GÓP-fréttir
Kom inn!
Breytingasaga

Breytingasaga

Viðbót: 31.618 
Í byrjun árs 2000 yfirtók Skýrr vefsetur Ísmennt.is og þá glataðist teljarinn. Settur var upp nýr teljari sem síðan hefur talið samtals Kom inn! opnanir. Samanlagður fjöldi opnana síðan teljari var fyrst settur inn á árinu 1998 fæst því þegar þessar tvær tölur eru lagðar saman.
 

Síðast
skráðar
viðbætur
Ekki dagbók - eða ... ?
Þetta hefur nú aldrei verið smáatriða-listi svo þess er ekki að vænta að hér finnist hvaðeina sem gert er við þennan vef. Hann fær lagfæringar og nýtt efni svo til daglega án þess að það sé auðkennt með neinum hætti. Frá þessum degi að telja (13.12.03) verður gerð tilraun til nánari skrásetningar.
2009 2009
27.11.09 Nú er broslegt að líta til einu innfærslunnar árið 2001 þar sem fram kemur furða yfir því að liðið höfðu 6 mánuðir frá undanfarandi innfærslu. Nú hafa liðið tvö ár frá síðustu innfærslu - þótt vefurinn hafi á þeim tíma tekið meiri og minni breytingum daglega. Umfangsmestu viðbætur eru á myndavefnum - þar sem ferðamyndir hafa nú náð fjöldanum 16.609 en heildarfjöldinn er um 25.000. 

Breytingasaga GÓPfrétta mun seint ná dagbókarstíl.

2007 2007
21.11.07 Lokið er samantekt efnisyfirlits. Þar sem efnið er af ýmsum toga er því raðað eftir innihaldi í samræmi við röðunarkerfi Dewey fyrir bókasöfn.

Þótt vefurinn hafi verið í notkun og daglegum uppfærslum í tíu ár hefur aldrei verið þar að finna tæmandi efnisyfirlit. Þetta efnisyfirlit er ekki heldur - og verður ekki tæmandi. Í listanum verða ekki allar síður vefsins. Þær sem útundan verða tengjast hins vegar nánum böndum einhverju þeirra efnistorga sem eru á vefnum og þaðan er vísað til þeirra.

Jafnframt hefur í dag verið farið yfir þennan lista frá upphafi og vísanir uppfærðar.

27.3.07 Flutningur yfir á gopfrettir.net er næstum að klárast - raunar er honum lokið en ýmis tiltekt þó eftir. Það þarf að líta til ýmislegs þegar vefur er fluttur - einkum þegar til hans eru finnanlegar 2.500 ívitnanir þegar leitað er með Emblu.  Spurning hvernig leitendum verður gert viðvart um flutninginn. En - sem sagt - nú skaltu skipta um - ef þú hefur ekki þegar gert það - og sækja vefinn á http://www.gopfrettir.net
5.2.07 Upphefst færsla. Vefurinn flytur á Peturs.net og gert er ráð fyrir að það taki mánuðinn og fari fram að mestu án þess að valda truflunum.
2.2.07 Þessi ágæta áætlun frá desember 2003 hefur sannarlega reynst brosleg. Enn sjaldnar en fyrr er nú ritað hér inn - þótt unnið sé við vefinn oft á dag og svo til alla daga ársins. Mest sést auðvitað á myndasafninu sem nú telur nær 20 þúsund myndir - en þegar nánar er skoðað hreyfist flest. Vonandi gefst bráðlega tími til að vera ítarlegri.
2005 2005
30.11.05 Nokkuð gott að ná tveimur innfærslum á árinu - þegar til stóð að hafa þær miklu tíðari! Maður er svo upptekinn alla daga við að setja inn nýtt efni að ekki tekst að komast alla leið hingað inn til að segja frá því. Myndavefurinn tekur mikinn tíma en þar eru nú inni senn 15 þúsund myndir. Hér má líta yfir mynda-albúma-listann. Sérvefirnir FKE-vefurinn og MR-1959 hafa haldið í við framvinduna og í gær kom inn nýr vefur: Færeyjar-Föroyar og þar er meðal annars sagt af ferðum Ferðafélags Færeyja - sem er vinnuheitið á ferðafélaginu hans Bjarna Birgis Péturssonar sem býr í Þórshöfn í Færeyjum og hefur farið víða um Norðurlöndin og Ísland með hópa á næstliðnum áratug. Sumarið 2005 - í júlímánuði - fór hann með færeyskan gönguhóp Laugaveginn frá Landmannalaugum í Þórsmörk og hér er bæði að finna myndskreytta frásögn og einnig 222 myndir sem skila sér á fullan skjá - með því að nota Screenshow og Full screen.
08.08.05 Enn hefur heldur langt um liðið frá því hér var síðast skráð. Mestu viðbæturnar eru á myndavefnum - einkum ferðamyndavefnum  - en einnig eru FKE-vefurinn og MR-1959 vefurinn með myndir úti á myndavefnum.
2004 2004
07.12.04 Nú er ár liðið frá því að ritari ætlaði að verða duglegri að skrá breytingar á vefnum - en þar í hafa komið miklar gloppur. Ritarinn er svona maður og erfitt að breyta því. Þó að sífellt sé verið að bæta og breyta og raunar einstaka sinnum að henda út - þá er það svo þegar litið er yfir næstliðið tímabil að ritarinn man ekkert sérstakt til að taka. Myndavefurinn breiðir úr sér og FKE-vefurinn hefur tekið sinn toll og svo sitt hvað sem heyrir til í erli dægranna svo vitnað sé til ljóðabókar Péturs Sumarliðasonar.
12.09.04 Því miður trénast úr minni að sinna þessum lista þótt margt sé í gerð. Sem fyrr hefur mikið bæst á myndavefinn, ferðamyndir, FKE-myndir sem opnast líka frá FKE-vefnum sem og fleiri myndir af öðrum vettvöngum. Inn er kominn skáldavefur með ljóðum BEO sem er  Birgitte Egilsson Opdal.
01.08.04 Umfangsmestu viðbæturnar eru á myndavefnum. Þar er bæði um að ræða ferðamyndir og líka af ættarmótum. Annað var mót afkomenda Jakobs Hálfdanarsonar 16.-18. júlí við Mývatn og hitt afkomenda Sumarliða Guðmundssonar 23.-25. júlí á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði. Því miður fellur ritstjórinn furðu auðveldlega í þann gamla farveg að gleyma að geta þess sem gert er, en vefurinn breytist á næstum hverjum degi.
25.05.04 Kominn er sérstakur vefur fyrir Félag kennara á eftirlaunum, FKE-vefurinn, sem opna má beint með http://gopfrettir.net/open/fke

Kominn er sérstakur vefur fyrir útskriftarárganginn MR-1959 sem á 45 ára stúdentsafmæli í vor. Þann vef má opna beint með http://gopfrettir.net/open/mr59

12.04.04 Komnar inn myndir úr Suðurlandsferð 8. og 9. apríl í Þórsmörk og svo á Eyjafjallajökul. 9. apríl var föstudagurinn langi.
11.03.04 Komnar inn lausnir á dæmum til að æfa meðferð almennra algebrubrota.
Komnar inn myndir af Gullfossi í flóði 9. mars.
Komnar inn myndir úr Íslandsferð Högna og Erik í febrúar.
09.02.04 Inn eru að koma myndir úr Hveravallaskreppi.
28.01.04 Inn eru komnar myndir úr Skjaldbreiðsferðinni.
20.01.04 Dró upp fáeinar vísur í vísnabókina - og setti inn áætlun um Skjaldbreiðs-ferð næsta sunnudag.
17.01.04 Fleiri myndir úr Þórsmerkurferðinni 10.-11. janúar eru komnar inn. Einnig fleiri myndir úr Vatnahringnum 14. desember 2003 og úr Hellisheiðarskreppunni þann 20. desember 2003.
15.01.04 Myndir úr Þórsmerkurferðinni 10.-11. janúar eru að koma inn.
2003 2003
25.12.03 Gleðileg jól! * Komið er inn kort sem sýnir Hellisheiðarskreppuna og þar er unnt að sækja Nobeltec-ferilinn.
21.12.03 Komnar eru inn myndir úr Hellisheiðarskreppu gærdagsins og einnig myndir úr Páskaskreppunni árið 2000.
18.12.03 Myndir Péturs Arnar úr ferlunarferðinni 10.-12. nóv. 2000 um Skarfanes, Breiðbak og í Miklafell settar inn á myndavefinn. Þannig verða þær stærri og þægilegri til skoðunar.
15.12.03 Lagfærð Tengibrautin, auknar og bættar vísanir í Vinna - Atvinna og  verslunarhlutinn afmarkaður meira en áður var.
14.12.03 Lokið er innsetningu GÓP-mynda úr Vatnaferð dagsins.
13.12.03 Lokið er innsetningu mynda úr ferð að Langavatni í Borgarfirði þann 22. nóv. 2003.
26.09.03 Breytingasagan hefur verið vanrækt á þessu ári - eins og sjá má. Sitt hvað hefur bæst við og anna ðverið uppfært - eða kastað burt - en ef til vill er mesta breytingin fólgin í nýtingu sérstaks vefs fyrir myndir - Yfirlit * Ferðamyndir * Fólk-L-BogB-AD * Vefir * (Eldri) þótt flestar eldri myndir séu enn á sínum stöðum á vefnum. 
2002 2002
29.12.02 Gleymst hefur að láta þess getið að Jökulheimaannállinn varð til í desember 2001 - janúar 2002. Almennt hefur efni vefsins verið haldið við og það aukið og þétt og innsettir listar og yfirlit þar sem atriðum hefur fjölgað - svo sem í vaðatalinu. Nokkurt efni hefur fengið þann dóm að vera orðið úrelt og verið fjarlægt. 
29.04.02 Haustið 2001 opnaði lénið Ofvirknibokin.net og ofvirknivefurinn hefur aukist töluvert. Liðsinni við stærðfræði hefur verið þétt á Vefskólavefnum og til hafa orðið sérstakir vefir. Einn er minning okkar um Sigurjón Pétursson,  annar er gleðivefur um 60-afmæli Bjarna Péturssonar og þriðji er um Bjarna Bjarnason, rithöfund.
2001 2001
23.03.01

Undanfarna 6 mánuði hefur vefurinn þróast án stórbreytinga. Ferðatengdum vefum hefur verið safnað undir sérstakt ferðatorg. Útbúin hefur verið leiðbeiningarsíða á Vefskólanum til að létta mönnum að hefja vefgerð. Fleiri frásagnir af ferðum ásamt myndum hafa orðið til í kjölfar frábærra ferða með góðum félögum. Til hafa orðið drög að vef fyrir Safari-ferðir Inga. Ekki má gleyma Ferðadöfinni sem tilgreinir hugmyndir að ferðum.

Sitthvað hefur gerst sem hér er ekki í minni ritara - en honum brá nokkuð í brún þegar hann gerði sér grein fyrir að ekkert hefur verið skrifað í þessa söguskrá í heila 6 mánuði !!

2000 2000
03.09.00 Ferðavefurinn Exotic North hefur orðið til. Einnig Vefskólavefurinn. Rúnar hefur umbylt uppsetningunni á ættarvefnum.
09.08.00 Myndir
Fáeinar myndir frá Rögnu Freyju Gísladóttur eru komnar inn á frásögn af Sumar-mótinu í Reykjanesi. Fleiri myndir frá Pétri Erni eru komnar inn í frásögn af Þórsmerkurferðinni 1. apríl 2000. Endurunnar myndastærðir eru í frásögninni af Páskaskreppunni 2000.

Meðal annars sem innfært hefur verið er frásögn af Hvítasunnumóti niðja Jakobs Hálfdanarsonar við Mývatn 2000.

12.07.00 Tekin saman tengibraut til umhverfisvefja.
07.07.00 Boðunarsíða Jónsmessumóts Sumarættarinnar hefur nú breyst í frásögn af mótinu og einnig er inni ættarlisti með þekktum netföngum. Inni er líka lýsing á aðstöðunni í Reykjanesi við Djúp þar sem mótið var haldið í blíðskaparveðri.
16.06.00 Stefnt er að Þórsmerkurferð þann 22. júlí 2000. Þetta er dagsferð og inn er komið eyðublað til að tilkynna um þátttöku.

Innfært efni Jakobs Hálfdanarsonar og frásögn af niðjamótinu við Mývatn á Hvítasunnunni árið 2000 hefur verið sett inn á vefsíðu þar sem fjallað er um Jakob og tengt við innfærð verk hans.

Enn er aukið við efni í tengslum við námskrárgerð og sér ekki fyrir endann á - enda er þetta áhugavert svið sem verður meira í sviðsljósi í skólastarfi upp frá þessu. Það er í samræmi við hin nýju lög sem nú gilda um íslenska skólakerfið.

Gengið hefur verið frá vegatorginu svo að nota má það sem innlegg með framsögu um efnið. Þar er tengt við fleira efni og inn er kominn aðsendur leiðbeiningartexti um ferlun með Garmin-tæki.

28.05.00 Næstliðna 9 mánuði hefur í undirbúningi verið niðjamót frá Jakobi Hálfdanarsyni, föður Kaupfélags Þingeyinga og fyrsta stjórnanda þess á Húsavík. Eftir Jakob liggur mikið af rituðu efni sem lítt hefur birst. Örlítið brot af þessu efni hefur verið sett inn á vefinn og finnst hér.

Vegna væntanlegs innleggs um hálendisferðir hefur orðið til samatekt sem nefnist um ferðir og einnig matsblað sem ætlað er að glöggva ferðamenn á því að ferðir eru annað og meira en það að koma sér frá einum stað til annars.

Vegna innleggs um stöðu skólanámskrárgerðar í framhaldsskólum hefur samantekt um það efni frá janúar 2000 verið gerð dálítið upp og við hana tengt ýmislegt efni sem til hefur orðið á vetrinum 1999-2000 og virðist tengjast ágætlega þaðan - eins og af nokkurs konar torgi. Ef þú opnar síðuna héðan þá opnast hún í sérstökum glugga og allar tilvísaðar síður opnast inn í þetta svæði. Þannig er þægilegt að hafa samanburðinn alltaf á skjánum og geta um leið opnað og skoðað hliðarsíður.

19.05.00 Nokkur tími hefur liðið frá síðustu skráningu hér. Margt hefur þó gerst í þróun vefsins. Veruleg vinna hefur verið lögð í síður sem tengjast námskrártorgi og fjarnámstorgi. Einnig hefur verið sett inn vegatorg í tengslum við starf á vegum Ferðaklúbbsins 4x4. Síðast er upp sett síða sem fylgir ferð Guðmundar Rúnars um Evrópu á sumrinu 2000. Tengibrautin kallar alltaf á viðhald og raunar margar aðrar síður í vefnum.
07.01.00
Aflagður
teljari í
31.618
Aðalteljari frá Ísmennt hefur gefið upp öndina. Þann 30. desember 1999 stóð hann í 31.618 þrátt fyrir margvíslegar uppákomur í talningaævi hans. Nú hefur verið upp tekinn nýr aðalteljari og hann er tengdur við símnetið.
1999 1999
21.12.99 Tengibrautinni skipt til að flýta fyrir notkun hennar. Inn eru komnar ljósmyndasíður nr. 1 * nr. 2 * nr. 3 sem Karl Theodór Sæmundsson tók í haustferð Gíslavinafélagsins 1992 um Jökulheima og suður með Vatnajökli.
30. nóv 99

Inn eru komnar tölvutækar GPS-skrár frá Rúnari Sverrissyni sem eru sóttar á sama stað og skrárnar frá Sverri Kr. Bjarnasyni.

26. nóv 99 Þriðja vefsvæðið geymir nú hluta þessa vefs. Nú hefur http://www.peturs.net/gop verið tekið í notkun í þann mund að Símnet-geymslan er bæði orðin tvöföld að stærð - og full. Inn eru komnar Garmin-pcx5 GPS-skrár á tölvutæku formi frá Sverri Kr. Bjarnasyni. Ath: Þetta er hluti af staðfræði og ferlaskráningu Sverris Kr. Bjarnasonar sem unnt er að fá frá honum eftir leiðbeiningum á GPS-torginu.

Margar síður eru komnar inn í tengslum við fjarnám og námskrárgerð og er sífellt í gangi endurröðun þeirra í samhæfða heild.

11. nóv 99 Miklar viðbætur hafa orðið á síðustu þremur mánuðum. MK-miðstöðin hefur hlotið nokkrar yfirhalningar og verulegar aukningar. Í tengslum við fjarnáms-námskeið sem ég hef stundað í því hvernig heppilegt sé að setja upp og sinna fjarkennslu - er fjarnámstorgið og námskrártorgið er upp sett í tengslum við fjarnáms-námskeið um námskrárgerð - sem ég stunda um þessar mundir.

Inn er kominn sérstakur liður sem heitir Höfundar og verk sem síðan hefur verið færður inn í Tengibrautina.

Tengibrautin hefur vaxið svo mjög að ekki gengur lengur að hafa hana á einni síðu. Búin hefur verið til sérstök tengibraut fyrir hvaðeina sem tilheyrir kennslu og kennsluvefjum.

Til að auðvelda yfirferð um vefinn eru nú tengitorg höfð efst í hægri ramma. Vefur þessi vefur í sífellu upp á sig og kallar á endurskipulagningar til að auðvelda gestum að nýta hann. Markmið hans er að vera gestum nytsamur og ekki leiðinlegur og heppilegur sem fasta heimasíðan. Tengibrautinni er ætlað að vera nýtileg brú til umheimsins.

22. ág 99 Öll gögn fyrir námsáfangann TÖL-102 fyrir haustönn 1999 sett inn á MK-miðstöðina.
7. ág 99 Lýst nokkrum vöðum og settar inn leiðbeiningar til vaðara.
27. júlí 99 Aukið við skálaskrána með upplýsingum og vísunum. Ath: Skálaskráin er hluti af staðfræði og ferlaskráningu Sverris Kr. Bjarnasonar sem unnt er að fá frá honum eftir leiðbeiningum á GPS-torginu.
30. júní '99 Viðhald síðunnar er töluverð vinna og margar síður uppfærast nær daglega. Í dag er inn komið eyðublað fyrir áfangamat í áföngum þar sem GÓP kennir. Í listann sem heitir Þú veist hefur m.a. verið bætt nokkuð ítarlegri lýsingu á skoðunarferð um Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Vel eru þegnar hugmyndir að viðbótum við þær lýsingar því þægilegt er til þeirra að grípa næst þegar koma innlendir eða erlendir gestir - og maður hefur gleymt hringnum!
15. júní '99 Útbúin eyðublöð til innritunar fyrir MK-sérsveitina og MR59-hvar er hver?
13. júní '99 Allmargt hefur komið inn. Sagt frá MK-ferðinni frábæru, útbúinn listi yfir netföng fyrstu íslensku sérkennaranna frá framhaldsdeild KÍ 1969. Kynningastarfsemin hefur verið felld í tvennt. bílabransann og hinn bransann. Verulega hefur verið aukið við samtíninginn Þú veist og nú leiðarhnoða fyrir þá sem vilja sýna vinum og vandamönnum Stór-Kópavogssvæðið. Sífellt er aukið við tengibrautina.
30. maí '99 Styrkt hafa verið uppflettiatriði og leiðbeiningar á MK-miðstöðinni, aukið við MK-sérsveitina og settur í gang listinn Hvar er hver frá MR-59 auk smærri atriða.
12. maí '99 Lagfærð uppsetning DOS-6.22-leiðbeininga fyrir umsjónarmann einkatölvu.
11. maí '99 Einnig settar inn nytsamar ferðavenjur sem notaðar eru til samræmingar í ferðum Gíslavinafélagsins. Tengibrautin er stöðugt að eflast enda fjölgar þeim sem nota vefsíðuna sem heimasíðu og nýta sér tengibrautina.
3. maí '99 Margt hefur orðið undanfarinn mánuð. Tengi-brautin hefur eflst m.a. eftir athugasemdir og óskir frá notendum. Á MK-miðstöðinni er komin lýsing á Excel-kröfur í TÖL-102. Örlítið hefur MK-sérsveitin vaxið - en þar vantar mikið á. Ég hef sett saman íslenskan Garmin-orðalista og breytt uppsetningu GPS-punkta Sverris Kr. Bjarnasonar sem um þessar mundir telja nær 1500 heimsóknir og senn koma þær á tölvutæku PCX5-formi. Lýsing á Hagavatnsför 19. apríl.
5. apríl '99 Nýlega var uppsetningu breytt með því að setja upp þriðja dálkinn sem heitir kynnir. Í dag er upp sett fyrsta útgáfa af ferðarollu um páskaferðina 1999
18. mars '99 Ítarlegri útfærslur hafa verið unnar við MK-miðstöðina. Nú síðast eru inn komnar leiðbeiningar um fyrstu vefgerðar-skrefin, lýsing á þeim Word-kröfum sem gerðar eru í TÖL-102 og leiðbeiningar um þau atriði sem krafist er. Þá hafa komið inn lýsingar á tveimur ferðum sem farnar hafa verið í febrúar og mars 1999.
4. feb. '99 MK-miðstöðin
26. jan '99 Inn eru komnar lýsingar á vetraferðum í Þórsmörk 16.-17. janúar og 23.-24.janúar
26. jan. '99 Margvíslegir erfiðleikar hafa verið í samskiptum við Landsímann undanfarna þrjá mánuði. Fyrst héldu notendur að vandræðin væru þeim að kenna en hægt og bítandi kom í ljós að svo var ekki. Landsíminn er eins og Microsoft - lætur viðskiptavinina halda að þeirra sé sökin - og selur þeim svo úrbæturnar.
1998 1998
8. nóv '98 GPS - leiðir, nokkrar nýjar bætast við og auk þess viðaukar og lagfæringar á nokkrum eldri leiðum.
27. okt Lýsing á haustferð 1998 er komin inn.
Leiðbeiningar hafa verið auknar í MK-miðstöðinni.
Sett hefur verið inn Efnisyfirlit sem auðveldar hopp beint inn í viðkomandi síðu í GÓP-fréttunum.
23. sept Drög að efnisyfirliti
18. sept Opnuð MK-miðstöð
11. sept Lýsing á viðfangsefnum haustferðarinnar 1998 og skráð lýsing Sæmundar í Kexinu á því þegar hann var með Guðmundi Jónassyni og þeir fundu Hófsvað á Tungnaá.1950
3.sept Vefstæðið aukið í 10 MB
4. ágúst Þú veist hefur göngu sína.
2. ágúst Bætt við tengibrautina. Fjarnám er áhugavert - tengt til Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar og einnig Englands, Canada og USA

Áður var breytt rammuppsetningu síðunnar: yfirlínan færð neðst.

20. júlí Löguð uppsetning á ferðarollum Gíslavinafélagsins.

Tic-tac-toe með JavaScript. Tengingum fjölgað og leiðbeiningar auknar.

12. júlí Útliti hagrætt, fjölgað tengingum og leiðbeiningar auknar.
28. júní Skrifuð minnisatriði fyrir internet-umfjöllun. Merking ýmissa skammstafana, öll 5 svið URL, stórstiklur um intertenssöguna.
16. júní Búin til leiðbeining um útprentun dos-skjala sem gerð eru í cp=861 með því að búa til Generic printer og skilgreina breytitöflu.
15. júní Almennar tengingar færðar í sérstaka möppu. Besta leiðin að þeim er tengibrautin sem opna má efst í salnum (aðalramma forsíðunnar) og einnig efst í hægri ramma (undir póstkassanum).

Endurbættar kennaratengingar í gegnum nokkra vefi framhaldsskóla að fengnum ábendingum frá Jörundi Þórðarsyni.

Breytt vísanakerfi í aðal-glugga á forsíðu til að auðvelda lestur.

8. júní Breytt um forsíðulit á toppi og vinstri-gluggum og letri til að auðvelda lestur eftir ábendingar frá Freyju Rún Gísladóttur og Vikari Péturssyni.
7. júní Leiðbeiningar um notkun rofa með explorer.exe, gerð flýtimúsana og flýtihneppinga og hvar er að leita þegar maður vill aðrar icon-myndir.

Búin til þessi skrá um breytingasöguna.

1998 - mars Síðan felld í ramma (frames). Eldra útlit fyrir þá vefskoðara sem ekki geta lesið ramma.
1997 1997
1997 - sept Vefsíðan opnuð og til hennar vísað í síðasta eintaki póstsendra GÓP-frétta.

Efst á þessa síðu * Forsíða