Sigurður, Sigrún, Haukur, Björn og Kjartan.
Sitja: Elín, Andrés og Hildur.

Sent
3. des.
2008
Því miður kemst ég ekki til ykkar í Perluna í dag, en ég mæti galvösk næst.
Með bestu jóla- og nýárskveðjum -
Þóra Kristjánsdóttir

52. R
5. nóv
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 5. nóvember 2008

Standa: Kristján, Sigurður, Ragnheiður, Þóra Kristín, Unnur, Kristmundur, Þóra Kristjáns, Hólmsteinn, Anna Björg, Haukur Fil og Kristín.
Sitja: Sigrún, Hildur og Albína.
Farinn var Björn Þorvaldsson.

Sent:
4. nóv
2008
Re: Perlan - miðvikudaginn 5. nóv. kl. 17
Bið að heilsa ykkur frá Flórída í sól og sumaryl, þótt kominn sé vetur.
Langar ekkert heim. Fríða Björnsdóttir
Sent:
3
. nóv
2008
Re: Perlan - miðvikudaginn 5. nóv. kl. 17
Færeyjakveðjur í Perluna !
Eiður

51. R
1. okt
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 1. október 2008

Þóra Kristín, Albína, Kristján, Ólöf, Elín, Hildur, Kristín, Kristmundur, Guðrún, Unnur, Haukur Þ og Anna Jóna. Farnir voru Aðalsteinn og Eiður.

50. R
3. sept
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Flóru í Grasagarðinum 3. september 2008

Kristján Sigurjónsson, Björn Þorvaldsson, Haukur Filippusson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Þorbergur Þorbergsson, Unnur Skúladóttir, Hildur Bjarnadóttir, Þóra Kristjánsdóttir, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson og Anna Björg Jónsdóttir.

Sent:
3
. sept
2008
Re: Grasagarðurinn í september !!!!!!
Kveðjur frá Færeyjum !
Blíðar heilsanir - Eiður

49. R
6. ágúst
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Flóru í Grasagarðinum 6. ágúst 2008

Fjölmennasti fundur til þessa - og Kristmundur tók myndirnar. Hér eru nöfn þeirra sem eru á myndunum (23):

Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Andrés Svanbjörnsson, Baldur Sigfússon, Björn Þorvaldsson, Elín Ólafsdóttir, Haukur Filippusson, Haukur Þorgilsson, Hildur Bjarnadóttir, Kjartan Jóhannsson, Kolbrún Ragnarsdóttir og hennar maður, Kristín Arnalds, Kristján Sigurjónsson, Kristmundur Halldórsson sem tók myndirnar, Ólafur Pétursson, Ragnheiður Benediktsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Unnur Skúladóttir, Þorbergur Þorbergsson, Þorgrímur Eiríksson.

Sendu inn nöfn sem þú sérð að vantar!

48. R
2. júlí
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Í Flóru í Grasagarðinum 2. júlí 2008

Þorgrímur Eiríksson, Aðalsteinn Eiríksson, Gísli Ólafur Pétursson, Björn Þorvaldsson, Eiður Svanberg Guðnason, Sólveig Einarsdóttir og Anna Björg Jónsdóttir.

47. R
4. júní
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Flóru í Grasagarðinum 4. júní 2008

Ólafur Mixa, Aðalsteinn Eiríksson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Sigurður Þórðarson, Albína Thordarson, Kjartan Jóhannsson, Hildur Bjarnadóttir, Haukur Filippusson og Þóra Kristín Jónsdóttir. Þórir Hallgrímsson og Sigríður Hjördís Indriðadóttir fóru fyrr.

Sent
31. maí

Kemst ekki á næsta fund, því ég verð í Barcelóna.

Bestu kveðjur, Anna Björg,

46. R
7. maí
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 7. maí 2008

Kjartan Jóhannsson, Kristján Sigurjónsson, Elín Ólafsdóttir, Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Unnur Skúladóttir, Þorgrímur Eiríksson, Kristín Arnalds, Sigurður Þórðarson, Þóra Kristjánsdóttir og Þorbergur Þorbergsson. Farin voru Hildur Bjarnadóttir og Kristmundur Halldórsson.

45. R
2. apríl
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni 2. apríl 2008

Haukur Filippusson, Sigurður Þórðarson, Andrés Svanbjörnsson, Ragnheiður Benediktsson, Björn Þorvaldsson, Unnur Skúladóttir, Elín Ólafsdóttir, Kristmundur Halldórsson, Albína Thordarson og Þorgrímur Eiríksson.

44. R
5. mars
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 5. mars 2008

Standa: Aðalsteinn Eiríksson, Gísli Ólafur Pétursson og Kristján Sigurjónsson.
Sitja: Sigurður Þórðarson, Anna Björg Jónsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir.

Sent:
3
. mars
2008

Ég kom frá Fróni í gærkvöldi. Gekk frá kaupum á litlu raðhúsi í Hveragerði. Hyggst flytja á klakann að sumri og stefni á að sækja 1959-fundina í framtíðinni.
Ástæðan fyrir skrifum mínum er sú, að í síðustu viku hitti ég Hilmar Ingimundarson, lögmann og skólabróður okkar. Þegar ég spurði um Kára Eiríksson, þá tjáði Hilmar mér, að Kári hefði látist árið 2006.
Líklegast þarf hann ekki á tölvupósti að halda, þar sem hann er núna, blessaður.

*  *
Ég mun halda rekstri mínum hérna í Wellesley, gistiþjónustunni "Bed and Breakfast", áfram til maíloka. Verði einhverjir á ferðinni hér um slóðir fyrir maílok, þá gef ég ykkur hérmeð upp heimasíðuna mína: www.HaukurIngaBoston.com

Bestu kveðjur til ykkar allra. Haukur Þorgilsson

43. R
6. feb.
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 6. febrúar 2008

Standa: Haukur Filippusson, Kristján Sigurjónsson, Anna Björg Jónsdóttir, Garðar Steindórsson, Ásta Sveinbjarnardóttir, Siguður Þórðarson og Ólafur Mixa.
Sitja:Kristmundur Halldórsson, Unnur Skúladóttir, Andrés Svanbjörnsson og Björn Þorvaldsson.
Farin voru Aðalsteinn Eiríksson og Albína Thordarson.

Sent:
5. febrúar
2008
 

Nú er ég í Danmörku (í 3 mánuði), m.a. til að hjálpa dótturinni í fyrsta barnabaslinu.
Hún eignaðist dóttur, Jóhönnu, þann 22. janúar, eftir langvarandi fæðingartilraunir sem enduðu með keisaraskurði. Þetta er lagt á konurnar.
En nú heilsast báðum vel og allt gengur vel. Og það er heilmikið gagn í ömmunni! Eins og sundhedsplejersken sagði: Bedstemödre er guld værd!
Bestu kveðjur til ykkar allra. Hanna Kristín

42. R
9. jan.
2008

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni 9. janúar

Standa: Eiður Svanberg Guðnason, Kristján Sigurjónsson, Kjartan Jóhannsson, Kristmundur Halldórsson, Elín Ólafsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir.
Sitja: Garðar Steindórsson, Haukur Filippusson, Unnur Skúladóttir og Anna Björg Jónsdóttir.
Albína Thordarson fór aðeins fyrr.

2007

Minnispunktar

41. R
5. des.
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni 5. desember

Standa: Garðar Steindórsson, Hanna Kristín Stefánsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Þorgrímur Eiríksson, Haukur Filippusson, Kristján Sigurjónsson og Björn Þorvaldsson.
Sitja: Unnur Skúladóttir, Kristín Arnalds, Guðrún Jónsdóttir og Ólafur Mixa.
Sigurður Þórðarson hlaupinn að sinna barnabarni.

40. R
7. nóv.
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 



Í Perlunni 7. nóvember

Sitjandi: Unnur Skúladóttir, Eigill og Kolbrún Ragnarsdóttir, Albína Thordarson, Garðar Steindórsson og Sigurður Þórðarson.
Standandi: Kristján Sigurjónsson, Þorgrímur Eiríksson, Björn Þorvaldsson, Kristín Arnalds, Kristmundur Halldórsson, Ragnheiður Benediktsson, Sigríður Indriðadóttir, Anna Björg Jónsdóttir, Kjartan Jóhannsson og Haukur Filippusson - en Aðalsteinn Eiríksson var farinn.

39. R
3. okt.
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Í Perlunni 3. október

Standandi: Sigurður Þórðarson, Þóra Kristín Jónsdóttir, Björn Þorvaldsson, Kjartan Jóhannsson og Unnur Skúladóttir.
Sitjandi: Baldur Frímann Sigfússon, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Anna Björg Jónsdóttir og Þorgrímur Eiríksson.
Aðalsteinn Eiríksson, Kristín Arnalds og Kristján Sigurjónsson voru þotin.

38. R
5. sept.
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Flóru í Grasagarðinum 5. september

Kjartan Jóhannsson, Unnur Skúladóttir, Kristmundur Halldórsson,  Aðalsteinn Eiríksson og Kristján Sigurjónsson.

37. R
1. ágúst
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


í Grasagarðinum - og Flóru - 1. ágúst

Hanna Kristín Stefánsdóttir með dóttursoninn Hilmi, Sigurður Hallur Stefánsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Hildur Bjarnadóttir og Eiður Svanberg Guðnason.

36. R
26. júlí
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í skoðunarferð í garðinn Sigrúnar og Sigurðar að Markarflöt 15 í Garðabæ.

Þóra Kristjánsdóttir, Fríða Björnsdóttir, Sveinn Einarsson, Unnur Skúladóttir, Sigríður Hjördís Hákonardóttir, Sigurður Þórðarson, Albína Thordarson, Björn Þorvaldsson, Kristbjörg Kjartansdóttir, Kjartan Sigurjónsson, Sigrún Andrésdóttir og Bergsveinn Jóhannesson.
Þá voru þotin Kjartan Jóhannsson, Sigurður Hallur Stefánsson og Hildur Bjarnadóttir og ... .

Hjartans þakkir til Sigrúnar og Sigurðar!

*  *  *  *
Skilaboðin voru þessi:

Kæru skólasystkin.
Við hjónin höfum oft rætt um að bjóða ykkur að skoða garðinn okkar og ákváðum að láta verða af því nú í vikunni.
Þeir sem hafa áhuga á garðaskoðun í góða veðrinu eru velkomnir til okkar að Markarflöt 15 í Garðabæ fimmtudaginn 26. júlí kl. 17.
Makar velkomnir.
Bestu kveðjur *
Sigrún og Siggi

Jón Grétar Stefánsson sendi póst 25. júlí 2007:
Kæru skólasystkin, Sigrún og Sigurður.
Kæra þökk fyrir boðið.
Við Helga konan mín og ég hefðum mjög gaman af að skoða garðinn ykkar. Því miður erum við að fara til Svíþjóðar á morgun svo ekki getur orðið af heimsókn til ykkar í þetta sinn. Ég bið fyrir góðar kveðjur til skólafélaganna og þakka aftur fyrir gott boð.
Kær kveðja. Jón Grétar Stefánsson

35. R
4. júlí
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Flóru í Grasagarðinum 4. júlí 2007

Þorgrímur Eiríksson, Páll B. Helgason, Sigríður Hjördís Indriðadóttir, Andrés Svanbjörnsson, Hildur Bjarnadóttir, Kristján Sigurjónsson, Unnur Skúladóttir, Þóra Kristín Jónsdóttir, Albína Thordarson og Kjartan Jóhannsson.

Anna Björg Jónsdóttir var farin að erindast og GÓP tók myndina.

34R
23. júní

Jónsmessu-
daggar-
baðið
hjá
Unni
og
Kristjáni

*

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

*

Allir
mundu
eftir
grillmat
og
öðru
nesti
!!

*

Þekkirðu
einhver
sem
ekki
fékk
póst??
 

Sendu
inn
netfangið
sem
vantar
!!

Unnur og Kristján buðu okkur í Dísarhöll

Músaðu á myndina til að sjá þær allar

Hér verða viðstaddir taldir eftir miða og minni:
Anna Björg Jónsdóttir, Hildur Bjarnadóttir og Þorbergur Þorbergsson, Gerður Björnsdóttir, Edda Benjamínsson, Fríða Björnsdóttir, Albína Thordarson og Ólafur Sigurðsson, Páll B. Helgason, Baldur Sigfússon og Halldóra Halldórsdóttir, Ólafur Mixa og Kristín Þorsteinsdóttir, Elín Ólafsdóttir og Leó Kristjánsson, Andrés Svanbjörnsson, Haukur Filippusson og Ragnheiður Kristín Benediktsson, Sigrún Andrésdóttir og Sigurður Þórðarson, Sigríður Pálmadóttir og Kristján Sæmundsson, Björk Jónsdóttir og Pétur Pétursson, Gísli Ólafur Pétursson og gestgjafarnir þau Unnur Skúladóttir og Kristján Sigurjónsson. 
*******
Við komum upp úr kl. 16 og höfðum meðferðis það sem við vildum leggja á grillið og hafa sem meðlæti og það sem breyta skyldi inninu. Á borðum mættu okkur drykkir, salöt og sósur og margt fleira gómsætt.

Frábærar stundir í sólinni og ágætu vari fyrir norðanstrekkingi - sem raunar gekk alveg niður um kvöldið - eftir að sungin höfðu verið lögin Smaladrengurinn eftir Steingrím Thorsteinsson og Smalastúlkan eftir Jón Thoroddssen - við lög tónskáldsins Skúla Halldórssonar, föður Unnar.
Frábær stund -
- hjartans þakkir til Unnar og Kristjáns!

************

  • Unnur Skúladóttir sendi þessi skilaboð frá Dísarhöll:
    Hæ! - Velkomin - á laugardaginn!
    Síminn er 861-3830 ef einhver fer að villast.
    Það er fólksbílafært en þarf að aka varlega sums staðar.
    Við verðum með rauðvín, bjór og ropvatn og kannske kartöflusalat.
    Munið
    eftir að hafa peysurnar með því að oftast er kalt úti á kvöldin!
  • Þóra Kristjáns sendi póst:
    Sæl verið þið öll og þakka ykkur fyrir skemmtilega samverustund í Flóru í gær.
    Ég var farin að hlakka til að sjá ykkur hjá Unni og Kristjáni 23. júni, en þá kom í ljós að Fellsmerkurhópurinn, sá sem við ræktum með skóg í Mýrdalnum, hefur fyrir löngu fest þennan tíma til að hittast. Og því verður því miður ekki breytt.
    Ég verð því að þakka fyrir gott boð, og jafnvel að fá að kíkja á Dísarhöllina síðar, - forvitni mín um ræktun er óþrjótandi.
    Við sjáumst trúlega hjá Sigga og Sigrúnu síðar í sumar.
    Bestu kveðjur, Þóra
  • Kristín Arnalds sendi póst:
    Get því miður ekki þegið boð Unnar og Kristjáns því að ég verð þá stödd í Tallinn í Eistlandi. Jónas á 50 ára stúdentsafmæli og bekkur hans fer þangað ásamt mökum.
    Bestu kveðjur til ykkar allra. Kristín Arnalds
  • Ólafur Pétursson sendi póst frá Osló, 15. júní:
    Það var næstum að ég hljóp út og keypti flugmiða til Íslands. Langar virkilega til að vera með á þessu móti. Því miður kemst ég ekki, en bið að heilsa öllum.
    Ólafur Pétursson
  • Kolbrún Ragnars sendi póst frá Tromsö 22.06.2007:
    Góda skemmtun og bestu kvedjur til ykkar allra í Dísarhøll frá Kollu Ragnars og midnætursólinni í Tromsø !
  • Hildur Bjarnadóttir 23.06.2007 - 09:44 áframsendir
    frá Helgu Kress og Vilborgu Sveinbjarnardóttur sem er hér á landi, snögga ferð, vegna dauða systur sinnar Stefaníu. Hún líka bjó í útlandinu og ræktaði þar íslenskt fé, við góðan orðstír:
    -----
    Heil og sæl!
    Kær kveðja frá okkur Dússu til skólasystkinanna,  - til allra sem mæta í Dísarhöll, ekki síst til húsbændanna fyrir rausnarlegt boð sem okkur þykir fyrir að geta ekki þegið. Dússa getur því miður ekki heldur komið. Maðurinn hennar, Ken, og dóttir hennar, Signý, fara til Victoria þar sem þau búa, annað kvöld og þau verða að nota daginn til að hitta frændfólk. Síðan fer Dússa með syni sínum og systurdóttur norður í land á sunnudagsmorgun, og svo beint heim. Hún lofar að koma fljótt aftur til landsins og vera lengur. Hún lofar líka að koma á skólasystkinafund ef svo hittist á. Sem vonandi verður. Hún hefur áhuga á að fylgjast með og fær GÓP-fréttir.

33. R
6. júní
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Flóru í Grasagarðinum 6. júní 2007

Þóra Kristjánsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Hildur Bjarnadóttir, Albína Thordarson, Björk Jónsdóttir, Elsa Rúna Antonsdóttir, Þorgrímur Eiríksson, Unnur Skúladóttir, Páll B. Helgasonon og uppi í horninu til hægri er Aðalsteinn Eiríksson - sem fór ögn fyrr.

32. R
2. maí
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni 2. maí

Þennan sólfagra og hlýja miðvikudag komu Eiður Guðnason, Elín Ólafsdóttir, GÓP, Hildur Bjarnadóttir, Kristín Arnalds, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson og Sigurlaug Guðmundsdóttir.

Ákveðið var að hittast í Flóru næst - sem verður fyrsta miðvikudaginn í júní - 6. júní kl. 17.

Sent:
30. apríl
2007

From: Þorgrímur Eiríksson
Bið að heilsa öllum. Verð erlendis.
Þorgrímur

31. R
11. apríl
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Kaffibúðinni 11. apríl 2007

Kaffibúðin hafði flutt sig og aðstaðan var ennþá betri - eins og lofað hafði verið. Þar hittumst við Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Björn Þorvaldsson, GÓP, Hildur Bjarnadóttir, Kristján Sigurjónsson, Kristmundur Halldórsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Unnur Skúladóttir, Þorgrímur Eiríksson og Þóra Kristín Jónsdóttir.

Rætt var um staðsetningu funda okkar. Ákveðið var að halda sig við þá ágætu tvo meginstaði sem verið hafa í notkun, þ.e. Perluna á vetrum en Flóru á sumrum. Heimsóknir til annarra staða verði utan fastra funda. Næsti fundur verður því í Perlunni fyrsta miðvikudag í maí.

Sent:
10. apríl
2007
 
Í dag lagði ég hefðbundna upphæð til Hjartaverndar vegna Kolbeins heitins Þorleifssonar. Minningarspjaldið var sent til Braga Guðmundssonar, Blikaási 48 í Hafnarfirði. Ég þekki hann ekki eða nákvæmlega til tengsla hans við Kolbein, en Jörmundur Ingi vottaði hann sem náinn aðstandanda. Sjáumst vonandi á morgun.
Aðalsteinn

30. R
7. mars
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Kaffibúðinni 7. mars 2007

Þetta var raunar dálítið ævintýralegt. Grandskoðað hafði verið hvenær sýningar Gerðarsafns loka daglega og reyndist það vera kl. 17. Hins vegar kom óvænt í ljós á staðnum að þá lokar húsið í heild og þar með einnig kaffistofan. Við fórum því austur yfir brúna svo norður og niður á fyrsta bílaplanið en þar í austasta horni er sjálf Kaffibúðin. Eftir  gott samsæti kom í ljós að Kaffibúðin býður næst upp á enn betri aðstöðu í minna en tíu metra fjarlægð. Því var ákveðið að hittast þar í apríl. Kaffifólkið prísaði kaffið - og stundum með nokkrum tilþrifum.

Dagsetning fyrsta miðvikudags í apríl þótti dálítið bænó vega aðsteðjandi páska og var því ákveðið að færa aprílmótið til annars miðvikudags mánaðarins - eða til miðvikudagsins 11. apríl. Þess vegna er okkar næsti miðvikudagur miðvikudagurinn 11. apríl - miðvikudagurinn eftir páska - og við  hittumst í þessari ágætu Kaffibúð.

Í Kaffibúðina komu: Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Anna Björg Jónsdóttir, Eiður Guðnason, GÓP, Kjartan Jóhannsson, Kristján Sigurjónsson, Kristmundur Halldórsson, Páll B. Helgason, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson og Unnur Skúladóttir.

29. R
8. feb
2007
*
Engar
myndir

Því miður tók dagurinn á sig fimmtudagsmynd og hélt henni til kvölds - þegar áfallið kom - en of seint að gera neitt annað en vona að Sigurður Þórðarson hafi tekið myndir og sendi mér - og að næst verði hringt til mín kl. 17 sharp í síma 89-50-300 - ef ég ekki verð kominn - . Bestu kveðjur - GÓP

Já dagurinn var í gær og nokkrir mættu en ekki allir. Þín var sárt saknað. Þegar við Sigurlaug komum fyrst efuðumst við að dagurinn í gær væri dagurinn í dag. Við höfðum enginn símanúmer, svo að við ákváðum að fá okkur allavega kaffi.
Auk okkar komu Eiður, Björn Þorvalds, Siggi og Sigrún, Unnur og Kristján og Kjartan en ekki fleiri að ég held. Við fengum okkur kaffi og röbbuðum saman fram undir hálfsjö, en engar myndir voru teknar því enginn var með myndavél.

Bestu kveðjur
Kiddi.

28. R
3. jan
2007

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Á Kringlukránni 3. janúar 2007

Perluráðendur lokuðu yfir áramótin en við fundum upp varastað - fórum á Kringlukrána. Hún var ágætur varastaður en dálítið reykt og meiri hljóðgnýr þótt ekki væru margir aðrir gestir. Það er þó auðvitað ágætt að hrekjast öðru hvoru úr Perlunni til þess að fá áminningu um hversu ágætur staður hún er.

Á Kringlukrána komu:
Eiður Guðnason, Haukur Filippusson, Helga Kress, Kristján Sigurjónsson, Kristmundur Halldórsson, Páll B. Helgason , Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Þorgrímur Eiríksson, Unnur Skúladóttir og GÓP.

2006

Minnispunktar

27. R
5. des
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni miðvikudaginn 5. desember 2006

Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Björn Þorvaldsson, Eiður Guðnason, GÓP, Guðrún Jónsdóttir, Hanna Kristín Stefánsdóttir, Kjartan Jóhannsson, Kristján Sigurjónsson, Ólöf Magnúsdóttir Robson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurlaug Guðmundasóttir, Sigurður Þórðarson, Þorgrímur Eiríksson og Þóra Kristín Jónsdóttir.

26. R
1. nóv
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni miðvikudaginn 1. nóvember 2006

Sigrún Andrésdóttir, Kristín Arnalds, Kolbrún Ragnarsdóttir, Kjartan Jóhannsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Eiður Guðnason, Hildur Bjarnadóttir, Sigurður Þórðarson og Andrés Svanbjörnsson.

25. R
4. okt
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni miðvikudaginn 4. október 2006

Ólafur Pétursson lenti korter fyrir fimm á Keflavík - fékk farangurinn upp í hendurnar - og kom klukkan 6!

Þóra Kristjánsdóttir, Unnur Skúladóttir, Kristján SIgurjónsson, Kristín Arnalds, Aðalsteinn Eiríksson, Ólafur Pétursson, Sigurður Þórðarson, Sigrún Andrésdóttir og Björn Þorvaldsson. Einnig komu Sigríður Indriðadóttir, Hildur Bjarnadóttir og GÓP.

Sent:
2
. okt
2006
07:25
Verð ekki á landinu næsta miðvikudag.
Hugsa til ykkar.
Mæti vonandi næst
B. kv - Eiður
Sent:
2
. okt
2006
03:35

Góðar kveðjur!
Verð fjarri góðu gamni en nýt annars gamans í staðinn.
Við hjónin erum í Kaliforníu og verðum fram í miðjan október.
Sjáumst síðar.  - Kjartan

24. R
6. sept
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Grasagarðinum í Laugardal

Að þessu sinni var slegið aðsóknarmet - og það svo - að enn voru metmargir til staðar þegar ritari loksins birtist og tók af þeim þessa mynd - klukkan hálfnítján:

Kristín Arnalds, Hildur Bjarnadóttir, Elsa Antonsdóttir, Björk Jónsdóttir, Andrés Svanbjörnsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Unnur Skúladóttir, Þóra Jónsdóttir Kolbrún Rögn Valtýsdóttir Rodeman, Kristján Sigurjónsson, Albína Thordarson, Anna Björg Jónsdóttir og Aðalsteinn Eiríksson.

Betur viðstaddir munu senda inn nöfn þeirra sem þá voru burt hlaupnir að erindast.

23. R
2. ágúst
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Grasagarðinum í Laugardal

sitja: Hildur Bjarnadóttir, Unnur Skúladóttir og Kjartan Jóhannssoon.
standa: Sigurður Þórðarson, Sigrún Andrésdóttir, Anna Björg Jónsdóttir, Gísli Ólafur Pétursson og Kjartan Sigurjónsson.

Innilegar samúðarkveðjur til Andrésar.

Sent:
1. ágúst
2006
Aðalsteinn,
þakka þér fyrir að senda samúðarkveðjur fyrir hönd okkar skólasystkinanna. Valgarður heitinn Stefánsson var m.a. skólabróðir minn í barnaskóla, gaggó og MR.

Nú var Andrés Svanbjörnsson, skólabróðir okkar, að missa konuna sína. Verður jörðuð að mig minnir í Fossvogskapellu næsta fimmtudag.

Bestu kveðjur, Anna Björg Jónsdóttir.

Sent:
1. ágúst
2006

Var búinn að hlakka til að hitta ykkur,en heimkomu minni seinkar vegna breytinga í ráðuneytinu.
Sjáumst í september.
Kv Eiður

Sent:
10
. júlí
2006
kl. 11:34

*

Sjá
nánar
um
Valgarð


Valgarður í Grasagarðinum 12. júlí 2006

Valgarður Stefánsson lést í nótt. Kveðjur, Kjartan.

Útförin verður fimmtudaginn 20. júlí frá Dómkirkjunni kl. 13:00.

Sent:
6. júlí
2006
kl. 01:26

Kolbrún Valtýsdóttir Rodeman - Kolla Rodeman - segir:
Hvenær og hvar verður septemberfundur?
Ég verð heima frá 24. ágúst til 13. sept.
Því miður, - þekki fáa og enn færri þekkja mig. Kann að mæta samt sem áður. 

22. R
5. júlí
2006

>>
Ritari
tepptist
fjarri
en
fregnir
hafa
borist
>>

 5. júlí: Páll B. Helgason segir:
Sæl öll. Ég er handleggsbrotinn og ófær um að keyra. Hefði að vísu getað tekið taxi. Ég er líka tábrotinn og á ekki gott með gang. Lenti ekki undir valtara en margflókið vandamál. Vona samt að ég sé að skríða saman. Treysti mér alls ekki til að koma því miður. Kveðjur. Palli B.H.

5. júlí: Sigurður Þórðarson, Anna Björg Jónsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir:

Fundargerð

  • Viðstaddir voru: Albína Thordarson, Andrés Svanbjörnsson, Anna Björg Jónsdóttir, Gerður Björnsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Kjartan Jóhannsson, Kristján Sigurjónsson, Ólöf Magnúsdóttir, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Unnur Skúladóttir og Þóra Jónsdóttir.
  • Andrés hafði meðferðis myndir - meðal annars af sumum fundarmönnum frá í fornöld - þeim til óblandinnar gleði.
  • Á grænu ljósi Ólafar kom upp sú hugmynd að halda upp á hálfrar aldar stúdentsafmælið 2009 með því að heimsækja hana til Edinborgar. Aðeins tæp þrjú ár eru til stefnu og ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
  • Myndataka féll niður.

21. R
7. júní
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Fyrsti fundur sumarsins í Flóru í Grasagarðinum í Laugardal

Í vinstri-hring frá Hildi:
Sigurður Þórðarson, Þorgrímur Eiríksson, Björn Þorvaldsson, Þóra Kristín Jónsdóttir, Anna Björg Jónsdóttir og Sigrún Andrésdóttir.

Sent:
6. júní
kl. 01:26
Kemst ekki.
Er handleggsbrotinn.
Kveðja, Páll B. Helga.
Sent:
5
. júní
2006
kl. 00:19
From: Eidur Gudnason
Subject: Frá Kína


Góðar kveðjur í garðinn á miðvikudag frá Kashgar í Xinjiang.
Sjáumst í ágúst. Kv Eiður

20. R
3. maí
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni

Þorgrímur Eiríksson snýr í okkur baki - og réttsælis frá honum eru Unnur Skúladóttir, Elín Ólafsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Kristín Arnalds, Sigurður Þórðarson, Hanna Kristín Stefánsdóttir, Albína Thordarson og Andrés Svanbjörnsson.

Sent:
2. maí
2006
kl. 08:51
From: Guðm. G. Þórarinsson
Subject: MR-59 - kl. 17 í Perlunni á miðvikudaginn

Verð í Aþenu, bestu kveðjur, kem næst GGÞ
Sent:
1. maí
2006
kl. 01:59
From: Eiður Guðnason
Subject: MR-59 - kl. 17 í Perlunni á miðvikudaginn

Kínakveðjur í Perluna á miðvikudag.
Hér var Mongólíu-moldrok í gær, eða sandbylur.
Heldur óskemmtilegt veður.
Má ég þá heldur biðja um suðaustanátt og rigningu!
Kær kv EG

19. R
5. apríl
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Í Perlunni

Réttsælis frá Birni Þorvaldssyni lengst til vinstri eru Sigurlaug Guðmundsdóttir, Sigurður Þórðarson, Kjartan Jóhannsson, Aðalsteinn Eiríksson, Kristmundur Halldórsson, Anna Björg Jónsdóttir og næst horfir frá okkur Sigrún Andrésdóttir.

Inni er líka myndin af Eiði og Eygló - í komu-stærð!

Sent:
3. apríl
2006 20:37
From: Valgarður Stefánsson
Subject: RE: Miðvikudagur 5. apríl kl. 17 - í Perlunni

Bestu kveðjur frá Brussel.
Valgarður og Ingibjörg
Sent:
16. mars
2006 01:12
From: Eiður Guðnason
Subject: Stúdentar 1959

Heil og sæl!
Hvað er títt af samkomuhaldi heldra fólks um þessar mundir ?
Á ekki von á að koma heim fyrr en í sumarlok,- þá alkominn.
Ef þið sendið mér póst er best að nota netfangið EidurGudnason(á)gmail.com 

Hér er vorið rétt að byrja að bæra á sér en framundir þetta frost á hverjum morgni. Annars er eins og vorið hér hverfi stundum milli árstíðanna og það er ekki endilega svo að aftur komi vor að liðnum vetri eins og þar stendur heldur tekur sumarið strax við og vetri lýkur með tilheyrandi svækju og raka. 

Framundan er þriggja daga ferð til Zhengzhou í Henan sýslu. Hún ein af þessum mörgu milljónaborgum hér sem maður aldrei hefur heyrt á nafn nefndar.
Kv Eiður

Sent: 12. apríl 2006 02:12
Eygló Helga Haraldsdóttir og Eiður:


31.03.2006
Músaðu á myndina til að fá hana stærri!

Sendi til gamans mynd af okkur hjónum sem tekin var í borginni Xining í Qinghai sýslu í vestur Kína fyrir viku. Vorum þar á ferð ásamt fleiri sendiherrum frá Peking í boði héraðsyfirvalda.

Kær kv Eiður

18. R
1. mars
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Í Perlunni

Unnur Skúladóttir, Hildur Bjarnadóttir, Sigurður Þórðarson, Kristín Arnalds, Kristján Sigurjónsson, Sigrún Andrésdóttir, Aðalsteinn Eiríksson, Kristmundur Halldórsson og GÓP sem tók myndina.

Sent:
28. febrúar
2006 10:02
 
From: Andres.Svanbjornsson@ivr.stjr.is [mailto:andres.svanbjornsson@ivr.stjr.is]
Subject: Re: Miðvikudagurinn 1. mars - í Perlunni klukkan 17

Ég kemst því miður ekki núna en sendi ykkur kveðju frá New York.
Andrés
Sent:
3. febrúar
2006 12:50
From: Arkitektene Eigill og Kolbrún [mailto:arkek@online.no]
Subject: Re: Myndirnar komnar inn

Kærar þakkir fyrir fréttir og fínar myndir.
Gaman að fylgjast svolítið með ykkur og vita af þessum miðvikudögum.
Ég sit hér á bryggjunni í Tromsø og teikna hús.
Svartfoss var nýlega fyrir utan gluggann, en i dag er hér illa farinn rússneskur togari.
Sólskin á Tromsdalstindi og 10 stiga frost.
Kær kveðja.
Kolbrún Ragnarsdóttir

17. R
1. feb.
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


á Litla ljóta ...

Þetta var einmitt á sama klukkutímanum og íslenska landsliðið í handbolta lék mikilvægan leik við Króata. Þeir sem gátu slitið sig þaðan og komu til fundar að þessu sinni voru: 

Albína Thordarsen, Hanna Kristín Stefánsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Unnur Skúladóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir og GÓP.

16. R
4. jan
2006

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

 


Á Litla ljóta andarunganum

Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarsen, Anna Björg Jónsdóttir, Ásta Sveinbjarnardóttir, Baldur Sigfússon, Guðmundur Þórarinsson, Haukur Filippusson, Hildur Bjarnadóttir, Kjartan Jóhannsson, Kristján Sigurjónsson, Kristmundur Halldórsson,  Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Unnur Skúladóttir, Þóra Kristjánsdóttir og GÓP.

Aðalsteinn flutti góða kveðju frá Eiði Guðnasyni sem floginn var til Noregs.

Meðal margs sem barst í tal var grein Guðmundar í Morgunblaði dagsins undir nafninu:
>> F
rábært frumkvæði forsætisráðherra

2005

Minnispunktar

15. R
7. des
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Á Litla ljóta andarunganum

Valgarður Stefánsson, Guðrún Jónsdóttir, Kristmundur Halldórsson, Þóra Kristín Jónsdóttir, Garðar Steindórsson, Anna Björg Jónsdóttir, Björn Þorvaldsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir og GÓP hittumst á Andarunganum og glöddumst - meðal annars yfir kveðjunni góðu frá Guðrúnu Bjarnadóttur:

21. nóvember 2005 16:57
Kæru skólafélagar
Ég sendi mínar bestu kveðjur til ykkar.
Kannski kemur að því að ég geti komist og hitt ykkur.
Bestu óskir um ánægjulegar stundir hjá hópnum.
Kær kveðja
Guðrún Bjarnadóttir,
Guðrúnarstöðum,
Áshreppi í Vatnsdal, A-Hún.,
541 Blönduós

og hugsuðum gleðileg jól til allra.

14. R
2. nóv
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Andarunginn á Lækjargötu 6B reyndist ágætur staður.

Kristmundur Halldórsson, Sigríður Indriðadóttir, Ásta Sveinbjarnardóttir, Þóra Kristín Jónsdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigrún Andrésdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Garðar Steindórsson, Valgarður Stefánsson, Kristján Sigurjónsson og GÓP komu til nýja staðarins. Kristmundur sinnti diplómatisku verkefnunum og samdi um séraðstöðu fyrir hópinn - raunar einnig fyrir hina sem voru uppteknir annars staðar. Við voru ánægð með aðstöðuna og viðurgjörninginn og tilkynntum að við mundum koma þar aftur eftir mánuð.

Sem sagt - miðvikudaginn 7. desember hittumst við aftur á Andarunganum að Lækjargötu 6B.
Þeir sem ekki komast eru beðnir um að senda póst - því kveðjurnar gleðja okkur líka!

13. R
4. okt.
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Perlan er alltaf öruggur og góður staður!

Við áttum góða stund í Perlunni að þessu sinni. Sólveig Einarsdóttir leit inn - frá Ástralíu - og Anna Björg sendi okkur kveðju sína. Hér komu Aðalsteinn Eiríksson, Albína Thordarson, Björk Jónsdóttir, Elsa Rúna Antonsdóttir, GÓP, Guðrún Jónsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Kristján Sigurjónsson, Sigríður Indriðadóttir, Sigrún Andrésdóttir, Sigurður Þórðarson, Sólveig Einarsdóttir, Unnur Skúladóttir, Valgarður Stefánsson, Þorgrímur Eiríksson og Þóra Kristín Jónsdóttir.

Ákveðið var að hittast næst með útsýnið til MR.

Staðurinn er:
Litli ljóti andarunginn
Lækjargötu 6B

12. R
7. sept.
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

Yfirlits
albúmið
er
hér!

 


Í björtu haustveðrinu í Flórunni í síðasta sinn á þessu ári.

Réttsælis frá Albínu lengst til vinstri sjást Hildur, Anna Björg, Elsa Rún, Aðalsteinn og Sigurður. Björk og GÓP sjást ekki og Sigrún kom síðar - en við fengum góðar kveðjur frá Jóhönnu í Íran og Eiði í Kína.

11. R
3. ágúst
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

Yfirlits
albúmið
er
hér!


- í frábæru veðri í Flóru í Grasagarðinum í Laugardal -

 Réttsælis frá Hildi Bjarnadóttur sem er óþekkjanleg á myndinni í himinblámanum á bak við Hauk Filippusson, sem henni er næstur, og svo þau Kristín Arnalds, Albína Thordar sem horfir frá okkur, Björk Jónsdóttir, Andrés Svanbjörns, Guðmundur G. Þórarins, Ragnheiður Ben, Elsa Rúna Antonsdóttir og GÓP.

Meðal umræðuefna var bókmenntalegt innlegg greinar sem birtist í Fréttablaðinu 2. júlí 2005. Greinin er raunar ekki á ábyrgð árgangsins en hún hefur nú borist vefnum svo að þú getur músað hér og lesið hana í góðrúmi:
>> Aftur til varnar forsætisráherra 
og nú einnig fyrri varnargreinina:
>> Til varnar Halldóri forsætisráðherra

10. R
6. júlí
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

Yfirlits
albúmið
er
hér!

 


Í Flórunni

Áttum góða undrastund
með óskum fyrir hina - .
Léttist geð við léttan fund
léttra skólavina.

Á miðjum sumarleyfistímanum komu Eiður, Aðalsteinn, Valgarður, Hildur, Haukur, Sigurður, Sigurbjörg og GÓP. Merkilegt hvað þessi árgangur myndast vel. 

9. R
1. júní
2005

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

Yfirlits
albúmið
er
hér!


Við Flóru í Grasagarðinum í Laugardal - eða var það í útlöndum?

Þorgrímur, Kristján, Aðalsteinn, Unnur, Sigurður, Sigrún, Valgarður, Anna Björg, Albína, Björn, Þóra Kristín og GÓP að leggja af stað í skoðunarferð undir öruggri leiðsögn þeirra Sigurðar og Sigrúnar.

Ákveðið var að hittast hér aftur miðvikudaginn 6. júlí
- en þó aðeins þeir sem geta.

Þá ætlum við að hafa meðferðis hugmyndir að uppákomum og fyrirtektum til að eiga í handraðanum að grípa til þegar enginn á von á.

8. R
4. maí
2005

Að þessu greip eftirsexmaðurinn í tómt í Perlunni.

7. Rmót
6. apríl
2005

Perlan!

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


Kristín, Elín og Unnur sælar í yli vorsins - sjá fleiri myndir!

6. Rmót
2. mars
2005

Perlan!

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!


Ekki voru allir farnir klukkan 18:15 svo að ritari náði fáeinum myndum.

5. Rmót
2. feb.
2005

Perlan stóð okkur opin - en því miður var ritari á sínum fasta síðtíma ásamt Valgarði og Björn Þorvaldsson kallaði til okkar að nú væru allir farnir - nema Albína sem slegið hafði saman endurfundi og samkeppnisfundi því hún átti hlut að einni tillögu í samkeppni arkitekta um þjónustubyggingu við Grafarneskirkjugarð.

Auðvitað er ljúft til þess að hugsa að þar skuli að lokum verða guðdómlegt hús því þar í garði eiga mörg okkar eftir að gista til eilífðarnóns. Ritari var raunar með myndavélina með sér að þessu sinni en hugur hans var því miður ekki við hana þegar við fjögur stóðum saman eitt andartak. Lofar betrumbót næst.

4. Rmót
5. jan.
2005

Við hittumst í Perlunni - sem er okkar fasti mótsstaður - nema annað sé tryggilega tekið fram. Ritara brást alveg að muna eftir myndavélinni - en tautar sífellt við sjálfan sig að gera betur næst. Ritari klaufaðist til að binda sig til kl. 18 alla miðvikudaga og kemur þá brunandi og er afar glaður að hitta þá sem þar eru þá enn á vettvangi. Hann var heppinn núna - og við hurfum ekki á braut endanlega fyrr en um hálfsjö. Auk skemmtilegra samræðna var byrjað að bralla ...

Athugaðu að MR59-vefurinn, já, einmitt - þessi vefur, opnast með því að skrifa í address-línuna á vefsjánni þessa vísun:
http://www.petur.net/gop/open/mr59 

2004

Minnispunktar

3. Rmót
2. des.
2004
fimmtu-
dagur

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 

Yfirlits
albúmið
er
hér!

 


Fimmtudaginn 2. desember hittumst við í Þjóðminjasafninu

og nutum leiðsagnar Þóru Kristjánsdóttur á magnaðri skoðunarferð. Ritari verður að viðurkenna að hann hafði í raun ekki mikinn áhuga fyrir þessari skoðunarferð því að í minni hans voru samskonar ferðir um þetta hús fyrir mörgum árum. Það kom hins vegar í ljós að allt er orðið nýtt - eða að minnsta kosti öðruvísi. Þegar hlaðinni yfirferð var lokið var hann aftur gripinn gömlu tilfinningunni fyrir því að hér væri fjölmargt spennandi óskoðað - og framsetningin er hugvitsamleg og aðlaðandi.

Fimmtudagurinn varð fyrir valinu vegna þess að þann vikudag er safnið lengur opið en aðra daga og þar sem við vorum nokkur hópur - um 20 saman - þá fengum við afslátt af aðgangseyrinum. Auðvitað ætti ekki að vera aðgangseyrir að þjóðminjasafni Íslendinga - og raunar forvitnilegt undir hve stórum hluta rekstrarkostnaðar hann stendur. 

Kristmundur tók myndirnar - en þó aðeins þrjár - því gátkerfi safnsins er öflugt - til allrar hamingju ...b

2. Rmót
6. okt.
2004
miðviku-
dagur

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


6. október 2004 * miðvikudagur kl. 17 á Ís-hæðinni í Perlunni!

1. Rmót:
1. sept
2004
miðviku-
dagur

Músaðu
á
myndina
til

sjá
allar!

 


1. sept. 2004 í Perlunni
* Eiður tók myndirnar
  • Hittumst á ís-hæðinni í Perlunni. Ritari gleymdi hlutverki sínu og myndavélinni - en Eiður kom frá Kína til að taka mynd og Sólveig kom frá Nýja Sjálandi - en tók raunar enga mynd. Við treystum þess vegna á að Eiður sendi inn myndina og þá kemur hún hér inn. Við þekktumst varla - að minnsta kosti átti ritari erfitt með að átta sig á nokkrum andlitum sem hann vonar að segi næst við hann: Hæ! - Ég heiti .... og var í ...-bekknum. Það hjálpar mikið. Kannski ættum við að útbúa okkur nafnspjöld til að vera hvert öðru hjálpleg. Þetta var skemmtileg stund.
  • Rætt var um að fara eitthvert á næstunni. Minnti mig dálítið á söguna af sjónum þegar allt var fast og skipstjórinn kallaði: Hífa!! Slaka!! Gera eitthvað!! en hjá okkur var ekkert fast og allir eru að gera eitthvað. Hugmyndin um að hittast næst á Þjóðminjasafninu fékk þó góðan hljómgrunn. Eins var ákveðið að halda sig alveg fast við þennan fundartíma: Fyrsta miðvikudag í r-mánuðum kl. 17.

Eiður sendi inn myndirnar 7. febrúar 2010.
Þar sjást Albína, Anna Björg, Björk, Elsa Rúna, Garðar, Gísli Ólafur, Haukur Filippusson, Hildur, Kristín, Kristján, Ragnheiður Ben, Sigríður Hjördís, Sigurður Þórðarson, Sigurlaug, Sólveig, Valgarður, Þorbergur og Þóra Kristín.
Sem sagt - nítján með Eiði. Sá tuttugasti situr við borðsendann. Hver er hann?

Júní-04

Júnígleði datt úr geði við fráfall Guðmundar Ágústssonar

Safn-
bókin

Safnbókin er hjá Aðalsteini
númerið er 0101-05-282957
og kt: 101040-4029

MR59

sam-
ráð

og

vefur

Til ráða hafa saman sest:
  • A – bekkur: Þóra Kristjánsdóttir – thora(á)thjodminjasafn.is  * 551-4032 * 861-3155
  • B – bekkur: Aðalsteinn Eiríksson - adalsteinn.eiriksson(á)heima.is * 860-2559
  • C – bekkur: Þóra Kristín Jónsdóttir - Baugur(á)simnet.is  * 552-8242 * 824-6124
  • X – bekkur: Sigurður Þórðarson - saogsth(á)mi.is  * 575-7521 * 864-5038
  • Y- bekkur: Andrés Svanbjörnsson andres.svanbjornsson(á)ivr.stjr.is  * 694-9152

Fréttir af MR-59 og fyrirætlunum okkar er að finna á http://www.peturs.net/gop/open/mr59  (Það er þessi vefur!!!)

Ritstjóri MR59-vefsins er GÓP - GisliOlafur@gmail.com
sendu honum myndir, fréttir og hugmyndir sem bæta mega vefinn.

GÓP-fréttir * Orðsending til MR-59 * MR59 - hvar er hver?