Forsíða

 |
Ábendingar (16.09.2001)
2. kafli á bls. 24 - 41.
Verkefni nr: 2.2, 2.4, 2.8, 2.12, 2.14, 2.18 |
Verk- efni
2.2: |
Hér skaltu nota fallið FREQUENCY í Excel til að telja út tíðni talnanna - svona:
- (1) Skrifaðu í reitina A1:A29 tölurnar sem tilteknar eru.
- (2) Vertu í reit A30 og settu þar formúluna =AVERAGE(A1:A29)
- (3) Við viljum útbúa töflu eins og sýnd er á myndinni á bls. 26 og þess vegna skaltu nú skrifa tala = x í reitinn B1 og síðan tölurnar 1, 2,
3, ..., 10 í reitina B2:B11. Skrifašu lķka f ķ reitinn C1.
- Þú vilt telja hversu margar tölur í gagnasafninu í A1:A29 eru 1 (strangt til tekið: á bilinu frá 0 til 1) og þann fjölda viltu við fá í reitinn C2.
Hversu oft finnst talan 2 í safninu? Þann fjölda viltu við fá í C3. Þannig heldurðu við áfram og vilt fá tíðni tölunnar 10 í reitinn C11. Það
eru tölurnar í B2:B11 sem segja til um talnaflokkana. Það á sem sagt að flokka tölurnar þannig að allir einarnir séu saman, allir tvistarnir
saman - osfrv. Til þessa notarðu fallið FREQUENCY svona:
- (4) Svarið á að koma í reitina C2:C11 svo að þú byrjar á að blokka þá.
- (5) Síðan músarðu á FALL-hnappinn fx og velur í Function category STATISTICAL og í Function name FREQUENCY og músar svo á
OK.
- (6) Nú þarftu að tiltaka Data_array. Músaðu á hnappinn aftast í þeirri línu og þegar falla-spjaldið hrekkur niður í eina línu skaltu blokka
A1:A29. Músaðu svo aftur á hnappinn aftast í línunni. Þá stækkar falla-spjaldi aftur.
- (7) Færðu nú bendilinn í Bins_array-línuna, músaðu á hnappinn aftast í þeirri línu, blokkaðu síðan B2:B11 og músaðu á hnappinn sem er
aftast í þessari einu línu sem sést af falla-spjaldinu.
- (8) Spjaldiš stækkar aftur. Nú skaltu ljúka aðgerðinni með því að !!GÆTTTU ÞÍN!! þú þarft að halda niðri CTRL+Skipti þegar þú hneppir
INN-hnappnum. Þá eiga tíðnitölurnar að birtast í C2:C11
Athugašu aš hnappurinn Skiptir er SHIFT-hnappurinn og INN-hnappurinn er RETURN-hnappurinn.
Síðan heldurðu áfram með töfluna með einfaldari Excel-aðferðum. |