| GÓP-fréttir |
Vefskólinn:
Nytsöm ráð sem duga bæði í Windows og í NT |
| Enski hjįlpar- vefurinn: Windows- Help.net |
Efnisyfirlit
|
>>> |
Address Book í Outlook og Outlook Express |
| Taktu afrit! | Það er hörmulegt að glata öllum netföngum sem safnast hafa í Address Book. Þetta getur gerst þegar uppsetningin hrynur eða þessi forrit ganga af göflunum. Þá er sá maður sæll sem á nýlegt afrit af þeirri Address Book sem hann notar. |
| Outlook 2007 Outlook |
Í Outlook hefur skráin eftirnafnið pstEf margir notendur eru að vélinni þá er skráin geymd á Í Outlook Express hefur skráin eftirnöfnin wab og pabNotaðu Find í Explorer til að finna þessar skrár og taktu afrit af þeim. |
| Ef Outlook Express hrynur |
Outlook Express sett upp afturOutlook Express er ekki hægt að setja upp aftur nema með því að setja Internet Explorer upp aftur og gæta þess að þegar hann er sóttur út á netið þá fylgi Outlook Express með. Ef Outlook Express finnur sig ekki - þ.e. finnur ekki vinnslumöppu fyrir Address Book - þá spyr það einu sinni um vinnslumöppu. Ef þú ekki athugar að tilgreina þá vinnumöppu sem þú vilt nota og Outlook Express velur sína eigin - eða aðra en þú eftir á helst vildir - þá er engin leið að láta Outlook Express skipta um möppu. Þá geturðu samt látið forritið nýta þína gömlu Address Book með því að
|
>>> |
Control Panel og Printers og DUN
|
| Í Start-listann og flettist eins og Start|Programs |
Svona seturðu Control Panel inn í Start-listann þinn og hann veltir innihaldi sínu út í seðil - rétt eins og
Start | Programs gerir. Prófaðu þetta - þú sérð ekki eftir því!
Control Panel.{21EC2020-3AEA-1069-A2DD-08002B30309D}. Gættu þess að skrifa öll táknin, báða slaufusvigana og báða punktana! Eina orðabilið er á milli orðanna Control og Panel. Sendu línu ef eitthvað er óljóst eða vill ekki virka. Með þessu er ekki verið að búa til flýtiopnun á þann Control Panel sem þú hefur vanist að opna. Þetta er raunverulegur Control Panel með nýrri uppsetningu. Allt sem þú síðar setur til viðbótar inn í Control Panel - til dæmis þegar þú bætir við forritum - kemur líka fram hér. Á sama hátt bætirðu við möppunumPrinters.{2227A280-3AEA-1069-A2DE-08002B30309D} |
>>> |
Explorer.exe
|
| Rofar >> keyrslu- skipun: |
Rofar >> það sem skipunin gerir: |
| explorer | explorer >> opnar tvöfaldan neðri glugga |
| c:\ | explorer c:/ >> opnar einfaldan neðri glugga |
| /e, c:\ | explorer /e, c:/ >> /e-rofinn opnar tvöfaldan neðri glugga og efri glugga til viðbótar í efstu línu þar sem auðvelt er að skipta um drif. |
| /n, /e, c:\ | explorer /n, /e, c:/ >> /n-rofinn sér um að opna alltaf nýjan glugga í hvert sinn sem explorer er kallaður aftur. Þannig má opna svo marga explorer-glugga sem maður vill. |
| /n, /e, /root, c:\ | explorer /n, /e, /root, c:/ >> /root-rofinn sér um að þó að /e-rofinn opni tvöfaldan glugga og efri glugga
þá er í þeim efri glugga ekki lengur unnt að skipta milli drifa.
Ef kall á explorer á að birta A-drifið með þremur gluggum en án þess að unnt sé að skipta milli drifa - ætti kall-línan að líta þannig út: c:\windows\explorer /e, /root, A:\ |
| /e, /root, C:\, /select, windows\ system\*.* (allt skrifað samfellt í sömu línu!) |
explorer /e, /root, C:\, /select, windows\system\*.* >> /select-rofinn sér um að þó C:\-drifið sé rótin í litla uppi-glugganum er þó skráasafnið c:\windows\system valið og skrárnar í því safni birtast í stóra glugganum. [Hér þarf að gæta þess að hafa ekki fyrsta hluta slóðarinnar (C:\) með. Það er vegna þess að þá bætir explorer honum inn í og heldur að slóðin sé svona: c:\c:\windows\system\*.*]. |
| Skoðaðu skrána C:\windows \tips.txt |
Ef þú notar Windows skaltu leita í Windows-möppunni á tölvunni þinni að skránni tips.txt þar sem meðal annarra merkra atriða er fjallað um þessar stillingar á Windows Explorer |
| Dálkbreidd | Dálkbreidd má stilla með Ctrl+plús þegar Explorer hefur verið opnaður. |
| Ctrl+plús
Ábending |
Þegar þú hefur opnað Explorer skaltu hneppa Ctrl+plús. Þessi plús-hnappur er plúsinn á talnaborðinu -
þ.e. plús-hnappurinn sem er lengst til hægri á hnappaborðinu.
Þá sérðu að dálkrýmið stillist. Það verður nákvæmlega nógu vítt til að unnt sé að sjá lengstu lýsinguna sem í dálkinum er. Ef dálkurinn var áður breiðar - þá mjókkar hann. Ef hann var mjórri áður - þá breikkar hann. |
| Lokanir | Notaðu Ctrl+velja+loka til að loka mörgum opnum forritum í senn. |
| Ábending 6.6.99 frá PÖP |
Þú getur lokað opnum forritum samtímis með því að halda niðri Ctrl-hnappnum meðan þú músar á tákn þeirra eitt af öðru á verkefnaslánni - neðst á skjánum. Þegar þú hefur merkt þau sem þú vilt loka hægri-músarðu á eitt þeirra og lokar því. Þá lokast þau öll. |
>>> |
Flýtimúsun og flýtihnepping |
| Alt+Ctrl+Left | Hér er leiðbeining við að útbúa flýtimúsun og flýtihneppingu sem opnar Explorer og sýnir það sem er á skífu í A-drifi |
| Gerðu þetta: | til þess að: |
| Hægri-músaðu á Start |
Markmiðið er að búa til afrit af explorer-icon, setja það á desktop, breyta keyrsluskipuninni svo hún fletti upp A:-drifinu og setja á hana flýtihneppingu. Núna opnast valseðill. |
| Músaðu á open | opna Start menu - gluggann. |
| Músaðu á programs |
Nú opnast Programs-glugginn þar sem eru hin einstöku forrit og þær forritamöppur sem eru á forritalistanum þínum sem þú opnar venjulega með Start | Programs. Þar finnurðu Windows Explorer - táknið. |
| Hægri-músaðu á táknið og dragðu það út á desktop. |
Þú dregur táknið út fyrir alla glugga og út á upphafsglugga Windows-forritsins þar sem þú t.d. finnur My Computer - táknið. Þann glugga skulum við hér kalla Windows-borð. Gættu þess að gera þetta með hægri-hnappnum! Annars færirðu táknið til. Það viltu ekki. Þú vilt einungis taka af því afrit!! Þegar það er komið út á Windows-borðið skaltu sleppa hægri músarhnappnum. Þá birtist valseðill. |
| Veldu Copy here |
svo til verði afrit á Windows-borðinu. |
| Hægri-músaðu á þetta nýja afrit |
til að opna vallista. Hér skaltu gera þrennt - en auðvitað aðeins eitt í senn! (a) skipta um nafn, (b) skipta um skipunarlínu og (c) tiltaka flýtihneppingu. |
| Veldu Rename
Skrifaðu nýtt Drif-A |
Það er gott að nota lík nöfn svo táknin raðist saman á Windows-borðinu þegar beðið er um uppröðun. Þannig geta næstu flýtimúsanir og -hneppingar heitið nöfnum eins og Drif-C og Drif-H osfrv. og eftir að þú síðan hægri-músar á Windows-borðið og velur Arrange icons | by name færðu táknin í skynsamlega röð. |
| Hægri-músaðu á Drif-A veldu Properties |
Opnar vallistann. Nú framkvæmirðu (b) - þ.e.: skiptir um skipunarlínu. |
| Í Target-línuna skaltu skrifa nýju skipunar- línuna >> |
Nýja skipunarlínan er þessi: C:\WINDOWS\EXPLORER.EXE /n,/e,/root,A:\ |
| Músaðu í línuna þar sem stendur Shortcut Key hnepptu vinstri - örvarhnappnum |
Hér geturðu nú valið hvaða bókstaf eða tölustaf sem þú vilt. Það er hins vegar dálítið sérstakt að skoða A-drifið. Oft er maður að vinna á tölvu þar sem einhver annar hefur raðað inn sínum flýtihneppingum. Þá þykir mér þægilegt að nota örvahnappana! Þá læt ég vinstri-örvahnappinn alltaf merkja A-drifs-opnun. Prófaðu það með því að hneppa núna vinstri-örvahnappi. Í línunni birtist þá Ctrl+Alt+Left og þessi skipun er framkvæmd ef þú heldur niðri Ctrl-hnappi og Alt-hnappi þegar þú til viðbótar hneppir vinstri-örvarhnappnum. |
| Músaðu á Apply og á OK |
Með því að músa á Apply læturðu Windows melta þessar breytingar og flýtihneppinguna. Windowa gerir
það raunar þótt þú ekki músir á Apply - en hvað með það!? Nú er allt tilbúið - prófaðu nú! - Settu skífu (jæja þá, diskling ef þú endilega vilt) í A:-drifið og |
| músaðu á Drif-A-táknið |
Auðvitað virkar þetta! Lokaðu því samt aftur til að prófa flýtihneppinguna. |
| Hnepptu Ctrl+Alt+Left |
!! og nú geturðu búið til flýtihneppingar á möppurnar sem þú ert alltaf að opna. |
>>> |
Flýti-opnun skrár í sérvöldu forriti |
| Opna skrá í forriti þegar það er ekki tengt því forriti sem þú vilt nota: |
Skikka skrá til að opnast í tilteknu forriti
Þegar tvímúsað er á skrá opnast það forrit sem bjó skrána til - eða eitthvert forrit sem tengt er þessari skrá eða nafni þess og endingu nafnsins. Þegar þú vilt opna skrána í öðru forriti ferðu svona að:
|
>>> |
icon |
| Nýtt icon má fá þannig: | Þegar breytt er um táknmynd/icon með skipuninni change icon fær maður að velja nýja táknmynd úr skránni SHELL32.DLL. Þegar sú valmynd kemur fram má líka leita í gömlu skránum sem fylgdu Windows. Þær skrár heita PROGMAN.EXE og MORICONS.DLL og eru inni á C:\Windows. Í þeim flettirðu með því að setja c:\windows\moricons.dll eða c:\windows\progman.exe í staðinn fyrir shell32.dll |
>>> |
Messenger Service - plįgan |
| Losna viš Messenger- Message pop-up Ábending |
Messenger Message - gluggi sem poppar upp meš boš frį
śtsmognum bošsendurum śti į vefnum. Hvernig į aš losna viš hann? Ķ Windows-2000 er žaš gert svona: \Start\Settings\Control Panel\Administrative Tools |
>>> |
My Computer og Network Neighborhood |
| MC-stikan
Ábending |
Hægt er að tengja My Computer sem stiku við jaðar aðalgluggans (desktop) - ekki þó við þann jaðar þar
sem Windows-stikan er (sú sem geymir Start-hnappinn).
Notaðu músina til að draga My Computer-táknið að jaðrinum. Þá leggst það að honum sem stika. Hægri-músaðu á stikuna og veldu Toolbars og skoðaðu þá kosti sem bjóðast. Einnig er unnt að skikka stikuna til að sýna small-tákn og letur. Sama gildir um Network Neighborhood og Recycle Bin |