| GÓP-fréttir
Uppfært |
Vefskólinn:
Gátlisti fyrir Word-97Allt þetta geturðu líka unnið heima! Ath! Allar leiðbeiningar um námið, markmiðalista, námsáætlun og vinnuskrár færðu í Vefskólanum |
| >> | Þessi gátlisti er yfir atriði sem gott er að hafa gát á þegar unnin eru verkefnin í bókinni Word-97 eftir Brynjólf Þorvarðarson. |
| Hopp í verkefni: |
Internet 1 = Uppsetning netfangs * Internet 2 = Vefskólavefurinn Viðhengi - hvernig er það sent? Verkefni 1 * 2 * 3 * 4 * 5 * 6 * 7 * 8 * 9 * 10 * 11 * 12 Vefsíðugerð Verkefni 13 * 14 * 15 * 16 * 17 * 18 |
| Athugaðu: | Þegar þú byrjar á verkefni skaltu fyrst lesa það sem stendur í Gátlistanum! Hann vekur athygli á atriðum sem nemendur lenda oft í erfiðleikum með - og kennslubókin segir ekki ítarlega frá!! |
Skýringar: |
Hnappaheiti í þessum leiðbeiningum:
Músanir í þessum leiðbeiningum:
|
| Internetið:
Netfang og i-2: Vefskólinn |
Í upphafi leysirðu tvö verkefni á internetinu.
Þú þarft að sækja þau út á internetið. Músaðu hér á þessa leiðbeiningu þar sem þú lest hvernig þú átt að fara að til að sækja skrár. Verkefnið Netfang er í tveimur liðum. Í A-liðnum færðu aðstoð við að koma þér upp netfangi án endurgjalds á vefnum visir.is. Þá getur þú sent öðrum póst og aðrir geta sent þér póst. Póstsending á internetinu er nauðsynleg í þessum námi. Í B-liðnum notarðu netfangið þitt til að senda kennaranum tölvupóst með ýmsum upplýsingum. Ef þú hefur ekki símatengingu heima hjá þér skaltu athuga að hægt er að fá ókeypis innhringi-aðgang hjá mörgum þjónustuaðilum og einnig hjá Búnaðarbanka, Íslandsbanka og Landsbanka. Þá þarftu aðeins að greiða símafyrirtækinu (Landsímanum) fyrir símtalið á meðan þú notar tenginguna. Verkefnið: Góð vinnuaðferð er þessi:
|
| Viðhengi
Hvernig |
Þegar þú hefur skrifað skjal í WORD og vilt senda það sem viðhengi með pósti ferðu svona að:
|
1. verkefni:Ath! |
Ef þig vantar WORD-kennslubókina skaltu hér HÆGRI-músa á verkefni 1 og velja Save-kostinn.
Það er dálítill galli í leiðbeiningunum í bókinni að þér er sagt að prentskoða skjalið eftir að þér hefur verið sagt að vista það og loka því! Geymdu prentskoðunina uns þú hefur skrifað inn vísuna. - Ekki prenta neitt út í þessu verkefni - nema þú viljir hengja það upp á ísskápinn heima hjá þér! Þegar þú hefur lokið verkefninu sendirðu það sem viðhengi með tölvupósti til kennarans. Athugaðu að ÖLL verkefnin á að senda sem viðhengi í tölvupósti JAFNÓÐUM og þau klárast. Ef eitthvað ryenist athugavert við þau sendir kennarinn þér ábendingu um það og þú lagar það - og sendir það síðan aftur. Þegar kennarinn hefur móttekið verkefnið og er að lokum ánægður með vinnslu þess - þá færð þú fulla einkunn fyrir það. |
2. verkefni:A-liður: |
Ef þig vantar WORD-kennslubókina skaltu hér HÆGRI-músa á verkefni 2 og velja Save-kostinn. Í upphafi skaltu stilla á Arial-letur, hafa stærðina 12 punkta og skáletur. Þú skalt vista strax og þú hefur skrifað fyrstu tvö orðin! Láttu skjalið heita Verkefni 2 eða bara V02 - og gættu þess að í efstu línu vistunargluggans standi 3½ Floppy A Alls ekki hneppa <inn>-hnappnum í lok línu!! Skrifaðu frásögnina eins og hún eigi að fara í eina langa línu! Forritið sér sjálft um að raða orðunum í línurnar. Þrípunktinn færðu með því að halda niðri bæði Ctrl-hnappnum og Alt-hnappnum og þegar þeir eru niðri þá bankarðu á punkt-hnappinn á hnappaborðinu. Æfðu þetta! |
C-liður: |
Hefurðu vistað aftur? Vistaðu alltaf öðru hvoru til að glata sem minnstu þegar netið dettur niður og tölvan frýs. Þú getur vistað með
flýtihneppingunni Ctrl+S.
Tókst þér ekki að jafna línur textans? Gættu að því hvar bendillinn er. Hann á að vera í frásögninni en ekki í fyrirsögninni. |
3. verkefni:A-liður: |
Ef þig vantar WORD-kennslubókina skaltu hér HÆGRI-músa á verkefni 3 og velja Save-kostinn. Hvernig fer bendillinn aftast?? Músaðu á hnappinn sem sýndur er á skýringarmyndinni! Hvernig er skrifað í miðja síðuna? Hvernig læt ég textann jafnast beggja megin? Já, fyrirgefðu - auðvitað veistu þetta ... |
B-liður: |
Hér sérðu hvaða leturstærð á að nota á hverjum stað.
Athugaðu: í þeim verkefnum sem á eftir fara í þessari bók skaltu ákveða leturstærðir og millibil eftir eigin höfði - ef ekkert er tekið sérstaklega fram í leiðbeiningum. Hvernig býrðu til strikið í næst-neðstu línunni? Haltu niðri SS-hnappnum og hnepptu strik-hnappnum sem er vinstra megin við BAKK-hnappinn. |
4. verkefni: |
Þessu verkefni sleppum við í Vefskólanum! |
5. verkefni:A-liður: |
Ef þú hefur ekki kennslubók skaltu hér sækja
verkefni 5. Byrjaðu á að skrifa fyrirsögnina með venjulegu letri og hneppa inn-hnappnum. Farðu svo upp í fyrirsögnina, blokkaðu hana og breyttu letri og stærð. Gastu ekki fundið töluna 47 ?? Ekki ég heldur! Skrifaðu bara 47 og hnepptu inn-hnappnum. |
C-liður: |
Taktu eftir hvernig leturgerðin Small Caps er sett á!
(1) skrifa á venjulegan hátt - EKKI með hástöfum! |
Niðurskrift >> |
<Ctrl> + <SS> + <Núll sem er við Ö-hnappinn> |
Uppskrift >> |
<Ctrl> + <Plús-hnappurinn sem er við stóra inn-hnappinn> |
F-liður: |
Númerin á málsgreinarnar koma með því að músa á númerahnappinn. |
G-liður: |
Er línubilið allt í einu orðið tvöfalt? Þú hefur óvart hneppt Ctrl-2 og um leið hefur stillingin 6-pt-after týnst.
|
6. verkefni:Small Caps |
Leturgerðina Small Caps seturðu svona á (1) Skrifaðu alla setninguna. (2) Blokkaðu þau orð sem eiga að verða Small Caps. (3) Músaðu á Format og Font og veldu þar Small Caps. |
B-liður: |
Rammana gerirðu eins og segir í D-lið. Hvernig býr maður til strikið sem er neðst í skjalinu? Ó! Nú kom lína þvert yfir síðuna. Láttu ekki hugfallast, Word heldur að það sé að hjálpa þér. Hnepptu BAKK-hnappnum einu sinni! - A-ha. |
7. verkefni: |
Athugaðu! Þessu verkefni er sleppt í Vefskólanum !!
Best er að mjókka rammann með því að
|
8. verkefni: |
Aðvörun!
Aldrei má jafna með orðabils-slánni !!! Aldrei má setja punktalínur með punkt-hnappnum !!! Hvernig á maður þá að fara að? Fylgdu leiðbeiningunum vandlega! Þær eru betri en sýnist! |
A-liður: |
Stilltu dálkahökin áður(!!!) en þú byrjar á fyrstu línunni - og taktu eftir að þú átt að stilla þau aftur áður en þú byrjar á þriðju línunni. |
C-liður: |
Hvað eru venjuleg dálkahök? Það eru dálkahökin sem þú hefur verið að nota! Í þessu verkefni skaltu
|
D-liður: |
Málsgreinina, sem hefur strik ofan við sig og neðan, skaltu fyrst skrifa og hliðjafna. Það flýtir fyrir þér ef þú hneppir inn-hnappnum
þegar þú hefur lokið við að skrifa hana. Síðan skaltu blokka hana og setja á hana strikin með Format | Borders and Shading
Þegar þú byrjar á töflunni með punktafyllingunni skaltu stilla dálkmerkin fyrir fyrstu línuna. Þar á hins vegar engin punktafylling að koma. Skrifaðu fyrstu línuna og hnepptu inn-hnappnum. Áður en þú skrifar línu númer tvö skaltu setja punktafyllingu á 5cm-stoppið svona:
|
E-liður: |
Athugaðu! Skoðaðu skýringarmyndina! Um er að ræða tvær tegundir af línum! Í leiðbeiningunum eru þær kallaðar a og b.
Hvernig færðu neðsta strikið? Vill það ekki koma? Þá hefurðu ekki lesið neðstu línuna í leiðbeiningunum! |
9. verkefni: |
A-liður: Aðeins að skrifa textann upp með réttum stílum. Engin númer!! Engar tilfæringar!! Sjáðu myndina við leiðbeininguna í
bókinni.
Vantar stíla??! Þá ferðu svona að:
B-liður: Hér seturðu númerin á allar fyrirsagnirnar í einu lagi! Gættu þess að setja þau númerin á sem eru við Heading-stílana! Þau eru ekki endilega á sama stað og sýnt er í bókinni! |
C-liður: |
Fyrst breytirðu Normal-stílnum. Það gerirðu svona:
Vill skjalið þitt ekki haga sér eins og það á að gera? Næst á að breyta Heading 1 - stílnum.
Næst á að breyta Heading 2 - stílnum. Taktu eftir að þar á líka að breyta letrinu svo að það verði ekki skáletur. Þetta gerirðu svona: Breyttu Paragraph alveg eins (1) - (4) og farðu svo eitt (!!) skref til baka. Þ.e.: músaðu einu sinni á OK.
Gerðu hinar breytingarnar eins! |
10. verkefni: |
A-liður og B-liður:Sæktu skrárnar fiskur.doc og manudir.doc þegar um er beðið. Í skjalinu fiskur.doc áttu að raða málsgreinum í rétta röð en
mánuðunum í skjalinu manudir.doc og vistaðu svo skjölin með óbreyttum nöfnum! |
C-liður: |
Það er nytsamt að kunna að útbúa skammstafanir sem forritið skrifar fullum stöfum - en þetta virkar líka á Excel sem notað er í
sömu tölvu og setur það úr skorðum. Þess vegna sleppum við þessum lið. Ef þú átt tölvu heima skaltu gera liðinn þar til að læra
þetta. Æfðu þig með því að útbúa skammstöfun fyrir nafnið þitt - svona:
Þú hagnýtir þér AutoText á sama hátt. Prófaðu! |
D-liður: |
Sæktu skjalið Fornar.doc er skjalið sem þú notar í öllum þeim liðum sem eftir eru í þessu verkefni. Vistaðu það alltaf með sama
nafni! Allar breytingarnar eiga að vera í þessu sama skjali.
Í þessum D-lið á að læra að nota Find. Síðan notarðu Finna-og-skipta með Find | Replace. Þá skrifarðu í efri línuna orðið sem á að finna en setur í neðri línuna orðið sem koma skal í staðinn. Músar svo á Replace All svo forritið skipti alls staðar í einu. |
E-liður: |
Hér á að finna undirstrikuð orð og breyta þeim svo að þau verði feitletruð en ekki undirstrikuð. Þetta gerirðu svona:
Nota flýtihneppingu Á sama hátt notarðu Ctrl+b við feitletrun og Ctrl+i við skáletrun |
F-liður a): |
Fylgdu leiðbeiningunum - en athugaðu að nota No Formatting-hnappinn til að fjarlægja format-ið sem er neðan við hvítu Find what-línuna og hvítu Replace with-línuna. Annars leitar Word að undirstrikuðu Tab-merki og það er ekki til í skjalinu. Þá gerist ekkert! Ekki heldur í F-lið b) !! |
G-liður: |
Gættu að þér! Lestu leiðbeiningarnar - en láttu ekki duga að gera það sem svartletrað er!!. Ekki merkja í Picture Placeholders!
Af hverju ekki?
a)-liður: Varúð! Þegar þú hefur lokið við að teikna listaverkið þitt í Paintbrush-gluggann skaltu músa í skjalið utan við hann. Þá
lokast Paintbrush-forritið. |
11. verkefni:A-liður: |
Þú býrð til nýja töflu með því að músa á Table og Insert Table. Athugaðu að hreyfa ekki stillingarnar á reglustikunni! Ef þú vilt
breyta dálkbreidd skaltu inni í töflunni taka með músinni í þá dálk-línu sem þú vilt færa - og færa hana til.
Á bls. 94 er þér sagt að velja Colorful 2 en taflan á síðu 95 er af gerðinni Colorful 3. Veldu þá gerð. Ef þú hefur þegar valið Colorful 2 geturðu breytt valinu með því að vera í töflunni og músa á Table og Table Autoformat. |
C-liður: |
Farðu eftir leiðbeiningunum! Taktu eftir að áður en þú byrjar á þessari töflu skaltu í Format / Paragraph stilla á 6 pkt after. Taktu eftir að línurnar í töflunni eru 5 (í eldri útgáfu bókarinnar eru þær raunar 6). Ekki hafa þær færri og ekki hafa þær fleiri en bókin sýnir! |
12. verkefni: |
Þessu verkefni er sleppt í Vefskólanum!
Geturðu aðeins komið einum bókstaf í línuna í töflureitinum? Þá hefurðu víxlað breidd dálkanna og breidd bilsins milli dálkanna. Þar sem ekkert er enn komið í töfluna hjá þér er einfaldast að henda henni (blokka hana og hneppa Del) og búa hana aftur til. Athugaðu neðstu töfluna! Framleiðslukostnaður hverfistinguls |
Vefsíðugerð
|
Í þessu verkefni er þér leiðbeint um að búa til þína eigin vefsíðu. Þú þarft að velja leiðbeiningar eftir því hvaða Word-útgáfu þú
notar. Hér eru leiðbeiningar fyrir Word-97 fyrir Word-2000 Seinna viltu auðvitað setja vefsíðuna út á netið. Þá þarftu að hafa þína eigin tengingu við þjónustuaðila (Ísmennt, Landsímann, Centrum, Mmedia, Islandia - eða einhvern annan). Ef þú ert byrjandi í þessu efni geturðu litið hér >> á leiðbeiningu um fyrstu skrefin. |
13. verkefni:Sæktu |
Fyrst skaltu taka inn skrána sem heitir Vetni.doc .
Gættu þess að í hverjum staflið verkefnisins (A, B, .. , F) er að finna leiðbeiningar um það sem þar skal framkvæma. Framkvæmdu aðgerðirnar í þeirri röð sem leiðbeint er um þær. Breyttu fyrst stílunum í A-lið osfrv. B-liður: Athugaðu að þegar leitað er að tveimur línu-merkjum (línu-merkja-pari) og eitt sett í staðinn - finnur Word að síðustu aðeins eitt par sem það þykist eyða - en aldrei verður minna eftir en EITT par. Þegar þú setur númerin á Heading-stílana skaltu gæta þess að þú ert að velja númer á Heading-stíla! Viðbót!
|
14. verkefni: |
Fyrst skaltu taka inn skrána sem heitir Geology.doc. Þrjár myndaskrár fylgja þessu verkefni. Sæktu þær á sama stað og afritaðu þær
yfir á skífuna þína. Þær heita Meginl.bmp og Plotur.bmp og Sneid.bmp.
A-liður: Betrumbættu útlit normal-stílsins með því að láta fyrstu línu hverrar málsgreinar hefjast 0,5 sm innar og hafðu einnig 6 pt after - eins og í verkefni 13. B-liður: Athugaðu að það er ekki víst að þriðji kosturinn sé sá rétti!! Þú þarft að velja kost sem setur númerun af gerðinni 1, 1.1,
1.1.1 osfrv á Heading 1 og Heading 2 og Heading 3. Ef þú færð númer á óvænta staði skaltu setja bendilinn við númerið - eða blokka það - og setja normal-stíl á. Þá hverfur númerið. D-liður: Athugaðu: Sæktu hér Word-skjal sem fylgir Vefskóla-staðli fyrir forsíður. Vefskóla-staðallinn fyrir forsíður á ritgerðum er svona:
Hugmynd að notkun Vefskóla-staðalsins á þessa forsíðu:
F-liður: Vill síðasta fyrirsögnin ekki fá númerið SJÖ ?? Það er vegna þess að fyrirsögnin Heimildir er Heading 2 en á að vera Heading 1. Breyttu því! I-liður: Header and footer. Hafðu fótinn aðeins öðruvísi! Fremst skaltu skrifa: Umbrot og uppsetning - og setja þar dagsetninguna í dag. Hnepptu svo TAB-hnappnum tvisvar til að komast í hægri-jöfnunina lengst til hægri og skrifaðu þar nafnið þitt. Hafðu svo strik yfir línunni. Hér geturðu laumast til að skoða 14. verkefnið fullfrágengið! |
15. verkefni: |
Hér er leiðbeint um að útbúa svonefnt template en það er í raun eyðublað sem þú getur mótað fyrirfram að eigin vild. Leiðbeiningar bókarinnar eru góðar í þessu nytsama verkefni. |
16. verkefni: |
D-liður: Gættu þess að vista samsteypubréfs-formið áður en þú steypir saman. Kallaðu það Samst_01 Þá er hægt að nota það aftur og aftur. Þá getur kennarinn líka prófað hvort samsteypan þín virkar! Það er hins vegar engin þörf á að vista bréfin sem samsteypan sjálf býr til. Það tekur bara upp pláss á geymsludiskinum. Það má nefnilega alltaf steypa saman aftur! |
17. verkefni: |
Þetta er einfalt - en mjög nytsamt verkefni. Það kennir aðferð til að skrifa sama bréfið til margra viðtakenda þar sem í hverju bréfi eru persónuleg atriði þess viðtaka sem á að fá það í hendur. Þetta er til dæmis oft notað þegar send eru út bréf til að kynna vörur, þjónustu - eða frambjóðendur í kosningum. |
18. verkefni: |
Fjölvar eru nytsamir. Það er næsta furðulegt að þetta einfalda bragð - sem Word kann svo vel að útbúa - skuli ekki æft fyrr en í þessu síðasta verkefni bókarinnar!! Í fyrstu gerir maður sér varla grein fyrir að þetta sé neitt sérstakt - en við notkun opnast fyrir manni hversu afar nytsamir fjölvar eru. |