| Forsíða |
Þrautir án lausna |
| (1) | Hvaða mannsnafn má lesa úr þessu:
as as as as as as as as as as |
| (2) | Hvaða nafnorð (lakara fyrir heilsuna) má lesa úr þessu: ÞÞÞÞ |
| (3) | Þrír verkfræðingar sóttu um starf. Þegar þeir komu til viðtals var ákveðið að þeir gengjust undir dálítið próf. Þeim var boðið inn í
herbergi þar sem voru engir gluggar og veggir berir og aðeins eitt ljós í lofti og eitt borð við einn vegginn. (Með öðrum orðum: engin
hjálpartæki.) Á borðinu voru 7 miðar. Fimm voru hvíti en tveir rauðir. Þeim var tjáð að á bakhlið hvers miða væri lím. Ljósið yrði slökkt
og í myrkrinu yrðu þrír miðar teknir af handahófi af borðinu og límdir einn á enni hvers þeirra um sig. Farið yrði með afganginn af
miðunum út úr herberginu áður en aftur yrði kveikt ljós. Þegar ljósið yrði kveikt ætti hver þeirra um sig að finna út hver liturinn væri á
þeim miða sem hann hefði á enninu. Sá þeirra sem fyrstur segði réttilega hver væri litur miðans á enni hans - og gæti rökstutt svarið -
hann fengi starfið.
Nú er þetta gert og þegar aftur kviknar ljós eru engir aukamiðar í herberginu, aðeins eftirlitsmenn prófsins og verkfræðingarnir þrír. Þeir
hafa allir hvítan miða á enni sér. Þegar stutt stund er liðin segir einn þeirra: Ég hef hvítan miða á enninu! |
| (4) | Hesta-Jói var alræmdur hestaþjófur og beið nú dóms eftir réttarhöldin. Hann var að öðru leyti prýðismaður svo dómarinn ákvað að leyfa
honum sjálfum að hafa áhrif á dóminn og sagði við hann: Nú mátt þú taka til máls og segja eina setningu. Ef þú fullyrðir eitthvað sem
reynist vera rangt verður refsingin ákveðinn tveggja ára fangelsi og ein milljón króna í sekt. Ef þú hins vegar fullyrðir eitthvað sem
reynist rétt verður refsingin ákveðin þriggja ára fangelsi og hálf milljón í sekt. Gjörðu svo vel.
Hesta-Jói hafði oft komist í hann krappan og hugsaði sig um en sagði síðan setningu sem geymdi fullyrðingu sem var þess eðlis að dómarinn gat hvorugan dóminn notað án þess að ganga á bak orða sinna og lét Jóa lausan með alvarlegri áminningu og engri sekt. Hvað fullyrti Hesta-Jói? |
| (5) | Hesta-Jói hafði áður komist í hann krappan þegar hann var úti í Bandaríkjunum og var gómaður á stolnum hesti. Þar sat hann inni í
tveggja dyra fangelsisklefa og beið flutnings í nauðungarvinnu þegar fangaverðirnir gerðu honum tilboð. Þeir sögðu honum að við aðrar
dyrnar biði vagninn til að flytja hann í vinnubúðirnar en við hinar dyrnar væri söðlaður fákur sem hann mætti eiga og fara frjáls ferða
sinna - ef hann með einni spurningu til þeirra fyndi út við hvorar dyrnar hesturinn stæði. Athugaðu þó - áður en þú spyrð þessarar einu
spurningar þinnar - að annar okkar svarar öllum spurningum ósatt, hann lýgur alltaf! Hinn segir alltaf satt. Þú færð ekki að vita hvor
okkar segir satt og hvor lýgur en þú mátt spyrja hvorn okkar sem þú vilt.
Hesta-Jói vildi auðvitað losna við að fara í þrælkunarbúðirnar og hugsaði sig um. Að lokum lagði hann spurningu fyrir annan vörðinn. Þegar vörðurinn hafði svarað spurningunni vissi Jói hvorum megin hvíti hesturinn beið hans. Hver var spurningin? |
| (6) | Hvaða lyf er átt við með þessum orðum? Fiskur er fita |