Atriðalisti:
|
Nemandinn þarf að kunna skil á - þ.e.: vita hvað merkir og hvað við er átt:
- Ritvinnsluforrit, hjálp, einstakir hlutar skjásins, hamir,
aðdráttur/stærðarstilling með zoom, skjal, mappa (og mappan favorites),
diskur, skífa = disklingur, skífudrif, prentskoðun, prentun, vistun, opna skjal,
loka skjali, eyða skjali, leita, leita og skipta, verja skjal með leyniorði,
bókstafir, velja = blokka, leturtegund, serif, leturstærð, feitletrun, skáletrun,
undirstrikun, lágstafir, hástafir, litlir hástafir, uppskrifað, niðurskrifað,
stækkaður upphafsstafur = drop cap, falin tákn, inndráttur, spássía, málsgrein
= paragraph, jöfnun texta, línubil, rammi, línur, skuggi af línu og ramma,
síðurammi, litir, mynstur, dálkahak = Tab stop, punktafyllt dálkahak,
tölusettur listi, stíll, afritun, líming, draga og sleppa, sjálfvirk leiðrétting,
íslenskar gæsalappir, pappírsstærð, síðuhaus, síðufótur, síðunúmer, tafla,
tölusetning fyrirsagna, sjálfvirkt efnisyfirlit, neðanmálsgrein, aftanmálsgrein,
sjálfvirk atriðaskrá, teikning, mynd, myndatexti, sjálfvirk myndaskrá,
bókamerki, sjálfvirkar tilvísanir, dálkar, orðskipting, stílblað, samsteypa,
fjölvi.
Nemandinn þarf að geta framkvæmt hiklaust á tölvu og útskýrt fyrir
kennara - (músaðu hér til að fá leiðbeiningar):
- Birta og hagnýta sér falin tákn. Skrifa texta án þess að misnota
<inn>-hnappinn (=Return = Enter) og án þess að jafna með slánni
(orðabils-slánni). Skipta orðum milli lína.
- Opna skjal af skífu eða einhverri möppu, prentskoða, prenta, vista, vista með
leyniorði og loka skjali og eyða skjali af skífu og af hörðum diski. Hætta í
Word þannig að forritið taki til eftir sig.
- Feitletra, undirstrika, skáletra, uppskrifa, niðurskrifa. Skipta um leturgerð og
leturstærð. Setja inn tákn sem ekki finnast á hnappaborðinu. Nota
Bakk-hnappinn (Backspace) og Del-hnappinn (Delete).
- Vinna með textahluta: blokka, afrita, færa milli staða og milli skjala, breyta
útliti, eyða.
- Prenta skjal, eina síðu úr skjali eða blokkaðan hluta úr skjali.
- Nota mismunandi aðdrátt. Jafna texta vinstra megin, hægra megin og beggja
megin. Breyta hægri og vinstri inndrætti, línubili, bili á undan og á eftir
efnisgrein.
- Setja inn, breyta og nota dálkstillingar, einnig sem lóðrétt strik (bar) og með
punktafyllingu.
- Ramma inn málsgreinar eða setja um þær strik undir, ofan eða til hliðar. Nota
allar gerðir, liti, þykktir og skyggingar eins og forritið leyfir.
- Tölusetja málsgreinar með sjálfvirkum hætti.
- Stilla spássíur, breyta stærð blaðsíðunnar og prentstefnu. Setja inn
blaðsíðunúmer, sjálfvirka dagsetningu, neðanmálsgreinar, aftanmálsgreinar og
haus og fót.
- Vinna með stíla og breyta stílum og búa til nýja.
- Vinna með textadálka og töflur og kunna að breyta uppsetningu þeirra og
útliti.
- Kunna að leita og skipta, nota Auto Correct og Auti Text, taka inn myndir og
nota Text Box.
- Útbúa efnisyfirlit, myndaskrá og atriðisorðaskrá.
- Búa til og prenta samsteypur og límmiða og búa til og nota einfalda fjölva.
- Nota ýmis önnur atriði sem til kunna að vera tekin í prófi svo sem Vhange
Case, Drop Cap og fleira sem gert er ráð fyrir að nemandinn noti hjálpina í
forritinu til að fá leiðbeiningu.
|