| GÓP-fréttir
|
Vefskólinn - Eiginvefur |
| Nýtt viðhorf: Ath: eigin = einka Þinn |
Hér er á ferðinni nýtt viðhorf til eiginvefs. Þegar þú útbýrð þinn eigin vef verður efnisval, uppsetning og framsetning undir þér komin og engum öðrum. Þú ræður öllu um þinn vef. Íhugaðu nytsemi hans í námi, starfi og frístundum. Hér á eftir fer innlegg í þá umræðu - innlegg sem til dæmis endurspeglar starfsramma GÓP-frétta - sem er eiginvefur. Neðst á þessari síðu er vísað til umfangsmikils vefs sem hefur annað og hefðbundnara viðhorf til eiginvefsins. Skoðaðu það líka - en svo gerir þú upp þinn hug. Einn góður kostur við vefinn þinn verður líka sá að þú þarft ekki að taka neinar ákvarðanir í eitt skipti fyrir öll. Það má nefnilega alltaf endurskoða hvað sem er - og breyta og betrumbæta - eftir þínu eigin höfði! |
| Markmið einkavefs |
Einkavefurinn á að koma á framfæri því efni sem manni er kært, maður er viss um að hafi gildi í sjálfu sér og veki áhuga annarra
sem sjá það - jafnvel þótt það sé töluvert tengt vefaranum. Kostur er þá að skrifa um það í fréttastíl.
Einkavefur á einnig að geyma upplýsingar sem manni annars væru út úr seiling. Dæmi um það eru útvísanir (tengingar til annarra vefja) sem maður nýtir gjarnan - og sem oft eru settar í geymslu (favorites) á vinnslutölvunni. Galli þeirrar geymslu er sá að þegar vefurinn er skoðaður í annarri tölvu er sú geymsla fjarri. Þess vegna er nytsamt að vefurinn geymi sjálfur þessar vísanir. Einkavefur á einnig að geyma netföng sem oft þarf að grípa til - en þó þarf að íhuga uppsetningu þeirra og velta fyrir sér hvort nokkur mundi sjá á því meinbugi að netfang hans sé haft svo til sýnis. Netföng sem geymd eru í netfangalista á heimatölvu eru því miður víðs fjarri þegar senda þarf netlu (NETLínU) af annarri tölvu. Þá er nóg að opna vefsíðuna sína og þar eru netföngin sem nota þarf. |
| Markmið náms- vefs |
Námsvefur geymir allar upplýsingar sem maður hefur um námsgrein síðunnar. Vefurinn getur geymt upplýsingar um allar námsgreinar en hér verður aðeins íhuguð almenn nytsemi vefs um námsgrein. Vefurinn á að verða eiganda sínum til aðstoðar. Þar geymir hann íhuganir um mikilvæg atriði, lausnir á verkefnum, vísanir til annarra vefja og allt það sem hann vildi gjarnan að væri á vef kennarans í greininni. Hafi kennarinn vef þá er vísað til hans - en engu að síður gerður svo öflugur vefur sem frekast er unnt. Gott er að miða við að þurfa síðar að halda erindi eða fyrirlestur um greinina og gera þá ráð fyrir að nota vefinn sinn og varpa honum á tjald eftir þörfum. Það kallar á ýmsar nytsamar skýringarmyndir og sérstakar upplýsingasíður eftir eðli greinarinnar og erindisins. |
| Markmið starfs- vefs |
Vefur sem geymir ítarlegar upplýsingar sem tengjast starfi manns getur reynst bæði mjög til persónulegrar aðstoðar í starfinu sem minnisvefur og upplýsinga- og tengitorg. Einnig gefst þar aðgengilegt tæki til að nota hvenær sem taka þarf til máls um þau efni sem unnið er að. Efni vefsins er þá sett upp þannig að hluta hans má nota viðstöðulaust til útskýringa fyrir fundargesti í ráðstefnusal. |
| Annað viðhorf: |
Það sjónarmið á eiginvefi sem sett er fram á þessari síðu er öðruvísi en það sem helst hefur verið haldið á loft hingað til. Hér sérðu vefsíðu sem heldur á lofti hinu hefðbundna sjónarhorni - sem þú raunar sérð endurspeglast í flestum eiginvefum á internetinu. Skoðaðu það - og íhugaðu málið. Þegar þú býrð til þinn eigin vef verður hann þinn eigin vefur og þú ræður honum að öllu leyti. Hvaða sjónarmið fellur vel að þínum viðhorfum? |
| Niðurstaða: | Eiginvefur er nauðsynlegur |