| GÓP-fréttir
Uppfært |
Word-minnispunktarÞetta er ekki hugsað sem kennslutexti! |
| Hnappar | Hnappaheiti í þessum leiðbeiningum:
|
| Lýsing: | Minnispunktar: |
| Vista skjal á hvaða drifi sem er |
Músa á File | Save As til að opna Save-As-boxið. Músa á
Save-in-línuna og velja drifið. Skrifa nafn skjalsins á
File-name-línuna. Músa á Save.
Hneppa <F12> til að opna Save-As-boxið. Skrifa nafn drifsins (t.d. a:) á File-name-línuna og hneppa <inn>-hnappnum (inn=enter) |
| Sækja skjal á hvaða drif sem er og í hvaða möppu sem er - og opna það |
Músun > Músa á File | Open til að opna Open-boxið. Músa á
Look-in-línuna og velja drifið.Möppurnar birtast í stóra
glugganum. Velja undirmöppu uns skjalið er fundið. Tvímúsa á
heiti skjalsins.
Hnepping > Hneppa <Ctrl+O> til að opna Open-boxið. Skrifa nafn drifsins (t.d. a: eða c:\My documents) á File-name-línuna og hneppa <inn>-hnappnum. Hneppa <SS-Tab> til að koma bendlinum inn í stóra gluggann. Velja möppu með <niður-ör> og öðrum færsluhnöppum, opna möppuna með <inn> og velja áfram, undirmöppur og að lokum skjalið og taka það inn - með <inn> |
| Vinna með fleiri en eitt skjal í einu |
Opna þau skjöl sem vinna skal með. Ef þau eru hvert á sínum stað
þarf að sækja hvert um sig. Ef þau eru í sömu möppu má velja
þau með því að halda niðri <Ctrl>-hnappnum á meðan músað er á
þau eitt af öðru. Taka þau svo inn með <inn>
<Ctrl-F6> hoppar milli skjala í Word. <Ctrl-SS-F6> hoppar í öfugri röð. (Taktu inn þrjú skjöl og prófaðu!) |
| Loka vinnuskjali |
Músa á File | Close eða músa á næstefsta X-hnappinn í hægra horninu uppi eða hneppa <Ctrl-F4> |
| Loka Word |
Músa á File | Exit eða músa á efsta X-hnappinn í hægra horninu uppi eða hneppa <Alt-F4> |
| Hvað gerir Backspace ? |
Eyðir tákninu vinstra megin við bendilinn. Eyðingaráttin er þessi: <<< (.. abcd|efg.. << hér hverfur d) |
| Hvað gerir Delete ? |
Eyðir tákninu hægra megin við bendilinn Eyðingaráttin er þessi: >>> ( hér hverfur e >> .. abcd|efg.. ) |
| Blokka = velja = afmarka texta með mús |
Setja músarbendilinn framan við fyrsta táknið. Halda músarhnappnum niðri á meðan músarbendillinn er færður aftur fyrir aftasta táknið. Textinn verður svartur. Þá er hann blokkaður. |
| Blokka texta með hnöppum |
Færa bendilinn með bendilfærsluhnöppum fram fyrir fyrsta táknið. Halda niðri <SS>-hnappnum meðan bendillinn er færður aftur fyrir síðasta táknið með bendilfærsluhnöppum. Textinn verður svartur. Þá er hann blokkaður. |
| Afrita texta og láta hann líka birtast annars staðar |
Blokka textann. Músa á Edit|Copy eða hneppa <Ctrl+C> Færa bendilinn þangað sem textinn á að koma (í sama skjali, öðru skjali eða í öðru forriti) og músa á Edit|Paste eða hneppa <Ctrl+V>. |
| Færa texta - þ.e. klippa texta þaðan sem hann er og láta hann birtast á öðrum stað |
Blokka textann. Músa á Edit|Cut eða hneppa <Ctrl+X> Færa bendilinn þangað sem textinn á að koma (í sama skjali, öðru skjali eða í öðru forriti) og músa á Edit|Paste eða hneppa <Ctrl+V>. |
| Prenta |
Músa á Prenthnappinn til að prenta allt skjalið
Músa á File | Print eða hneppa <Ctrl-P> til að opna print-boxið. Stilla Page range og Copies og Print what og Print að vild - og prenta svo með <inn> eða músa á OK |
| Breyta leturgerð eða/og útliti leturs |
Músa á Format | Font
Leturgerðir eru t.d. Times Roman og Arial. Yfirleitt má velja milla margra leturrgerða Til útlits leturs teljast feitletrun, undirstrikun, skáletrun, leturlitur, stafabil og fleira. |
| Setja inn óvanaleg tákn |
Músaðu á Insert | Symbol og athugaðu að þar má skoða margar tákna-samstæður (táknasett). |
| Jafna texta | Músa á Format | Paragraph | Alignment
|
| Breyta málsgrein inndrætti, línubili, bili á undan/eftir |
Músa á Format | Paragraph
Þannig opnast valbox þar sem þessi atriði eru stillt. |
| Dálkstillingar = Tab-stillingar |
Einfaldast er að hafa reglustikuna á. Hún fæst með View | Normal
eða View | Page Layout og velja View | Ruler.
Músaðu nokkrum sinnum á táknið sem er við vinstri jaðarinn - þ.e. á enda reglustikunnar. Þannig sérðu dálkhökin sem auðveldast er að sækja. Dálkhakið sem þú hefur valið seturðu á sinn stað í reglustikunni með því að músa þar á hana. Þú getur fært hakið til með músinni og einnig fjarlægt það með því að toga það niður úr reglustikunni. TAB-hnappurinn er notaður til að hoppa í næsta dálkhak. |
| Línur, rammar og skygging á málsgreinar |
(1) Veldu málsgreinina eða málsgreinarnar.
(2) Músaðu á Format | Borders and Shading (3) Hér skaltu fikta í öllu og músa á OK til að sjá hvað gerðist. Þú getur hætt við breytingarnar með því að hneppa Ctrl+Z |
| Töflur og útlit þeirra |
(1a) Töflu býrðu til með Table | Insert table
(1b) Töflu geturðu líka búið til með því að músa á töflugerðarhnappinn (á honum er töflumynd) og velja þann fjölda lína og dálka sem þú vilt. Þegar þú sleppir hnappnum birtist taflan þar sem bendillinn þinn er! (2) Hafðu bendilinn í töflunni. Veldu svo Table | Table autoformat til að láta töfluna fá eitthvert forvalið útlit. |
| Númer eða merki á málsgreinar - sjálfvirkt |
(1) Áður en þú byrjar að skrifa: Veldu Format | Bullets and
Numbering
(2) Eftir að þú hefur skrifað:
(3) Ef setja skal númer á headings þarf að velja þann kost í Format | Bullets and Numbering |
| Breyta spássíu síðugerð pappírsgeymslu síðusniði |
File | Page Setup opnar Page Setup-gluggann.
|
| Síðunúmer | Insert | Page Numbers
Útliti talnanna er breytt með því að músa á Format-hnappinn |
| Neðanmálsgrein Aftanmálsgrein |
Insert | Footnote birtir Footnote and Endnote - gluggann. |
| Haus - fótur | View | Header and Footer |
| Raða | (1) Blokka það sem á að raða (2) Table | Sort |
| Dálkar |
|
| Dagsetning | Insert | Date and Time |
| Leita og skipta | Edit | Find and Replace eða hneppa Ctrl+H. |
| Ný síða | Ctrl+inn setur blaðsíðuskil þar sem bendillinn er |
| Stikur af/á | View | Toolbars setur stikur af og á. Einnig má hægri-músa ofan við ritsvæðið á skjánum - þar sem stikurnar birtast. |
| Mælistika af/á | View | Ruler |
| AutoCorrect | Geymir lista yfir orð og orðasambönd sem þú vilt fá fram með
skammstöfun - eða vilt láta Word birta í staðinn fyrir eitthvað
annað sem þú skrifar - t.d. til að leiðrétta villur sem þér hættir til
að gera. Ef þú vilt bæta í listann - t.d. nafninu þínu - ferðu svona
að:
|
| AutoText | Tools | AutoText virkar með svipuðum hætti og AutoCorrect. Prófaðu! |
| Myndir | Insert | Picture | ClipArt eða Insert | Picture | From File |
| Text Box | Insert | Text Box |
| Stílar | Nota tilbúinn stíl:
Nota tilbúinn stíl - sem ekki finnst í stíla-listanum:
Breyta stíl:
|
| Samsteypa | Tools | Mail Merge opnar verkstjóra sem leiðbeinir um gerð
póst-samsteypu í þremur áföngum:
|
| Efnisyfirlit |
|
| Atriðisorðaskrá |
|
| Myndaskrá |
|
| Change Case | Hástafir / lágstafir þessi skipti gerirðu með því (1) að blokka textann og (2) Format | Change Case |
| Drop Caps | Format | Drop Cap Sér-stórir upphafsstafir - oft notaðir í upphafi kafla. |
| WordArt | Hafðu Drawing-stikuna opna. Veldu þar WordArt-hnappinn. |
| Stílsíður | Template er síðuform. Þú býrð til nýtt síðuform með því að (1) opna nýtt skjal, (2) breyta því eftir þínu höfði og (3) vista það sem Document Template. Síðan geturðu alltaf fengið eintak af þessu síðuformi með File | New. |
| Orðskipti
Ctrl+mínus |
Hyphenation er notuð til að skipta orðum milli lína. Til þess má
nota Tools | Language | Manual
Hægt er að setja inn orðskipti þar sem maður vill með því að hafa
bendilinn þar í orðinu sem skiptingin á að koma og hneppa
Ctrl+mínus |
| Outline | Sjálfvirk númerun: Format | Bullets and Numbering | Outline Numbered Unnið í Outline-ham: View | Outline |
| Master document Subdocument |
View | Master Document skilgreinir skjalið sem yfirskjal og birtir Master Document - stikuna. Þá má skipuleggja yfirskjalið og útbúa undirskjöl (subdocuments) með Create Subdocument - hnappnum |